Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Page 16
16 Helgarblað 12.–15. maí 2017fréttir Ofursterkar e-pillur í umferð n Þrefalt sterkari en gengur og gerist n MDMA-efni sífellt að verða hreinni n Bylgja í Evrópu sem lætur á sér kræla á Íslandi S tyrkleiki MDMA í e-töflum í Evrópu hefur farið stigvax- andi frá árinu 2010 og vís- bendingar um að bylgja af ofur e-töflum, með styrk- leika MDMA langt umfram það sem áður hefur þekkst, gangi nú yfir heimsálfuna. Hér á landi hafa slíkar töflur verið að láta á sér kræla sam- kvæmt styrkleikamælingum á efnum sem reynt hefur verið að smygla til landsins. Samkvæmt upplýsingum frá Tollstjóra var lagt hald á „umtals- vert magn“ af e-töflum og dufti á síð- asta ári, en árið 2015 lögðu tollverðir hald á tæplega 210 þúsund e-töflur. Helmingi sterkari í dag en í gamla daga Útbreiðsla sífellt sterkari e-taflna kom fram í skýrslu Eftirlitsmiðstöðv- ar Evrópu með lyfjum og lyfjafíkn (EMCDDA) í fyrra, sem bar yfirskrift- ina „Nýlegar breytingar á MDMA/ ecstasy markaði Evrópu“ (e. Recent changes in Europe‘s MDMA/ecsta- sy market) Þar kom fram að e-töfl- ur hafi hægt og sígandi verið að verða sterkari frá tíunda áratug síð- ustu aldar þegar þær komu fyrst fram á sjónarsviðið. Frá árinu 2010 hafi hins vegar mátt merkja veru- lega aukningu í hreinleika MDMA í þeim. Á tíunda áratugnum innihélt hver hefðbundin pressuð e-pilla að meðaltali um 50–80 mg af MDMA, en pillurnar í dag eru að meðaltali helmingi sterkari, innihaldi um 125 mg af MDMA. Ofursterkar e-töflur í umferð Hinar svokölluðu ofur-ecstasy-pill- ur, sem finna hafi mátt á einstaka mörkuðum í Evrópu, sprengi hins vegar flesta áður þekkta skala í þess- um efnum, að því er fram kom í skýrslu EMCDDA. Dæmi eru um styrkleikagildi upp á 270–340 mg af MDMA í hverri töflu. Í skýrslunni er nefnt sem dæmi að í Hollandi, þar sem 10 þúsund styrkleikaprófanir eru gerðar árlega, hafi upprisa vinsælda MDMA-efna ekki aðeins verið staðfest heldur hafi 53% allra e-taflna sem mæld- ar voru árið 2015 innihaldið 140 mg af MDMA að meðaltali samanborið við aðeins 3% árið 2009. Skammtastærðir að stækka Annað áhyggjuefni sem minnst er á er að töflurnar virðast einnig vera að stækka. Í Frakklandi mældust þær að meðaltali 204 mg árið 2009, en voru orðnar 325 mg árið 2014. EMCDDA og Europol gáfu í mars 2014 út viðvörun vegna ofursterkra MDMA-taflna sem haldlagðar höfðu verið í Hollandi, Belgíu, Sviss og Bretlandi. Í grein á vef Global Drug Survey, skrifar læknirinn og sérfræðingur- inn Adam R. Winstock, að eins öfug- snúið og það hljómi þá þýði hreinni fíkniefni ekki endilega að þau séu öruggari fyrir notendur, sérstaklega ef það veit ekki hvað það er að taka. Slíkt eykur möguleikann á lífshættu- legri ofskömmtun fyrir bæði reynda og óreynda fíkniefnaneytendur. Hætt er við að þeir sem hafi reynslu af vægari e-pillum eða MDMA-efn- um hvers konar noti sama magn af sterkara efni ef hann veit ekki að það sé helmingi öflugra. Dæmi um mjög sterkar töflur hér Valþór Ásgrímsson, verkefnisstjóri hjá Rannsóknastofu í lyfja- og eitur- efnafræði við Háskóla Íslands, segir að þau efni sem berist inn á borð þar séu yfirleitt bara úr innflutningsmál- um þar sem efni hafa verið haldlögð í smygltilraunum. Tilfinningin sé að MDMA-styrkur sé á uppleið. „Af þeim sýnum sem okkur ber- ast til rannsóknar þá eru meðalgildi síðustu ár nokkuð stöðug. En eins- taka sinnum sjáum við töflusýni með mjög háum styrk af MDMA.“ Valþór er staddur í Svíþjóð á ráðstefnu með kollegum sínum í Evrópu þar sem þessi mál eru einmitt til umræðu. Hann segir í samtali við DV að hann hafi rætt þessi mál við hollenska kollega sína sem hafi haft svipaða sögu að segja. En innflutningur á fíkniefnum seg- ir aðeins hluta sögunnar því ljóst er að umtalsvert magn þeirra eru einnig framleidd hér á landi. Íslensk kannabisræktun er þekkt stærð og umfangsmikil en dæmi eru einnig um og vísbendingar að framleiðsla á amfetamíni og metamfetamíni fari hér einnig fram. Pillur pressaðar innanlands Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu, segir aðspurður að hér á landi sé líklega ekki verið að framleiða e-töflur og MDMA-efni sem slík. „En það er verið að pressa efni í töflur hér. Þetta er flutt inn í duftformi eða kristöllum og pressað í töflur.“ Hann segir enga ástæðu til að draga í efa að þróunin hafi verið í þá átt að efnin séu að verða öflugri. „Við vitum að kannabisefnin eru sí- fellt að verða sterkari, með tilliti til hlutfalls THC í þeim, væntanlega hefur þróunin verið þannig með hin efnin líka.“ Varhugaverð blanda Ljóst er að þegar allir þessir þætt- ir eru lagðir saman er þróunin varhugaverð. Innihaldsefni e-taflna, Mollý, eða hvers kyns MDMA- tengdra efna eru að verða sterk- MDMA og e-töflur Þessi dópsali er að selja græn epli og MDMA-hylki í margs kon- ar skammtastærðum á Facebook. MynD FAcebOOk Litríkar en lífshættulegar Ofursterkar e-pillur hafa verið að skjóta upp kollinum í mörgum Evrópulöndum að undanförnu. Ísland er þar engin undantekning. MynD ePA „Ósnert MDMA“ Með skírskotun í hreinleika efnisins og að það sé enn í kristalformi, er þessi fíkniefnasali að auglýsa MDMA til sölu á Facebook á 18 þúsund krónur grammið. MynD FAcebOOk Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.