Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 33
Strax í brasilíska var ég langt kominn þar.“ „Styrkleikar mínir eru gólfið, eins og ég vann bardagann núna. Ég var búinn að hita vel upp fyrir hann með spörkum, sem sást svo ekkert í bardaganum, þar sem hann var svo stuttur. Ég kannski reyni að sýna það í næsta bardaga, ef að hann verður lengri,“ segir Björn Lúkas og brosir. Björn Lúkas hefur einnig miðlað áfram til yngri iðkenda og þegar hann bjó í Grindavík var hann byrjaður að kenna tai-kwando og leysa af í júdóþjálfun og kenndi einnig nokkur námskeið í tai-kwondo með Helga Rafni Guðmundssyni. „Mér fannst skemmtilegt að kenna krökkunum í Grindavík, Helgi, þjálfarinn minn og Kristmundur, sem er annar frábær taikwando-maður sem stefnir á Ólympíuleik- ana, vorum saman með þrjár æfingar. Þegar við fórum á fyrsta mót þá sá maður bætinguna hjá krökkunum.“ Mér finnst betra að treysta á mig einan „Mér gengur betur í einstaklings- sportum þar sem ég ber ábyrgð á mér sjálfur og ég get ekki kennt neinum öðrum um en sjálfum mér ef ég tapa,“ segir Björn. „Sama er með ef að ég get gert betur. Annað en í liðsíþróttum þar sem þú ert kannski upp á þitt besta, en öðrum í liðinu gengur verr.“ Aðspurður um titlana sem Björn Lúkas hefur unnið þá er hann ekki með þá á hraðbergi enda hefur hann unnið til verðlauna á öllum mótum sem hann hefur tekið. „Ég er með 4_5 unglingameistaratitla í júdó og tvo Norðurlandaunglingameistara, einn unglinga í tai-kwando og einn í full- orðinshóp. Fyrir brasilíska jiu-jitsu er ég með 4–5 unglingameista og einn fullorðinsmeistara, en hann vann ég 17 ára gamall á undanþágu.“ Flutti í bæinn eingöngu vegna MMA Eins og áður kom fram þá er Björn Lúkas fæddur og uppalinn í Grinda- vík og það var Mjölnir sem dró hann í bæinn. „Ég flutti til Reykjavíkur bara eitt, tvö og þrjú vegna Mjölnis, ef Mjölnir væri í Grindavík væri ég þar, ef Mjölnir væri á Akureyri væri ég þar.“ „Ég var búinn að ákveða að klára þrennt áður en ég flytti til Reykja- víkur: fá svart belti í júdó, sem ég fékk 18 ára, svart belti í taikwando, sem ég fékk 19 og klára stúdent- inn,“ segir Björn. Hann kláraði hann í desember 2015 og í janúar var hann kominn til Reykjavíkur. Það eru 1600 iðkendur í Mjölni og hann er stærsti MMA-klúbbur í Evrópu og með þeim stærstu í heimi. „Í fyrra fór ég til Kanada og fór á æfingu í MMA-klúbbi þar. Þar var George Saint Pier, sem er ein mín helsta fyrirmynd, innan og utan vallar, hann hætti á toppnum með sigur. Mjölnir er með fleiri iðkendur en sá klúbbur og mun betri aðstöðu. Við erum með þrjá Evrópumeistara og tvo atvinnumenn. MMA er lífsstíll Björn Lúkas æfir alls 9–11 sinnum í viku og hver æfing er 1–2 klukku- stundir að lengd. „Þetta er lífsstíll, ég geri nánast ekkert annað,“ segir Björn Lúkas, sem vinnur með hlutastarf hjá Póstdreifingu og hefur fullan skilning hjá vinnu- veitanda sínum fyrir æfingum og þeim tíma sem þær taka. „Ég vinn hlutastarf hjá Póstdreifingu, vinn á morgnana og ræð hversu mikið ég vinn. Ef æfing fellur niður eða eins og núna, þegar ég ætla aðeins að leyfa líkamanum að jafna sig, þá get ég unnið meira. Svo eins og fyrir bardagann þá vann ég minna vikuna fyrir svo ég gat hvílt mig meira. Ég byrjaði fyrst í næturvinnu hjá þeim þegar ég flutti til Reykja- víkur, ég var nývaknaður og dauð- þreyttur á æfingu og fór beint að vinna eftir hana. Þannig að ég sagði við þá að ef vinnan passaði ekki við það sem ég er að gera í Mjölni þá gæti ég alveg eins flutt aftur til Grindavíkur, þá voru þeir svo frábærir að koma til móts við mig og bjóða mér hlutastarf. MMA er fín sjálfsvörn, fín líkamsrækt, mér finnst ég geta tjáð mig með sportinu, það er svo frumstætt, líkaminn þinn er verkfærið, þú ert ekki með neitt annað, eins og til dæmis í fótbolta þá ertu með boltann og að hitta í markið. Mamma eina sem þekkti ekki Gunnar Nelson Björn Lúkas á tvo yngri bræður, Há- kon Klaus, 18 ára og Fritz, 11 ára. Sá eldri, Hákon, er líka byrjaður að æfa. „Við búum saman og í kickboxinu er hann besti æfingafélaginn minn, orðinn stærri en ég og farinn að kalla mig litla bróður til að bögga mig,“ segir Björn og hlær. „Fjölskyldan styður mig öll, pabbi og systkini hans, afi og amma. Afi var til dæmis mjög duglegur að skutla mér á æfingar í Keflavík áður en ég fékk bílpróf. Mamma var þýsk og allt þýska ættfólkið er að fylgjast með mér og senda mér skilaboð og hvetja mig áfram,“ segir Björn Lúkas, en móðir hans, Sandra Munch, lést í febrúar 2015. „Mamma hvatti mig líka alltaf áfram og mætti á mót hjá mér. Og það er til dæmis fyndið að rifja upp að á fyrsta mótinu sem ég keppti á í brasilísku ji-jitsu var hún sú eina sem þekkti ekki Gunnar Nelson. Ég var 14–15 ára og fékk undanþágu til að keppa, var að keppa við fullorðna menn. Ég vann fyrstu glímuna og næstu glímu keppti ég við Gunnar Nelson, sem var eini Íslendingur- inn þarna með svart belti og það þekktu hann allir nema mamma. Ég tapa á innan við mínútu og mamma byrjar að góla svona í hita leiksins af hverju ég gerði ekki hitt eða þetta. Og ég man að fólk í kringum okkur horfði á og hefur líklega hugsað „slakaðu á, þetta er heimsklassameistari sem hann er að tapa gegn.“ Besti vinurinn átti inngangslagið „Þegar ég flutti fyrst til Reykjavík- ur þá flutti ég inn til besta vinar míns, Guðjóns Sveinssonar, sem er æskuvinur minn úr Grindavík. Svo fer ég að leigja með Hákoni bróður mínum og Guðmundi, vini okkar. Ef ég fengi að ráða þá fengi ég Guðjón yfir til okkar,“ segir Björn. „Guðjón er á fullu í tónlist, í 2–3 hljómsveitum, með stúdíó í Grinda- vík, þar sem hann er líka að aðstoða aðra tónlistarmenn og búinn að keppa á Músíktilraunum. Ég bað hann að semja lag sem inngöngulag fyrir mig í Færeyjum. Þegar ég steig inn í búrið þá stoppaði ég bara og fékk gæsahúð yfir laginu, að besti vinur hefði samið lag og sungið, þetta var mjög skemmtilegt.“ Hvað er framundan? „Ég sé fyrir mér að innan fimm ára verði ég orðinn atvinnumaður og kominn ágætis leið á ferlinum. Ég horfi á Gunnar Nelson sem fyrir- mynd en vil samt ryðja mína eigin braut. Hvort sem ég verð í hans deild eða öðrum samtökum,“ segir Björn, sem segir hægt að stökkva beint í atvinnumennskuna eins og Gunnar gerði. Hann hefur líka hugsað um að mennta sig meira, en allavega ekki í bili, MMA á hug hans allan. „Ég var búinn að lesa um Wilderness nám og það heillaði mig, það var kynn- ing á því þegar ég var í Fjölbraut, en það heillaði mig ekki nóg til að byrja strax. Ég stefni ekki lengra í hinu, MMA fær alla mína athygli, en ég fylgist samt með taikwando, júdó og boxsenunni og er með puttana í jóla- og páskaæfingum og gæti alveg verið að ég tæki þátt í mótum hér heima.“ Það eru ekki miklir peningar í íþróttinni og þurfa einstaklingar oft- ast að kosta sitt sjálfir. „Ég hef ekki verið duglegur að sækja mér styrkt- araðila og vildi frekar taka allavega einn bardaga og geta þá sýnt hvers ég væri megnugur. Mjölnir tekur hins vegar vel á móti manni og styrkir okkur vel, Færeyjaferðin var mér að kostnaðarlausu. Frábær klúbbur, bæði aðstaða og æfingafélagar, auk þess sem þeir hugsa vel um mann.“ Það er mjög misjafnt hvað menn keppa lengi í MMA, besti aldurinn er 30–35, svona „prime“-árin, sá elsti, Dan Henderson, keppti um titil 46 ára. Þannig að ljóst er að Björn Lúkas á nóg af árum eftir í íþróttinni. „Það er ástríðan sem keyrir mig áfram,“ segir Björn, „og eins og stundaskráin er núna þá hef ég nóg að gera og myndi ekki vilja hafa það öðruvísi. Ef ég gæti væri ég til í að hætta að vinna og skjóta einni aukaæfingu inn í hádeginu,“ segir Björn Lúkas, sem ætlar alla leið á eigin forsendum. BRUGÐIÐ Á LEIK: Íþróttir má æfa hvar sem er. ÆFINGAR Í ANDDYRI: Svona var æfingaaðstaðan í Grindavík, þunnar dýnur í anddyri íþróttahússins. BESTU VINIR: Björn og Guðjón hafa verið bestu vinir frá því þeir voru smápollar. HORNAMENNIRNIR: Björn Lúkas og hornamenn hans, Árni Ísaksson og Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis. BESTUR Á GÓLFINU: Björn Lúkas býr yfir mun betri tækni á gólfinu en flestir andstæðinga hans. Mynd SóLLiLJA BALtASArdóttir M yn d Só LL iL JA B AL tA SA rd ó tt ir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.