Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Síða 28
Helgarblað 12.–15. maí 2017KYNNINGARBLAÐ2 Brot af því besta Einstök þjónusta í umsjón lEiguhúsnæðis Félagarnir Davíð Karl Wiium og Davíð Vilmundarson eru brautryðjendur í umsjón og umsýslu eigna í skammtímaleigu. Árið 2014 stofnuðu þeir þjónustu- fyrirtækið Dekura sem sérhæfir sig í viðhaldi á húsnæði sem leigt er út í gegnum Airbnb og aðra sambærilega vefi, til þess að létta undir með leigusölum. Einnig sér- hæfa þeir sig í umsjón gistiheimila af öllum stærðum og gerðum. Það er ótal margt sem þarf að huga að þegar kemur að því að gera leigjandann ánægðan. Fyrir utan það að íbúðin þarf að vera í toppstandi og tandurhrein og allt aðgengi með besta móti þegar nýr leigjandi bankar upp á, þá þarf leigusali að vera til taks til að hitta fólk á öllum tímum sólarhrings og vera reiðubúinn til að leysa úr hinum ýmsu vandamálum sem upp geta komið. Þess vegna sér Dekura einnig um öll samskipti við gesti. Innifalið í heildarumsjón Dekura er einnig allt lín, hand- klæði og annað sem þarf að vera til staðar fyrir gesti meðan á dvöl stendur. Rekstur af þessu tagi getur verið ansi tímafrekur og krefst töluverðra fórna og umtals- verðrar skipulagningar af hálfu leigusala. Samhliða fullri vinnu og skipulagningu getur þetta verið ansi þungur baggi fyrir leigu- sala að takast á við. Með hjálp Dekura getur leigusali tekið á móti töluvert fleiri viðskiptavinum og fengið betri umsagnir, sem eykur samstundis verðgildi íbúðarinnar og leigutekjurnar sem af henni koma. Dekura hefur síðan árið 2014 aðstoðað fjölda fólks við allt sem viðkemur rekstri á eignum í skammtímaleigu. Allt frá þrifum upp í alhliða umsjón eignanna. Hjá fyrirtækinu starfa í dag 12 manns sem sjá um hin ýmsu verkefni og státar Dekura sig af einu færasta þrifnaðarteymi í bransanum. Eftir fjögur ár í þessum rekstri vita starfsmenn Dekura hvað til þarf til að hafa eignir tilbúnar fyrir ferðamenn. Dekura er í nánu samstarfi við teymi sérfræðinga í leyfismálum og aðstoðar viðskiptavini sína við að fá þau leyfi sem þarf, við- skiptavininum að kostnaðarlausu, hvort sem um er að ræða 90 daga leyfi eða fullgilt gistileyfi. Vegna aukinna umsvifa hefur bæst í teymið, nýr fram- kvæmdastjóri hefur tekið til starfa auk þess sem Dekura hefur fært sig um set niður á Skólavörðustíg í miðbæ Reykjavíkur. Þar starfrækir fyrirtækið skrifstofu og fullbúið þvottahús. Til þess að panta þjónustu frá Dekura má hafa samband í gegnum vefsíðu fyrirtækisins https://dekura.is eða senda póst á netfangið dekura@dekura.is. Mynd Sigtryggur Ari jOMA pípulagnir er rótgróið fyrirtæki sem var stofnað árið 1971 og sérhæfir sig í alhliða viðgerðum og breytingum í eldri húsum; sérstaklega í endur- nýjun á skolpi og í drenlagningu í kringum hús. Jón Magngeirsson, pípulagningameistari og fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir fyrirtækið sinna bæði einstakling- um og fyrirtækjum. Tryggja gæði Hjá JOMA pípulögnum er verð ekki miðað við magntölur. „Þegar kemur að skolpverkefnum gerum við ávallt fast tilboð sem stend- ur alltaf; bara eitt fast verð og skriflegt tilboð. Verð helst því það sama í byrjun og lok verks,“ segir Jón. „Við notum aðeins PVC plaströr, þegar við skiptum út því gamla, sem eru sömu plaströr og eru sett í ný hús í dag,“ bætir Jón við. „Við erum afar vel tækjum búnir og getum því sinnt öllum þeim verkefnum sem koma inn á borð til okkar,“ segir hann í fram- haldinu. Vönduð vinnubrögð og afbragðs þjónusta „Við leggjum mikið upp úr því að veita fyrirmyndar þjónustu og fagmennsku þegar kemur að vönduð- um vinnu- brögðum,“ segir Jón. „Við erum stund- vísir og skilum af okkur verkum á tilsettum tíma. Jafnframt sinnum við viðskiptavinum strax,“ bætir hann við. Það er vert að segja frá því að allir starfsmenn Jóns hafa starfað hjá honum í um 10 ár og því góð reynsla og mikil þekking til staðar innan fyrirtækisins. Hægt er að panta þjónustu JOMA pípulagna með því að hringja í Jón í síma 892-4598 á kristileg- um tíma. gæði og vönduð vinnubrögð JOMA pípulagnir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.