Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 40
Einar Ágúst Víðisson (43) situr fyrir svörum:
„EKKERT VÍST
AÐ ÞAÐ KLIKKI“
FÆDDUR OG UPPALINN?
Fæddur 13. ágúst 1973, í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Ólst
upp á Reyðarfirði og Neskaupstað.
MÉR FINNST GAMAN AÐ …?
… skemmta fólki.
SÍÐASTA KVÖLDMÁLTÍÐIN?
Þorrabakki.
BRENNDUR EÐA GRAFINN?
Grafinn eftir kúnstarinnar reglum
samkvæmt greftrunarsiðum Bahá‘íi
trúarinnar.
HVAÐ GERIRÐU MILLI KL.
17–19? Sem minnst.
SAMFÉLAGSMIÐLAR EÐA
DAGBLÖÐIN? Bæði.
HVAÐ ERTU MEÐ Í VINSTRI
VASANUM? Gítarnögl frá Eggerti
vini mínum.
BJÓR EÐA HVÍTVÍN? Nei, ég er
góður, er á bíl og sonna.
HVER STJÓRNAR FJARSTÝR-
INGUNNI Á ÞÍNU HEIMILI?
Vill einhver bjóða sig fram? Þvílíkt
vesen og magn af fjarstýringum,
meira að segja kertin eru með sínar
„eigins“.
HVERNIG VAR FYRSTI
KOSSINN? Örugglega hrikalega
hallærislegur.
HVER VÆRI TITILL ÆVISÖGU
ÞINNAR? „Það er ekki neitt!
Hann Einar frændi minn …“ alveg
klárlega.
HVER ER DRAUMABÍLLINN?
Æi, ég spái ekkert í svoleiðis
húmbúkk. Bara eitthvað vistvænt
rafmagns sem þolir smá ófærð.
FYRSTA STARFIÐ? Bæjarvinnan
fyrir austan.
FALLEGASTI STAÐUR Á
LANDINU? Almáttugur, ég á svo
erfitt með eitthvað uppáhalds í
hverju sem er. Sama hvort það er
músík, staðir og hvað þá annað. Ég
hef notið þeirrar blessunar að hafa
þrætt landið út og suður og séð
drjúgan part af því í öllum sínum
búningi og hver þúfa er svo dýrmæt
og segir einhverja sögu. Sólarupp-
rásirnar eftir böllin á sumrin gera
alla staði fallega. En Norðfjörður og
Ísafjörður standa alltaf upp úr.
HVAÐA OFURKRAFT VÆRIR
ÞÚ TIL Í AÐ VERA MEÐ? Eins
og Nightcrawler eða Quicksilver úr
X-Men.
GIST Í FANGAKLEFA? Já.
STURTA EÐA BAÐ? Sturta, fatta
ekki bað.
HÚÐFLÚR EÐA EKKI? Jú, þau
eru nokkur hingað og þangað um
kroppinn. Ég er alveg dottinn út úr
þessu samt einhvern veginn.
HVAÐA LEYNDA HÆFILEIKA
HEFUR ÞÚ? Höfum þá leynda
aðeins lengur.
HVAÐ FÉKK ÞIG TIL AÐ TÁR-
AST SÍÐAST? Jarðarför kærrar
vinkonu fyrir nokkrum mánuðum.
FYRIRMYND Í LÍFINU? Það
er óþarfi að spyrða sómakært fólk
við rússíbanareiðina sem hefur
stundum verið, þannig að er þetta
ekki spurning um að vera viljugur til
að bæta sig á hverjum degi? Æi, ojjj,
það er svo mikil klisja eitthvað.
ERTU MEÐ EINHVERJA FÓ-
BÍU? Það er svona misgrunnt á
hinu og þessu skulum við segja og
misjafnt hverju sinni hvaða fóbía er
í dvala meðan önnur blómstrar, ekk-
ert sem er óviðráðanlegt eða háir
mér neitt sérstaklega, svo nei.
HVER ER BESTA ÁKVÖRÐUN
SEM ÞÚ HEFUR TEKIÐ? Hún
er enn í smíðum.
FURÐULEGASTI MATUR SEM
ÞÚ HEFUR BORÐAÐ? Krókódíll?
NEYÐARLEGASTA ATVIK SEM
ÞÚ HEFUR LENT Í? Það er af
nógu að taka, en fyrst kemur kannski
upp í hugan gigg á Arnarhóli
einhvern tímann með Skítamóral.
Ég hrasa við skóhramm einhvers
úr hljómsveitinni, skó kennda við
Buffalo en voru í raun Swear-skór úr
Gallabuxnabúðinni. Ég rek hausinn í
trommupallinn en sprett upp eins og
stálfjöður og næ hálfrotaður að klára
lagið. Svona hlutir eru martröð hvers
söngvara, held ég.
KLUKKAN HVAÐ FERÐU Á
FÆTUR? Alltof snemma!
LEIGIRÐU EÐA ÁTTU? Leigi.
HVAÐA BÓK ER Á NÁTT-
BORÐINU? Way of the Peaceful
Warrior eftir Dan Millman.
MEÐ HVERJUM LÍFS EÐA
LIÐNUM MYNDIR ÞÚ VILJA
VERJA EINNI KVÖLDSTUND?
Bahá‘u‘lláh.
FYRSTA ENDURMINNING
ÞÍN? Það man ég ekki.
LÍFSMOTTÓ? „Það er ekkert víst
að það klikki“ eins og ég nefndi
plötuna mína 2007.
UPPÁHALDSÚTVARPSMAÐ-
UR/STÖÐ? Ég get ekki valið á
milli vina og gamalla starfsfélaga.
Útvarp er ástríða hjá mér og ég er
sífellt að skipta um stöð og bara að
éta upp sem flest.
UPPÁHALDSMATUR/DRYKK-
UR? Þorramatur, vatn, Pepsi.
UPPÁHALDSTÓNLISTAR-
MAÐUR/HLJÓMSVEIT? Það
er ómögulegt að velja eitthvað eitt
fyrir mig, ég hlusta á svo margt.
Nýverið hefur Chet Baker veitt
mér félagsskap og fúgur eru aftur
komnar í uppáhald hjá mér. Svo
var ég að endurnýja kynni mín við
Black Crowes þannig að það er af
ýmsu að taka.
UPPÁHALDSKVIKMYND/
SJÓNVARPSÞÆTTIR? Uppá-
haldskvikmynd er Interstellar og
Brickelberry uppáhaldssjónvarps-
þættir.
UPPÁHALDSBÓK? Og sólin rís
eftir William Sears og Way of the
Peaceful Warrior eftir Dan Millman.
UPPÁHALDSSTJÓRNMÁLA-
MAÐUR? Æi, dreptu mig ekki.
Söngvarinn Einar Ágúst Víðisson er tónlistarunnend
um vel kunnur enda hefur hann verið í bransanum f
rá unga aldri síðan í Neskaupstað þar sem hann óls
t upp. Auk þess að
troða upp einsamall sem trúbador og semja tónlist
er Einar Ágúst söngvari, ásláttar- og gítarleikari í h
ljómsveitinni Skítamóral, en nýlega slógu þeir í geg
n bæði á tónlist-
arhátíðinni Heima í Hafnarfirði og á Spot. Hann verð
ur ásamt félögum sínum á Þjóðhátíð í Eyjum um ver
slunarmannahelgina. Einar Ágúst svarar spurningum
vikunnar.