Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Page 56
36 lífsstíll Helgarblað 12.–15. maí 2017
Hvað gera þau áður
en þau fara að sofa?
Fólkið sem nýtur sérstakrar velgengni deilir með fólki hvað það gerir til að ná sem bestum svefni
Þ
að getur verið þrautin þyngri
að koma öllu sem þarf að gera
í verk á þeim 24 klukkustund-
um sem eru í sólarhringnum.
Flest höfum við ríkum skyld-
um að gegna; vinnan ratar stundum
heim, maki og börn þurfa athygli og
þvotturinn gengur ekki frá sér sjálfur,
svo örfá dæmi séu tekin. Þegar mikið
er að gera eiga margir það til að fara
seinna að sofa á kvöldin og vakna fyrr
á morgnana. Fullorðnir þurfa að sofa
á bilinu sjö til níu klukkustundir á sól-
arhring og ef við fáum ekki nægan
svefn getur það haft neikvæð áhrif á
heilsuna. Það skiptir því miklu máli
að sofa vel. Business Insider fjallaði
fyrir skemmstu um venjur nokkurra
einstaklinga sem njóta mikillar vel-
gengni áður en þeir fara að sofa. Þetta
eru einstaklingar sem eru í mjög
krefjandi starfi og hafa nóg að gera. n
Svefn Það skiptir máli að fá góðan nætursvefn. Mynd 123rf.coM
Les í klukkustund
Bill Gates, stofandi Microsoft og ríkasti
maður heims, finnur sér alltaf tíma til að lesa
áður en hann lokar augunum á kvöldin. Hann
sagði í viðtali við Seattle Times að hann lesi
í klukkutíma og það skipti engu máli hvað
klukkan er þegar lesturinn hefst. Hann segist
lesa um eina bók á viku að jafnaði.
Horfir á
sjónvarpið
eða les bók
Barack Obama, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, var
líklega í einu mest krefjandi
starfi heims í þau átta ár sem
hann gegndi embætti. Hann
þurfti stundum að vera á fótum
langt fram yfir miðnætti,
starfs síns vegna. En Obama
sagði í viðtali við Rolling
Stone-tímaritið að
þegar tími gæfist til
myndi hann slaka á
með lestri á góðri
bók eða með
því að horfa á
spjallþáttinn
The Daily
Show.
Fer í nudd
Leikkonan Gwyneth
Paltrow segist hugsa
jafn mikið um að fá
góðan nætursvefn
og hún hugsar um að
fá góða næringu og
hreyfingu. Paltrow,
sem auk þess að sinna
leiklistinni, rekur
lífsstílsvefinn Goop,
segist ekki borða neitt
frá átta að kvöldi
til klukkan átta að
morgni næsta dags. Þá
segist Paltrow helst af
öllu vilja fá fóta- eða
höfuðnudd áður en
hún sofnar. Þannig nær
hún góðri slökun og
sofnar fljótt og vel.
Útbýr lista
Kenneth Chenault, stjórnarformaður
American Express í Bandaríkjunum, hefur
nóg af verkefnum á sinni könnu. Í viðtali við
lífsstílsritið Fast Company sagðist hann
leggja það í vana sinn að skrifa niður lista
yfir þá hluti sem hann vill áorka daginn eftir.
Sniðug leið til að leiða hugann að næstu
verkefnum.
Slekkur á
símanum
Sheryl Sand-
berg, fram-
kvæmdastjóri
hjá Facebook,
passar upp á
það að fá góðan
og samfelldan
nætursvefn. Hún
sagði í viðtali við
USA Today ekki alls fyrir löngu að
hún leggi það í vana sinn að slökkva á
farsíma sínum áður en hún sofnar. Hún
viðurkennir að það geti verið óþægileg
tilfinning en með þessu tryggir hún að
ekkert trufli svefninn.
Fer í heitt bað
Arianna Huffington, stofnandi og fyrr-
verandi aðalritstjóri Huffington Post, þekkir
af eigin raun hvaða áhrif mikið vinnuálag
og lítil hvíld getur haft í för með sér. Hún
hneig eitt sinn niður á skrifstofu sinni og
kinnbeinsbrotnaði, en yfirliðið var rakið til
ofþreytu. Eftir þetta passar Arianna að fá
nægan svefn og sefur hún að jafnaði sjö til
níu tíma á hverri nóttu. Hún slekkur á öllum
rafmagnstækjum, fer í heitt bað og les bók
áður en hún sofnar.
Stundar
hug-
leiðslu
Oprah Winfrey
vinnur stundum
langa vinnudaga
enda hefur hún
mörg járn í eldinum.
Hún segist þó alltaf
finna sér tíma til
hugleiðslu á hverjum
degi, tvisvar á dag. Hún
hugleiðir áður en hún fer
að sofa en með því
nær hún góðri slökun
sem hjálpar henni
að festa svefn fyrr
en ella. Þess má
geta að Oprah
lét þróa fyrir sig
sérstakt hug-
leiðslusmáforrit
sem nálgast má
fyrir snjallsíma.