Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Qupperneq 70
50 fólk Helgarblað 12.–15. maí 2017
Hvaða land vinnur?
Hvað segja fyrri keppendur um Eurovision?
F
yrri undankeppni Eurovision
í ár fór fram síðastliðinn
þriðjudag og ljóst er að Ísland
mun ekki keppa á morgun,
laugardag, í aðalkeppni
Eurovision. Það breytir því þó ekki að
Eurovision er alltaf veisla fyrir aðdá-
endur keppninnar, bæði hér heima
og erlendis. Við fengum nokkra fyrri
keppendur til að segja frá sinni þátt-
töku, uppáhaldslögum og hvort þau
myndu vilja keppa aftur. n
Stefán Hilmarsson
Lög: Sókrates (1988, 16. sæti) og Nína (1991, 15. sæti)
Uppáhaldslag: Keppnin hefur alið af sér fjölmörg prýðileg lög, bæði hérlend og erlend.
Ég get nefnt Aprés toi, Un jour un enfant, Ding-a-dong, Ég lifi í draumi, Karen, Sóley, In a
Moment like this, L'oiseau et l'enfant, Romeo. Mér fannst mest gaman þegar allir sungu á
sínu tungumáli, var til dæmis alltaf svag fyrir kýpversku lögunum og má til með að nefna hið
dramatíska Ime Anthropos Ki Ego, sem var í sömu keppni og Nætur sem Sigga söng.
Hvað er eftirminnilegast við þína keppni? Ferðalagið með Nínu 1991 er ein eftir-
minnilegasta för sem ég hef farið, 100% skemmtun frá upphafi til enda. Reyndar var svo
mikið hlegið í þeirri ferð, að röddin var tæp þegar á hólminn kom. Ferðin 1988 var erfiðari,
enda var ég þá ungur og ansi óreyndur. Ég hef líka tekið þátt sem höfundur og bakradda-
söngvari og eru þær ferðir skemmtilegar í minningunni, einkum ferðin með Selmu til Jer-
úsalem 1999, en eins og flestir vita, þá munaði þar minnstu að frækilegur sigur hefðist. Það
rifjast nú upp, að hinn frægi úrslitaleikur Manchester United og Bayern Munchen fór fram
á meðan við vorum í Ísrael, minnist ég þess að hafa horft á þá háspennu á reykmettaðri
knæpu í miðbænum, hvar heldur var fjörlegt á lokamínútunum, enda gyðingarnir eðlilega
flestir á bandi enska liðsins. Ég er reyndar Arsenal-maður, en gat samglaðst áhangendum
Rauðu djöflanna þessa kvöldstund.
Hvaða þjóð vinnur í ár? Ég hef undanfarin ár lítið fylgst með upptakti keppninnar, enda
er hún orðin svo yfirgripsmikil að maður nær varla utan um þetta. Það var einfaldara þegar
lögin voru um eða yfir 20 talsins. En mér skilst að Ítalíu sé spáð öruggum sigri og því fagna
ég, enda aðdáandi Ítalíu. Ég hef heyrt sænska lagið og ekki kæmi á óvart ef það næði langt,
enda Svíarnir ólseigir og margfaldir sigurvegarar þessa stórmerkilega móts.
Værir þú til í að taka aftur þátt í Eurovision? Ég hef engan hug á að taka þátt sem
aðalsöngvari aftur, enda er þetta ungra manna sport.
Lag: JE NE SAIS QUOI (19. sæti)
Uppáhalds Eurovision-lag, íslenskt og/eða erlent: „Já, hérna … þetta er erfitt! Elska svo ótrúlega mörg Júró lög … segi í
þetta skiptið KAREN sem ég trúi staðfastlega að hefði gert frábæra hluti í þessari keppni á sínum tíma og það erlenda lag sem ég
elska meira en avókadó er framlag Júgóslava 1986, flytjandinn heitir Doris og lagið „Željo moja.“
Hvað er eftirminnilegast við þína keppni? „Eftirminnilegast við mína keppni er fólkið. Fólkið mitt sem var dýrðin ein, fólkið
sem ég kynntist og er ennþá í sambandi við, fólkið sem ég kynntist síðar úti um allan heim eftir að dyrnar opnuðust – minn mesti
fjársjóður í lífinu er fólk. Þegar ég bjó í Chile með fjölskyldunni (sem var „by the way“ bein afleiðing af Eurovision) að þá eignaðist ég
dásamlega vini fyrir lífstíð, núna var ég að byrja á nýjum vettvangi og er nú þegar búin að eignast vini til lífstíðar. Fólk er málið.“
Hvaða þjóð heldur þú að vinni í ár? „Ég hugsa að Ítalir taki þetta í ár en persónulega er ég hugfangin af Portúgal. Portúgalar
eru „the underdog“ í þessari keppni eins og við Íslendingar og það gleður mig mikið að sjá þá gera svona vel.“
Værir þú til í að taka aftur þátt í Eurovision? „Já, allan daginn, en að því gefnu að ég sé með gott lag og tilfinningin sé rétt,
þetta er svo ótrúlega gaman og gefur manni svo mikið á allan hátt. Þetta er erfitt og krefjandi verkefni sem þarf að klára og ég fíla
þannig „challenge“, maður fer í þessa keppni með hjartanu og hausinn í lagi og þá er þetta bara hreinn kærleikur.“
Regína Ósk
Lag: This is my life ásamt Friðriki
Ómari (2008, Serbía,14. sæti í
aðalkeppninni)
Uppáhalds Eurovision-lag
íslenskt og/eða erlent: „Þau
eru svo mörg!, til dæmis Wild
Dances, Non Ho l'eta, Wadde
Hadde, Only Teardrops, Euphoria.“
Hvað er eftirminnilegast við
þína keppni? „Að komast upp úr
undankeppninni í fyrsta sinn fyrir
hönd Íslands.“
Hvaða þjóð heldur þú að
vinni í ár? „Ítalía en Portúgal og
Búlgaría verða rétt á eftir.“
Værir þú til í að taka aftur
þátt í Eurovision? „Ég segi
aldrei nei, en það er ekki á
planinu.“
Einar Ágúst
Lag: Tell me, ásamt Telmu (2000,
tókum 12. sætið)
Uppáhalds Eurovision-lag
íslenskt og/eða erlent: „Tell me og
Non ho l'età.“
Hvað er eftirminnilegast við þína
keppni? „Ólýsanleg skemmtun í alla
staði, you have to be there og fag-
mennska þegar kemur að allri umgjörð,
innviðum og tækni.“
Hvaða þjóð heldur þú að vinni í ár?
„Ég hef bara ekki heyrt öll lögin þannig ég
hef bara ekki myndað mér skoðun. Paper
bar höfuð og herðar yfir allt annað sem ég
hef heyrt að minnsta kosti.“
Værir þú til í að taka aftur þátt
í Eurovision? „Auðvitað. Annars er
þetta reyndar spurning um afskaplegt
'nenn'. Spurning um að nenna allri þessari
loftbólu, viðtölum, böggi og stressi. En
alltaf til í að flytja músík. Alltaf.“
Hera Björk