Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Qupperneq 43
Helgarblað 12.–15. maí 2017 KYNNINGARBLAÐ Brot af því besta 5
Bortækni: 36 ára þekking og reynsla
„Við komum á staðinn og gerum verðtilboð þér að kostnaðarlausu“
Starfsmenn fyrirtækisins Bortækni leysa fagmann-lega af hendi öll verkefni,
stór sem smá, á fljótlegan og
skilvirkan hátt. „Við höfum 36 ára
reynslu sem er dýrmæt og nýtist
viðskiptavinum okkar vel. Strax í
upphafi var sérstök áhersla lögð
á fagleg vinnubrögð og þrifalega
umgengni. Keyptar voru vatns-
sugur og ýmislegt fleira í þeim
tilgangi,“ segir Halldór Kristjánsson
verkstjóri.
Nýjustu og bestu tækin
Halldór segir að Bortækni annist
margvísleg verkefni, eins og t.d.
kjarnaborun og gólfslípun auk
þess sem fyrirtækið sérhæfir
sig í steypusögun, kjarnaborun
og niðurrifi. „Bortækni hefur á
rúmlega 35 ára ferli ávallt lagt
mikla áherslu á að veita viðskipta-
vinum sínum góða og persónulega
þjónustu. Með nýjustu og bestu
fáanlegum tækjum er okkur kleift
að bjóða hraða þjónustu á sann-
gjörnu verði,“ segir hann.
Leiðandi á íslenskum
verktakamarkaði
„Bortækni hefur verið leiðandi
á íslenskum verktakaiðnaði í
gegnum tíðina og ekkert verk er
of stórt eða of smátt fyrir okkur.
Í dag erum við með átta starfs-
menn sem eru frábærir. Okkur er
mjög umhugað um vinnuöryggi
og heilsu okkar starfsmanna.
Bortækni vinnur mikið í heimahús-
um við að saga glugga, hurðarop
og stiga. Fyrirtækið tekur einnig
að sér að saga fyrir hita í gólf
og sér um að rífa allt, eins og
innréttingar, veggi og gólfefni.
Við komum á staðinn og gerum
verðtilboð þér að kostnaðarlausu,“
segir Halldór að lokum.
Bortækni ehf., Miðhrauni 14,
210 Garðabær. Símar: 567-7570,
693-7700. Netfang: bortaekni@
bortaekni.is www.bortaekni.is
Doddi málari er öflugt málningarþjónustufyrirtæki sem staðsett er á Sauðár-
króki, að Raftahlíð 73. Fyrirtækið
var stofnað þann 1. júní árið 1997
en var breytt eignarhaldsfélag
árið 1998. Eigendur eru Þórarinn
Sveinn Thorlacius og Hólmfríður
Jóhannsdóttir. Gæða- og fram-
kvæmdastjóri er Magnús Þórarinn
Thorlacius. Fastir starfsmenn á
ársgrundvelli eru 4–6 en á sumrin
er bætt við 6–10 starfsmönnum
eftir verkefnastöðu hverju sinni
en verkefni færast mjög í vöxt á
sumrin. Frá stofnun fyrirtækisins
hafa um 140 manns unnið hjá
Dodda málara ehf.
Doddi málari sinnir ýmiss konar
verkefnum, meðal annars viðhaldi
á gömlum húsum og kirkjum, mál-
un togara og báta, málun virkjana,
sem og viðhaldi á venjulegum
húsum. Doddi málari starfar að
mest leyti innan Skagafjarðar
og veitir þar fjölmörgum íbúum
og fyrirtækjum góða og faglega
þjónustu. Stundum er þó farið
út fyrir héraðið og árið 2009
héldu nokkrir starfsmenn Dodda
málara til Færeyja og máluðu
þar skólabyggingu. Verkið tók um
þrjá mánuði. Færeyingar tóku
vel á móti starfsmönnum Dodda
málara og samstarfið gekk í einu
og öllu vel.
Doddi málari hefur
frá upphafi stutt
vel við íþróttastarf í
héraðinu, aðallega við
knattspyrnu- og körfu-
boltadeildir Tindastóls,
með styrkjum og með
því að útvega leikmönn-
um liðsins sumarvinnu.
Þeir sem hafa
áhuga á að nýta
sér þjónustu Dodda
málara eða fá nánari
upplýsingar geta sent
fyrirspurn á netfangið
maggitoll@gmail.com
eða hringt í síma 869-
8101.
Alhliða málningarþjónusta
í Skagafirði
Doddi málari
Starfslið
Dodda
málara
árið 2016.