Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 12.–15. maí 2017fréttir
Í
fyrra smituðust tæplega 90
manns af lekanda og ríflega 30
af sýfilis, eða sárasótt. Þetta er
mikil aukning miðað við síðustu
ár og nærri tvisvar sinnum fleiri
smit en árið 2015. Samkvæmt Þórólfi
Guðnasyni sóttvarnarlækni hjá emb-
ætti landlæknis og ábyrgðarmanni
Farsóttafrétta, má rekja þessa aukn-
ingu nær alfarið til samkynhneigðra
karlmanna. Miðað við fjölda smita
á fyrstu mánuðum þessa árs er því
spáð að álíka margir eða fleiri muni
smitast í ár.
Helga Baldvinsdóttir Bjargardótt-
ir, framkvæmdastjóri Samtakanna
78, segir það mjög alvarlegt að svo
margir samkynhneigðir karlmenn
séu að smitast af kynsjúkdómunum.
„Við erum enn þá að tala um hóp
sem er jaðarsettur og er að upplifa
mikla skömm. Við sem samfélag ber-
um ábyrgð á því að fólki líði vel með
sína kynhneigð og með hverjum það
velur að sofa hjá vegna þess að ef það
er að upplifa smán og fordóma þá
eru minni líkur á að fólk sé að passa
upp á sig og heilsuna,“ segir hún.
Starfshópur skipaður
Þórólfur segir það alþjóðlega þró-
un í seinni tíð að samkynhneigðir
menn smitist í auknum mæli af sára-
sótt og lekanda. „Þetta eru aðallega
karlmenn sem hafa kynmök við aðra
karlmenn. Þetta er þróun sem sést í
öðrum löndum, bæði Evrópu og Am-
eríku. Þessi sama aukning er þar hjá
þessum hópi. Maður veit það ekki
fyrir víst en þetta hlýtur að tengjast
því að menn séu orðnir værukær-
ari í kynlífi og nota sennilega minna
af verjum eins og smokkum,“ segir
Þórólfur.
Hann segir líklegt að faraldur-
inn muni breiðast út fyrir þennan
afmarkaða hóp. „Þegar maður er að
sjá þessa aukningu hjá þessum hópi
þá getur maður búist við því að það
fari að sjást aukning í öðrum hópum,
eins og til dæmis gagnkynhneigðum
líka. Ég yrði ekki hissa á því,“ segir
Þórólfur.
Hann segir að landlæknir hafi
nú þegar hafið vinnu við að stemma
stigu við kynsjúkdómafaraldrinum.
„Við höfum vakið athygli ráðherra
á þessu og það hefur verið skipað-
ur starfshópur til að koma með til-
lögur að aðgerðum. Við höfum líka
rætt þetta við Samtökin 78 og bent
á þetta. Við höfum beðið þau um að
koma með skilaboð til sinna með-
lima,“ segir Þórólfur.
Stórhættulegir sjúkdómar
Bæði lekandi og sárasótt geta haft
alvarlegar afleiðingar sé ekki brugð-
ist rétt við smiti. Lekandi getur valdið
ófrjósemi og sýkingu í liðum, augum,
eggjaleiðurum og kviðarholi. Sýkla-
lyf eru notuð gegn lekanda en margir
stofnar bakteríunnar eru ónæmir
gegn ýmsum sýklalyfjum.
Sýfilis, eða sárasótt, getur valdið
alvarlegum hjarta-, heila- og tauga-
sjúkdómum síðar á ævinni sé ekki
fullnægjandi meðferð gefin á allra
fyrstu stigum sjúkdómsins. Einkenni
hennar eru sár á þeim stað þar sem
bakterían komst í snertingu. Þau
eru ekki alltaf sýnileg þar sem svæð-
ið getur bæði verið inni í endaþarmi
eða munni.
HIV-smitum fjölgaði talsvert í
fyrra líka en að sögn Þórólfs eru hlut-
föll á sýkingum eftir kynhneigð jafn-
ari þar. Alls smituðust tæplega 30
einstaklingar af HIV í fyrra. Þórólfur
segir að það megi skipta þeim í þrjá
meginhópa: samkynhneigða, gagn-
kynhneigða og sprautufíkla.
Sennilega of værukærir
Helga tekur undir með Þórólfi og seg-
ir líklegt að hommar séu sennilega of
værukærir. „Það er ekki þannig að þú
getir tekið pillu við öllu. Það er fólk
sem svarar ekki lyfjameðferð. Þetta
getur haft alvarlegar afleiðingar í för
með sér. Við höfum sofnað á verðin-
um hvað varðar fyrirbyggjandi að-
gerðir. Við hjá Samtökunum reynum
alltaf að hafa ókeypis smokka í boði,
svo það sé ekki hindrun fyrir fólk,“
segir Helga.
Hún segir mikilvægt að auka að-
gengi að smokkum á Íslandi. „Það
ættu að vera smokkasjálfsalar á
skemmtistöðum og annars stað-
ar þar sem líklegt er að kynlíf sé í
uppsiglingu. Við erum enn þá með
skömm tengda því að kaupa smokka.
Þeir sem muna eftir HIV-faraldrin-
um þá er himinn og haf á milli þess
að fólk sé að pæla í þessu núna mið-
að við þá. Það er engin umræða um
það,“ segir Helga. n
SýfiliSfaraldur
meðal íSlenSkra homma
n Ráðherra gert viðvart og starfshópur
skipaður n Auka þarf aðgengi að smokkum
„Við
erum
ennþá að
tala um hóp
sem er jaðar-
settur og
er að upp-
lifa mikla
skömm.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Er öldruðum
sinnt sem
skyldi?
Efnt verður til fundar í Iðnó á
laugardag um stöðu aldraðra
sem búa heima en þurfa engu
að síður á aðstoð að halda. Yfir-
skrift fundarins er: Er öldruðum í
heimahúsum sinnt sem skyldi?
Gunnar Alexander Ólafsson
heilsuhagfræðingur fjallar um
aldraða og kerfið og spyr: Að búa
sem lengst heima … er það val-
kostur?
Anna Þrúður Þorkelsdóttir,
þjóðfræðingur og fyrrverandi for-
maður Rauða kross Íslands, svar-
ar eftirfarandi spurningu: Hafa
breyttar áherslur í þjónustu skil-
að öldruðum betra lífi? Þórunn S.
Einarsdóttir félagsráðgjafi veltir
eftirfarandi upp: Hvernig höldum
við reisn okkar á gamals aldri?
Fundarstjóri er Ögmundur Jón-
asson, fyrrverandi þingmaður og
ráðherra.
Allir eru velkomnir á fundinn,
sem hefst klukkan 12 og stendur í
rúman klukkutíma.
„Þú ert dauður“
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt karlmann á fertugsaldri í
30 daga skilorðsbundið fang-
elsi fyrir brot gegn valdstjórn-
inni. Maðurinn var ákærður fyrir
að hafa, sunnudaginn 23. ágúst
2015 við Ægisgötu í Reykjavík,
hótað lögreglumanni sem var við
skyldustörf lífláti.
Sagði maðurinn við lögreglu-
þjóninn: „Þú ert dauður“ og
„næst þegar ég sé þig þá ætla ég
að drepa þig, helvítis fíflið þitt.“
Maðurinn mætti ekki þegar mál-
ið var þingfest og var hann því
dæmdur á grundvelli fyrirliggj-
andi gagna.
Dómurinn yfir manninum er
skilorðsbundinn til tveggja ára.
Sigtryggur
bæjarlista-
maður
Margrét Örnólfsdóttir er heiðurs-
listamaður Kópavogs í ár og Sig-
tryggur Baldursson er bæjarlista-
maður. Karen E. Halldórsdóttir,
formaður lista- og menning-
arráðs, tilkynnti þetta við hátíð-
lega athöfn á Bókasafni Kópa-
vogs á fimmtudag. Margrét og
Sigtryggur búa í Kópavogi og hafa
um árabil látið mjög að sér kveða
í íslensku lista- og menningarlífi.
Í tilkynningu frá Kópavogs-
bæ kemur fram að Sigtryggur
muni sem bæjarlistamaður vinna
að því með lista- og menning-
arráði og starfsmönnum Menn-
ingarhúsa Kópavogsbæjar að
styðja við og efla unga tónlistar-
menn í Kópavogi. Texti úr bókum
Margrétar verður í Lestrargöngu
Bókasafns Kópavogs sem sett
verður upp á gönguleiðum í ná-
grenni Menningarhúsa bæjarins
í sumar.