Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 30
Helgarblað 12.–15. maí 2017KYNNINGARBLAÐ4 Brot af því besta
Málningarfyrirtækið Gæðamálverk er nú að vinna við nýbyggingu sem
byggingafyrirtækið Mannverk
hefur reist að Herjólfsgötu 32–34
í Hafnarfirði. Hér er um að ræða
fjölbýlishús með 32 íbúðum og
verkefni Gæðamálverks eru fólgin
í því að sandspartla, gifsmúra,
grunna, kítta, líma pappaborða í
samskeyti og svo auðvitað að mála
húsið. Þetta er dæmigert verk-
efni hjá Gæðamálverki sem hefur
unnið við fjölmargar vel heppnaðar
nýbyggingar sem Mannverk hefur
reist á undanförnum árum.
„Mannverk leggur mikla áherslu
á að fá okkur til liðs við sig,“ segir
Gísli V. Eggertsson, eigandi Gæða-
málverks, og hann er ánægður
með samstarfið: „Það vinnur ákaf-
lega gott fólk hjá Mannverki og
sérstaklega er ég ánægður með
Hildi Margréti verkefnastjóra sem
er tengiliður minn hjá fyrirtæk-
inu, en þessi frábæra kona stýrir
hörðum iðnaðarmönnum af mikilli
röggsemi.“ Annar þekktur og náinn
samstarfsaðili Gæðamálverks
er Flügger-litir en Gæðamálverk
notar að mestu leyti efni frá þeim
og gengur samstarfið afar vel.
Sandspörtlun er eitt af
sérsviðum Gæðamálverks en
fyrirtækið státar meðal annars af
því að hafa sandspartlað hæstu
byggingu á Íslandi, fjölbýlishús
í Skuggahverfi í Reykjavík. Auk
sandspörtlunar sinnir Gæða-
málverk allri málningarvinnu
innanhúss og utan, þar á meðal
þakmálningu; sem og léttum múr-
viðgerðum utanhúss.
Gísli V. Eggertsson er ungur
að árum, 35 ára gamall, en hann
hefur unnið við málun frá ung-
lingsaldri. Hann er lærður málara-
meistari og fyrirtækið hefur hann
rekið í tíu ár:
„Já, þetta er orðið tíu ára
gamalt fyrirtæki en ég hef aldrei
skipt um kennitölu. Satt best að
segja þykir tíu ára kennitala í
þessum bransa vera ansi gömul.
En heiðarleiki er okkur mikilvægur
og ég vil standa við mín orð,“ segir
Gísli. Það er mikið að gera hjá
Gæðamálverki nær allt árið en
mest er að gera á vorin og sumrin
þegar verkefnum í útimálun fjölgar
mjög mikið. „En vegna vaxtarins í
nýbyggingum þá get ég í raun-
inni fengið eins mikla vinnu og ég
vil. Ég vil hins vegar ekki stækka
fyrirtækið of mikið því mér finnst
mikilvægt að ég geti unnið áfram
sjálfur við málun en þurfi ekki að
færast yfir í stjórnunarstarf. Þetta
er mitt fag og ég get ekki hugsað
mér að hætta í því strax. Ég vil auk
þess gera hlutina vel og vandlega
og þetta má ekki verða of stórt,“
segir Gísli sem hefur unun af sínu
fagi og nýtur þess að skila af sér
góðum verkum sem viðskipta-
vinurinn er ánægður með.
Starfsmenn Gæðamálverks eru
um sjö talsins að Gísla meðtöldum
en á álagstíma fer hann í samstarf
við undirverktaka sem er með
annan eins starfsmannafjölda.
Segja má að vinna við ný-
byggingar Mannverks séu stærsti
hlutinn af starfsemi Gæðamál-
verks. Fyrirtækið tekur hins vegar
að sér alls konar verkefni bæði
stór og smá og málar til dæmis
líka hús fyrir einstaklinga.
Nánari upplýsingar er að finna
á heimasíðunni gaedamalverk.is
en síminn er 867-7010.
Heimasíða Mannverks:
mannverk.is.
GæðAMálVERk VEitiR AlHliðA MálninGARÞJónuStu
Sinnir nýbyggingum
af miklum krafti