Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Side 33
Strax í brasilíska var ég langt
kominn þar.“
„Styrkleikar mínir eru gólfið, eins
og ég vann bardagann núna. Ég
var búinn að hita vel upp fyrir hann
með spörkum, sem sást svo ekkert í
bardaganum, þar sem hann var svo
stuttur. Ég kannski reyni að sýna
það í næsta bardaga, ef að hann
verður lengri,“ segir Björn Lúkas og
brosir.
Björn Lúkas hefur einnig miðlað
áfram til yngri iðkenda og þegar
hann bjó í Grindavík var hann
byrjaður að kenna tai-kwando og
leysa af í júdóþjálfun og kenndi
einnig nokkur námskeið í
tai-kwondo með Helga Rafni
Guðmundssyni. „Mér fannst
skemmtilegt að kenna
krökkunum í Grindavík,
Helgi, þjálfarinn minn og
Kristmundur, sem er annar
frábær taikwando-maður
sem stefnir á Ólympíuleik-
ana, vorum saman með þrjár
æfingar. Þegar við fórum
á fyrsta mót þá sá maður
bætinguna hjá krökkunum.“
Mér finnst betra að
treysta á mig einan
„Mér gengur betur í einstaklings-
sportum þar sem ég ber ábyrgð á
mér sjálfur og ég get ekki kennt
neinum öðrum um en sjálfum mér
ef ég tapa,“ segir Björn. „Sama er
með ef að ég get gert betur. Annað
en í liðsíþróttum þar sem þú ert
kannski upp á þitt besta, en öðrum
í liðinu gengur verr.“ Aðspurður
um titlana sem Björn Lúkas hefur
unnið þá er hann ekki með þá á
hraðbergi enda hefur hann unnið
til verðlauna á öllum mótum sem
hann hefur tekið. „Ég er með 4_5
unglingameistaratitla í júdó og tvo
Norðurlandaunglingameistara, einn
unglinga í tai-kwando og einn í full-
orðinshóp. Fyrir brasilíska jiu-jitsu er
ég með 4–5 unglingameista og einn
fullorðinsmeistara, en hann vann ég
17 ára gamall á undanþágu.“
Flutti í bæinn eingöngu vegna MMA
Eins og áður kom fram þá er Björn
Lúkas fæddur og uppalinn í Grinda-
vík og það var Mjölnir sem dró hann
í bæinn. „Ég flutti til Reykjavíkur
bara eitt, tvö og þrjú vegna Mjölnis,
ef Mjölnir væri í Grindavík væri ég
þar, ef Mjölnir væri á Akureyri væri
ég þar.“
„Ég var búinn að ákveða að klára
þrennt áður en ég flytti til Reykja-
víkur: fá svart belti í júdó, sem ég
fékk 18 ára, svart belti í taikwando,
sem ég fékk 19 og klára stúdent-
inn,“ segir Björn. Hann kláraði hann
í desember 2015 og í janúar var
hann kominn til Reykjavíkur.
Það eru 1600 iðkendur í Mjölni
og hann er stærsti MMA-klúbbur
í Evrópu og með þeim stærstu í
heimi. „Í fyrra fór ég til Kanada og
fór á æfingu í MMA-klúbbi þar. Þar
var George Saint Pier, sem er ein
mín helsta fyrirmynd, innan og utan
vallar, hann hætti á toppnum með
sigur. Mjölnir er með fleiri iðkendur
en sá klúbbur og mun betri aðstöðu.
Við erum með þrjá Evrópumeistara
og tvo atvinnumenn.
MMA er lífsstíll
Björn Lúkas æfir alls 9–11 sinnum í
viku og hver æfing er 1–2 klukku-
stundir að lengd. „Þetta er lífsstíll,
ég geri nánast ekkert annað,“
segir Björn Lúkas, sem vinnur með
hlutastarf hjá Póstdreifingu og
hefur fullan skilning hjá vinnu-
veitanda sínum fyrir æfingum og
þeim tíma sem þær taka. „Ég vinn
hlutastarf hjá Póstdreifingu, vinn á
morgnana og ræð hversu mikið ég
vinn. Ef æfing fellur niður eða eins
og núna, þegar ég ætla aðeins að
leyfa líkamanum að jafna sig, þá
get ég unnið meira. Svo eins og
fyrir bardagann þá vann ég minna
vikuna fyrir svo ég gat hvílt mig
meira. Ég byrjaði fyrst í næturvinnu
hjá þeim þegar ég flutti til Reykja-
víkur, ég var nývaknaður og dauð-
þreyttur á æfingu og fór beint að
vinna eftir hana. Þannig að ég sagði
við þá að ef vinnan passaði ekki
við það sem ég er að gera í Mjölni
þá gæti ég alveg eins flutt aftur
til Grindavíkur, þá voru þeir svo
frábærir að koma til móts við mig
og bjóða mér hlutastarf. MMA er fín
sjálfsvörn, fín líkamsrækt, mér finnst
ég geta tjáð mig með sportinu, það
er svo frumstætt, líkaminn þinn
er verkfærið, þú ert ekki með neitt
annað, eins og til dæmis í fótbolta
þá ertu með boltann og að hitta í
markið.
Mamma eina sem
þekkti ekki Gunnar Nelson
Björn Lúkas á tvo yngri bræður, Há-
kon Klaus, 18 ára og Fritz, 11 ára. Sá
eldri, Hákon, er líka byrjaður að æfa.
„Við búum saman og í kickboxinu
er hann besti æfingafélaginn minn,
orðinn stærri en ég og farinn að
kalla mig litla bróður til að bögga
mig,“ segir Björn og hlær.
„Fjölskyldan styður mig öll,
pabbi og systkini hans, afi og
amma. Afi var til dæmis mjög
duglegur að skutla mér á æfingar
í Keflavík áður en ég fékk bílpróf.
Mamma var þýsk og allt þýska
ættfólkið er að fylgjast með mér og
senda mér skilaboð og hvetja mig
áfram,“ segir Björn Lúkas, en móðir
hans, Sandra Munch, lést í febrúar
2015. „Mamma hvatti mig líka alltaf
áfram og mætti á mót hjá mér. Og
það er til dæmis fyndið að rifja upp
að á fyrsta mótinu sem ég keppti á
í brasilísku ji-jitsu var hún sú eina
sem þekkti ekki Gunnar Nelson. Ég
var 14–15 ára og fékk undanþágu til
að keppa, var að keppa við fullorðna
menn. Ég vann fyrstu glímuna og
næstu glímu keppti ég við Gunnar
Nelson, sem var eini Íslendingur-
inn þarna með svart belti og það
þekktu hann allir nema mamma.
Ég tapa á innan við mínútu og
mamma byrjar að góla svona í hita
leiksins af hverju ég gerði ekki
hitt eða þetta. Og ég man að fólk
í kringum okkur horfði á og hefur
líklega hugsað „slakaðu á, þetta er
heimsklassameistari sem hann er
að tapa gegn.“
Besti vinurinn átti inngangslagið
„Þegar ég flutti fyrst til Reykjavík-
ur þá flutti ég inn til besta vinar
míns, Guðjóns Sveinssonar, sem er
æskuvinur minn úr Grindavík. Svo
fer ég að leigja með Hákoni bróður
mínum og Guðmundi, vini okkar. Ef
ég fengi að ráða þá fengi ég Guðjón
yfir til okkar,“ segir Björn.
„Guðjón er á fullu í tónlist, í 2–3
hljómsveitum, með stúdíó í Grinda-
vík, þar sem hann er líka að aðstoða
aðra tónlistarmenn og búinn að
keppa á Músíktilraunum. Ég bað
hann að semja lag sem inngöngulag
fyrir mig í Færeyjum. Þegar ég steig
inn í búrið þá stoppaði ég bara og
fékk gæsahúð yfir laginu, að besti
vinur hefði samið lag og sungið,
þetta var mjög skemmtilegt.“
Hvað er framundan?
„Ég sé fyrir mér að innan fimm ára
verði ég orðinn atvinnumaður og
kominn ágætis leið á ferlinum. Ég
horfi á Gunnar Nelson sem fyrir-
mynd en vil samt ryðja mína eigin
braut. Hvort sem ég verð í hans
deild eða öðrum samtökum,“ segir
Björn, sem segir hægt að stökkva
beint í atvinnumennskuna eins og
Gunnar gerði.
Hann hefur líka hugsað um að
mennta sig meira, en allavega ekki í
bili, MMA á hug hans allan. „Ég var
búinn að lesa um Wilderness nám
og það heillaði mig, það var kynn-
ing á því þegar ég var í Fjölbraut,
en það heillaði mig ekki nóg til að
byrja strax. Ég stefni ekki lengra í
hinu, MMA fær alla mína athygli,
en ég fylgist samt með taikwando,
júdó og boxsenunni og er með
puttana í jóla- og páskaæfingum og
gæti alveg verið að ég tæki þátt í
mótum hér heima.“
Það eru ekki miklir peningar í
íþróttinni og þurfa einstaklingar oft-
ast að kosta sitt sjálfir. „Ég hef ekki
verið duglegur að sækja mér styrkt-
araðila og vildi frekar taka allavega
einn bardaga og geta þá sýnt hvers
ég væri megnugur. Mjölnir tekur hins
vegar vel á móti manni og styrkir
okkur vel, Færeyjaferðin var mér að
kostnaðarlausu. Frábær klúbbur,
bæði aðstaða og æfingafélagar, auk
þess sem þeir hugsa vel um mann.“
Það er mjög misjafnt hvað menn
keppa lengi í MMA, besti aldurinn
er 30–35, svona „prime“-árin, sá
elsti, Dan Henderson, keppti um
titil 46 ára. Þannig að ljóst er að
Björn Lúkas á nóg af árum eftir í
íþróttinni. „Það er ástríðan sem
keyrir mig áfram,“ segir Björn, „og
eins og stundaskráin er núna þá hef
ég nóg að gera og myndi ekki vilja
hafa það öðruvísi. Ef ég gæti væri
ég til í að hætta að vinna og skjóta
einni aukaæfingu inn í hádeginu,“
segir Björn Lúkas, sem ætlar alla
leið á eigin forsendum.
BRUGÐIÐ Á LEIK:
Íþróttir má æfa hvar sem er.
ÆFINGAR Í ANDDYRI:
Svona var æfingaaðstaðan í Grindavík,
þunnar dýnur í anddyri íþróttahússins.
BESTU VINIR: Björn og Guðjón hafa verið
bestu vinir frá því þeir voru smápollar.
HORNAMENNIRNIR:
Björn Lúkas og hornamenn
hans, Árni Ísaksson og Jón
Viðar Arnþórsson, formaður
Mjölnis.
BESTUR Á GÓLFINU:
Björn Lúkas býr yfir mun betri tækni
á gólfinu en flestir andstæðinga
hans. Mynd SóLLiLJA BALtASArdóttir
M
yn
d
Só
LL
iL
JA
B
AL
tA
SA
rd
ó
tt
ir