Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Side 29
Helgarblað 12.–15. maí 2017 KYNNINGARBLAÐ Brot af því besta 3 Gullfoss er nýjasta bónaðferðin Bón- og þvottastöðin Bón- og þvottastöðin státar af sérlega glæsilegri bíla-þvottastöð að Grjóthálsi 10, við hliðina á Skeljungi við Vestur- landsveginn. Að sögn Ara Rafns Vilbergssonar framkvæmdastjóra var Bón- og þvottastöðin fyrsta sjálfvirka bílaþvottastöðin á Íslandi en hún var stofnuð árið 1968. Stöðin hóf reksturinn í Sóltúni og var þar samfleytt í nærri 40 ár – eða allt til ársins 2007. Einungis handþvottur – engir kústar eða burstar „Í boði hjá okkur er öll sú meðferð sem nýtist best til þess að þrífa bílinn og bóna hann af natni, eins og tjöruhreinsun, háþrýstiþvottur, handþvottur, bón og þurrkun á sjö mínútum,“ segir Ari. Bílaþvotturinn er allur unninn í höndunum með svömpum, bón er síðan sett á bílinn og að lokum er bíllinn þurrk- aður með míkrófíber klútum. Við leggjum einungis stund á hand- þvott sem við teljum veita besta árangurinn og notum hvorki kústa né bursta.“ Byltingarkennd glæný leið til að bóna bílinn „Bón- og þvottastöðin tók nýlega í notkun glænýja bónaðferð sem kallast Gullfoss og hefur slegið í gegn hjá okkur,“ segir Ari. „Um er að ræða þá skemmti- legu viðbót að fá allsherjar bón á bílinn sem endist mun lengur og veitir líka aukinn gljáa. Gullfoss er ný og byltingarkennd aðferð við að bera bón á bíla. Bíllinn fer þá í gegnum vegg af þykku lagi af bóni sem rennur í alla króka og kima á bílnum auk þess sem litadýrðin gleður augað.“ Ummæli ánægðra viðskiptavina: „Algjörir snillingar og frábær þjónusta.“ „5 stjörnu þvottastöð!“ „Ég ætla aldrei aftur að þvo bílinn minn sjálfur …“ „Fæ alltaf afbragðsþjónustu og glampandi hreinan bíl hjá þessum snilling- um!“ Bón og þvottastöðin Grjót- hálsi 10 110 Reykjavík Sími: 588-1010 Opnunartími: Virka daga: 8.00–18.00, laugardaga: 10.00–16.00 www.bon.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.