Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 29
Helgarblað 12.–15. maí 2017 KYNNINGARBLAÐ Brot af því besta 3
Gullfoss er nýjasta
bónaðferðin
Bón- og þvottastöðin
Bón- og þvottastöðin státar af sérlega glæsilegri bíla-þvottastöð að Grjóthálsi 10,
við hliðina á Skeljungi við Vestur-
landsveginn. Að sögn Ara Rafns
Vilbergssonar framkvæmdastjóra
var Bón- og þvottastöðin fyrsta
sjálfvirka bílaþvottastöðin á Íslandi
en hún var stofnuð árið 1968.
Stöðin hóf reksturinn í Sóltúni og
var þar samfleytt í nærri 40 ár –
eða allt til ársins 2007.
Einungis handþvottur – engir
kústar eða burstar
„Í boði hjá okkur er öll sú meðferð
sem nýtist best til þess að þrífa
bílinn og bóna hann af natni, eins
og tjöruhreinsun, háþrýstiþvottur,
handþvottur, bón og þurrkun á sjö
mínútum,“ segir Ari. Bílaþvotturinn
er allur unninn í höndunum með
svömpum, bón er síðan sett á
bílinn og að lokum er bíllinn þurrk-
aður með míkrófíber klútum. Við
leggjum einungis stund á hand-
þvott sem við teljum veita besta
árangurinn og notum hvorki kústa
né bursta.“
Byltingarkennd glæný leið til
að bóna bílinn
„Bón- og þvottastöðin tók nýlega
í notkun glænýja bónaðferð sem
kallast Gullfoss og hefur slegið í
gegn hjá okkur,“ segir Ari.
„Um er að ræða þá skemmti-
legu viðbót að fá allsherjar bón á
bílinn sem endist mun lengur og
veitir líka aukinn gljáa. Gullfoss
er ný og byltingarkennd aðferð
við að bera bón á bíla. Bíllinn fer
þá í gegnum vegg af þykku lagi
af bóni sem rennur í alla króka
og kima á bílnum auk þess sem
litadýrðin gleður augað.“
Ummæli ánægðra
viðskiptavina:
„Algjörir snillingar og frábær
þjónusta.“ „5 stjörnu þvottastöð!“
„Ég ætla aldrei aftur að þvo
bílinn minn sjálfur …“ „Fæ alltaf
afbragðsþjónustu og glampandi
hreinan bíl hjá þessum snilling-
um!“
Bón og þvottastöðin Grjót-
hálsi 10 110 Reykjavík Sími:
588-1010 Opnunartími: Virka
daga: 8.00–18.00, laugardaga:
10.00–16.00 www.bon.is