Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 40
Einar Ágúst Víðisson (43) situr fyrir svörum: „EKKERT VÍST AÐ ÞAÐ KLIKKI“ FÆDDUR OG UPPALINN? Fæddur 13. ágúst 1973, í Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Ólst upp á Reyðarfirði og Neskaupstað. MÉR FINNST GAMAN AÐ …? … skemmta fólki. SÍÐASTA KVÖLDMÁLTÍÐIN? Þorrabakki. BRENNDUR EÐA GRAFINN? Grafinn eftir kúnstarinnar reglum samkvæmt greftrunarsiðum Bahá‘íi trúarinnar. HVAÐ GERIRÐU MILLI KL. 17–19? Sem minnst. SAMFÉLAGSMIÐLAR EÐA DAGBLÖÐIN? Bæði. HVAÐ ERTU MEÐ Í VINSTRI VASANUM? Gítarnögl frá Eggerti vini mínum. BJÓR EÐA HVÍTVÍN? Nei, ég er góður, er á bíl og sonna. HVER STJÓRNAR FJARSTÝR- INGUNNI Á ÞÍNU HEIMILI? Vill einhver bjóða sig fram? Þvílíkt vesen og magn af fjarstýringum, meira að segja kertin eru með sínar „eigins“. HVERNIG VAR FYRSTI KOSSINN? Örugglega hrikalega hallærislegur. HVER VÆRI TITILL ÆVISÖGU ÞINNAR? „Það er ekki neitt! Hann Einar frændi minn …“ alveg klárlega. HVER ER DRAUMABÍLLINN? Æi, ég spái ekkert í svoleiðis húmbúkk. Bara eitthvað vistvænt rafmagns sem þolir smá ófærð. FYRSTA STARFIÐ? Bæjarvinnan fyrir austan. FALLEGASTI STAÐUR Á LANDINU? Almáttugur, ég á svo erfitt með eitthvað uppáhalds í hverju sem er. Sama hvort það er músík, staðir og hvað þá annað. Ég hef notið þeirrar blessunar að hafa þrætt landið út og suður og séð drjúgan part af því í öllum sínum búningi og hver þúfa er svo dýrmæt og segir einhverja sögu. Sólarupp- rásirnar eftir böllin á sumrin gera alla staði fallega. En Norðfjörður og Ísafjörður standa alltaf upp úr. HVAÐA OFURKRAFT VÆRIR ÞÚ TIL Í AÐ VERA MEÐ? Eins og Nightcrawler eða Quicksilver úr X-Men. GIST Í FANGAKLEFA? Já. STURTA EÐA BAÐ? Sturta, fatta ekki bað. HÚÐFLÚR EÐA EKKI? Jú, þau eru nokkur hingað og þangað um kroppinn. Ég er alveg dottinn út úr þessu samt einhvern veginn. HVAÐA LEYNDA HÆFILEIKA HEFUR ÞÚ? Höfum þá leynda aðeins lengur. HVAÐ FÉKK ÞIG TIL AÐ TÁR- AST SÍÐAST? Jarðarför kærrar vinkonu fyrir nokkrum mánuðum. FYRIRMYND Í LÍFINU? Það er óþarfi að spyrða sómakært fólk við rússíbanareiðina sem hefur stundum verið, þannig að er þetta ekki spurning um að vera viljugur til að bæta sig á hverjum degi? Æi, ojjj, það er svo mikil klisja eitthvað. ERTU MEÐ EINHVERJA FÓ- BÍU? Það er svona misgrunnt á hinu og þessu skulum við segja og misjafnt hverju sinni hvaða fóbía er í dvala meðan önnur blómstrar, ekk- ert sem er óviðráðanlegt eða háir mér neitt sérstaklega, svo nei. HVER ER BESTA ÁKVÖRÐUN SEM ÞÚ HEFUR TEKIÐ? Hún er enn í smíðum. FURÐULEGASTI MATUR SEM ÞÚ HEFUR BORÐAÐ? Krókódíll? NEYÐARLEGASTA ATVIK SEM ÞÚ HEFUR LENT Í? Það er af nógu að taka, en fyrst kemur kannski upp í hugan gigg á Arnarhóli einhvern tímann með Skítamóral. Ég hrasa við skóhramm einhvers úr hljómsveitinni, skó kennda við Buffalo en voru í raun Swear-skór úr Gallabuxnabúðinni. Ég rek hausinn í trommupallinn en sprett upp eins og stálfjöður og næ hálfrotaður að klára lagið. Svona hlutir eru martröð hvers söngvara, held ég. KLUKKAN HVAÐ FERÐU Á FÆTUR? Alltof snemma! LEIGIRÐU EÐA ÁTTU? Leigi. HVAÐA BÓK ER Á NÁTT- BORÐINU? Way of the Peaceful Warrior eftir Dan Millman. MEÐ HVERJUM LÍFS EÐA LIÐNUM MYNDIR ÞÚ VILJA VERJA EINNI KVÖLDSTUND? Bahá‘u‘lláh. FYRSTA ENDURMINNING ÞÍN? Það man ég ekki. LÍFSMOTTÓ? „Það er ekkert víst að það klikki“ eins og ég nefndi plötuna mína 2007. UPPÁHALDSÚTVARPSMAÐ- UR/STÖÐ? Ég get ekki valið á milli vina og gamalla starfsfélaga. Útvarp er ástríða hjá mér og ég er sífellt að skipta um stöð og bara að éta upp sem flest. UPPÁHALDSMATUR/DRYKK- UR? Þorramatur, vatn, Pepsi. UPPÁHALDSTÓNLISTAR- MAÐUR/HLJÓMSVEIT? Það er ómögulegt að velja eitthvað eitt fyrir mig, ég hlusta á svo margt. Nýverið hefur Chet Baker veitt mér félagsskap og fúgur eru aftur komnar í uppáhald hjá mér. Svo var ég að endurnýja kynni mín við Black Crowes þannig að það er af ýmsu að taka. UPPÁHALDSKVIKMYND/ SJÓNVARPSÞÆTTIR? Uppá- haldskvikmynd er Interstellar og Brickelberry uppáhaldssjónvarps- þættir. UPPÁHALDSBÓK? Og sólin rís eftir William Sears og Way of the Peaceful Warrior eftir Dan Millman. UPPÁHALDSSTJÓRNMÁLA- MAÐUR? Æi, dreptu mig ekki. Söngvarinn Einar Ágúst Víðisson er tónlistarunnend um vel kunnur enda hefur hann verið í bransanum f rá unga aldri síðan í Neskaupstað þar sem hann óls t upp. Auk þess að troða upp einsamall sem trúbador og semja tónlist er Einar Ágúst söngvari, ásláttar- og gítarleikari í h ljómsveitinni Skítamóral, en nýlega slógu þeir í geg n bæði á tónlist- arhátíðinni Heima í Hafnarfirði og á Spot. Hann verð ur ásamt félögum sínum á Þjóðhátíð í Eyjum um ver slunarmannahelgina. Einar Ágúst svarar spurningum vikunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.