Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 38
TrausT og
skemmTilegT
sumarparTí
Kristján Baldursson með tvöfalda afmælisveislu:
Kristján Baldursson, lögmaður og eigandi fasteignasölunnar Trausti, bauð nýlega
vinum, vandamönnum og viðskiptavinum í sumarpartí, enda tilefnið ærið: fimm ára
afmæli fasteignasölunnar og 43 ára afmæli Kristjáns. „Já, ef þetta var ekki dagurinn
til að bjóða góðu fólki í gott partí, þá veit ég ekki hvenær hann er,“ segir Kristján.
Fjöldi fólks mætti til að samgleðjast Kristjáni af þessu tilefni og skemmtu sumir þeirra sér
konunglega fram á nótt, enda frídagur
daginn eftir.
Kristján hefur unnið í fasteigna
viðskiptum síðan 2005 og vorið 2012
opnaði hann Trausta. „Til að byrja með
vann ég hér einn, en í dag erum við ell
efu starfsmenn, þar á meðal lögmenn,
skrifstofustjóri og löggiltir fasteigna
salar. Ég var það heppinn að fá inn gott
fólk, eins og til dæmis Bergþóru Heiðu
Guðmundsdóttur lögfræðing, sem
kom hingað fljótlega eftir að ég byrjaði,
og eins Guðbjörgu Sveinbjörnsdóttur
sölustjóra, sem byrjaði fljótlega á eftir
henni. Fyrirtæki eins og Traustinn
stendur og fellur með starfsfólkinu og
ég hef eins og áður segir verið mjög
lánsamur með starfsfólk og hefur þetta
góða fólk hjálpað mér að gera Trausta
að því sem hann er í dag,“ segir Krist
ján ánægður. En í sumarlok mun einnig
verða tilefni til að fagna því þá mun
frumburður Kristjáns koma í heiminn,
en Hrafnhildur Soffía Hrafnsdóttir,
kærasta hans, á von á sér í ágúst.
ragna@dv.is
Fyrsti starFsmaðurinn Bergþóra Heiða
Guðmundsdóttir var fyrsti starfsmaðurinn sem
gekk til liðs við Trausta. Þau hafa átt gott samstarf
og eru góðir vinir.
röggsamar
Bára Daníelsdóttir
skrifstofustjóri stýrði
afmælinu með glæsi-
brag og Bryndís Bára
Eyjólfsdóttir, sem er í
námi til löggildingar
fasteignasala, sá um
að hópurinn syngi
afmælissönginn.
góðir Félagar Garðar Kjartansson
og Kristján eru góðir félagar í bæði leik
og starfi.
Framhald á næstu síðu
Fjör hjá Freyjum Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir,
sölustjóri Trausta, Sólveig Regína Biard, aðstoðarmað-
ur fasteignasala, Marijana Cumba, Guðbjörg Matth-
íasdóttir, lögmaður á Trausta og nemi til löggildingar
fasteignasala, og Fríður Birna Þráinsdóttir. Í bakgrunni
eru Þóra Jónsdóttir og Kristín Stefánsdóttir.