Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 37
SKAPAÐU ÞITT DRAUMALÍF Í KARÍbAHAFINU ekki er unnið markvisst í því að vinna sig upp úr „burnout-i“. Einkennin eru margvísleg en oft lýsa þau sér í örmögnun með þeim hætti að orkan einfaldlega hverfur og úthaldið með. Manneskja sem kannski var vön að geta unnið auðveldlega 10–12 tíma á dag kemst varla fram úr rúminu, og vinna í tvo tíma er jafnvel virkilegt átak. „Það er í raun skelfi- legt að lenda í slíku en það er hægt að komast upp úr því og komast hjá því líka með því að setja sjálfa sig í fyrsta sætið, sem vill gjarnan gleymast hjá okkur konum.“ byggir á eigin reynslu Sigrún segir að konur séu oft höf- uðið, herðarnar og allt annað á sín- um heimilum auk þess sem þær séu margar hverjar að vinna gríðarlega mikið. „Kröfurnar sem við gerum til okkar eru ekki eðlilegar og þess vegna er „burnout“ svo algengt á meðal kvenna, því miður.“ Eftir eigin reynslu hefur hún útbúið prógramm sem hún vill nú miðla til annarra kvenna, bæði þeirra sem standa í sömu sporum og hún var fyrir ári og þeirra sem eru að bugast undan skyldum hversdagsins. „Í gegnum mína uppbyggingu úr „burnout-i“ þurfti ég að byrja algjörlega á byrjuninni, hver dagur var áskorun en ég bjó mér til prógramm til að vinna mig upp. Það prógramm getur nýst bæði konum sem eru með merki um örmögnun og líka þeim sem vilja ná tökum á lífi sínu; sameina áhugamál, vinnu og svo auðvitað framtíðaráform, en samt án þess að vinna sig í kaf. Það þarf að vera jafnvægi á þessu og með réttum tækjum og tólum er hægt að ná því,“ segir Sigrún. „Lífið á að vera gefandi, ekki átök“ „Lífið þarf ekki að vera átök og tekið á hörkunni, og það á ekki að vera það. Lífið á að vera gaman, gefandi og hamingjuríkt á hverjum degi. Maður á að finna til tilhlökkunar þegar maður vaknar á hverjum morgni, ef svo er ekki þá þarf að breyta einhverju,“ segir Sigrún og brosir. „Og á þessu námskeiði munum við gera breytingar til betra og hamingjuríkara lífs, bæði í smáum og stórum skrefum. Hverjar breytingarnar eru er mismun- andi hjá hverri og einni konu. En sjálfsvinnan sem við förum í verður gríðarleg.“ En ferðin verður ekki bara sjálfs- vinna, konurnar munu einnig hafa nægan tíma til að slaka á og njóta sólarinnar og hugsa um það sem farið verður yfir. „Þetta verður mikið andlegt ferðalag fyrir alla þátt- takendur og gríðar- lega gefandi. Við för- um djúpt í hvað konur raunverulega langar að fá í lífinu, hver og ein fær það upp á yfirborðið hjá sér með ákveðinni tækni sem ég hef notað lengi. Konurnar munu svo búa til markmið og plön, tæki og tól til að fylgja þessu eftir þegar heim er komið,“ segir Sigrún sem bíður spennt eftir að miðla af sinni reynslu til kvenna í haust. „Settu sjálfa þig í fyrsta sætið! Því þú átt það skilið.“ Dagsetningar og áfangastaðir fyrir þetta spennandi námskeið, Exclusive Empower Women's Retr- eat, sem haldið verður í Karabíska hafinu í haust verður tilkynnt um mjög fljótlega en áhugasömum konum er bent á að fylgjast með á Facebook síðunni og á snapchat. GYÐJAN NÝTUR LÍFSINS Sigrún naut þess í botn að vera á Balí og býður nú öðrum konum kost á því sama. FAGURT FLEY Um borð í þessu skipi er allt sem hugurinn og líkaminn þurfa á að halda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.