Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 28
Helgarblað 12.–15. maí 2017KYNNINGARBLAÐ2 Brot af því besta
Einstök þjónusta
í umsjón lEiguhúsnæðis
Félagarnir Davíð Karl Wiium og Davíð Vilmundarson eru brautryðjendur í umsjón og
umsýslu eigna í skammtímaleigu.
Árið 2014 stofnuðu þeir þjónustu-
fyrirtækið Dekura sem sérhæfir
sig í viðhaldi á húsnæði sem leigt
er út í gegnum Airbnb og aðra
sambærilega vefi, til þess að létta
undir með leigusölum. Einnig sér-
hæfa þeir sig í umsjón gistiheimila
af öllum stærðum og gerðum.
Það er ótal margt sem þarf að
huga að þegar kemur að því að
gera leigjandann ánægðan. Fyrir
utan það að íbúðin þarf að vera í
toppstandi og tandurhrein og allt
aðgengi með besta móti þegar
nýr leigjandi bankar upp á, þá þarf
leigusali að vera til taks til að hitta
fólk á öllum tímum sólarhrings
og vera reiðubúinn til að leysa úr
hinum ýmsu vandamálum sem
upp geta komið. Þess vegna sér
Dekura einnig um öll samskipti
við gesti. Innifalið í heildarumsjón
Dekura er einnig allt lín, hand-
klæði og annað sem þarf að vera
til staðar fyrir gesti meðan á dvöl
stendur.
Rekstur af þessu tagi getur
verið ansi tímafrekur og krefst
töluverðra fórna og umtals-
verðrar skipulagningar af hálfu
leigusala. Samhliða fullri vinnu og
skipulagningu getur þetta verið
ansi þungur baggi fyrir leigu-
sala að takast á við. Með hjálp
Dekura getur leigusali tekið á móti
töluvert fleiri viðskiptavinum og
fengið betri umsagnir, sem eykur
samstundis verðgildi íbúðarinnar
og leigutekjurnar sem af henni
koma. Dekura hefur síðan árið
2014 aðstoðað fjölda fólks við allt
sem viðkemur rekstri á eignum í
skammtímaleigu. Allt frá þrifum
upp í alhliða umsjón eignanna. Hjá
fyrirtækinu starfa í dag 12 manns
sem sjá um hin ýmsu verkefni og
státar Dekura sig af einu færasta
þrifnaðarteymi í bransanum.
Eftir fjögur ár í þessum rekstri
vita starfsmenn Dekura hvað til
þarf til að hafa eignir tilbúnar fyrir
ferðamenn.
Dekura er í nánu samstarfi við
teymi sérfræðinga í leyfismálum
og aðstoðar viðskiptavini sína við
að fá þau leyfi sem þarf, við-
skiptavininum að kostnaðarlausu,
hvort sem um er að ræða 90
daga leyfi eða fullgilt gistileyfi.
Vegna aukinna umsvifa
hefur bæst í teymið, nýr fram-
kvæmdastjóri hefur tekið til starfa
auk þess sem Dekura hefur fært
sig um set niður á Skólavörðustíg í
miðbæ Reykjavíkur. Þar starfrækir
fyrirtækið skrifstofu og fullbúið
þvottahús.
Til þess að panta þjónustu
frá Dekura má hafa samband
í gegnum vefsíðu fyrirtækisins
https://dekura.is eða senda póst á
netfangið dekura@dekura.is.
Mynd Sigtryggur Ari
jOMA pípulagnir er rótgróið fyrirtæki sem var stofnað árið 1971 og sérhæfir sig í
alhliða viðgerðum og breytingum í
eldri húsum; sérstaklega í endur-
nýjun á skolpi og í drenlagningu í
kringum hús. Jón Magngeirsson,
pípulagningameistari og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir
fyrirtækið sinna bæði einstakling-
um og fyrirtækjum.
Tryggja gæði
Hjá JOMA pípulögnum er verð
ekki miðað við magntölur. „Þegar
kemur að skolpverkefnum gerum
við ávallt fast tilboð sem stend-
ur alltaf; bara eitt fast verð og
skriflegt tilboð. Verð helst því
það sama í byrjun og lok verks,“
segir Jón. „Við notum aðeins PVC
plaströr, þegar við skiptum út því
gamla, sem eru sömu plaströr og
eru sett í ný hús í dag,“ bætir Jón
við. „Við erum afar vel tækjum
búnir og getum því sinnt öllum
þeim verkefnum sem koma inn á
borð til okkar,“ segir hann í fram-
haldinu.
Vönduð vinnubrögð og
afbragðs þjónusta
„Við leggjum mikið upp úr því að
veita fyrirmyndar þjónustu og
fagmennsku
þegar kemur
að vönduð-
um vinnu-
brögðum,“
segir Jón. „Við
erum stund-
vísir og skilum
af okkur verkum á
tilsettum tíma. Jafnframt
sinnum við viðskiptavinum strax,“
bætir hann við. Það er vert
að segja frá því að allir
starfsmenn Jóns hafa
starfað hjá honum í um
10 ár og því góð reynsla
og mikil þekking til staðar
innan fyrirtækisins. Hægt
er að panta þjónustu JOMA
pípulagna með því að hringja í
Jón í síma 892-4598 á kristileg-
um tíma.
gæði og vönduð vinnubrögð
JOMA pípulagnir