Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 28
Helgarblað 26. maí 2017KYNNINGARBLAÐ4 Útivist
Fagleg þjónusta
fyrir gönguskíðafólk
Craftsport flytur inn fyrsta flokks vörur
Craftsport er ein flottasta útivistarbúðin á landinu, og þó víðar væri leitað.
Eigandinn, Kristbjörn R. Sigurjóns
son, er sjálfur mikið í útivist og
flytur inn útivistarfatnað frá Craft,
gönguskíðavörur frá Madshus
og skíðaáburð frá Rode. Það eru
þónokkrir smásöluaðilar sem selja
Craftvörur á Íslandi og er lista yfir
þá að finna á vefsíðu Craftsport.
„Við sérhæfum okkur í gönguskíð
um, gönguskíðafatnaði og búnaði,
reiðhjólabúnaði og almennum
útivistarbúnaði. Þeir sem koma
hingað segja að hér sé flottasta
hlaupabúðin á landinu, en Craft
framleiðir frábæran fatnað fyrir
hvers kyns útivist,“ segir Kristbjörn.
Fyrsta flokks vörur og þjónusta
Hjá Craftsport fást fyrsta flokks
gönguskíði frá norska fyrirtæk
inu Madshus, sem er eitt stærsta
fyrirtækið í gönguskíðabransanum.
Um er að ræða hágæða göngu
skíði sem henta jafnt í skemmti
göngur og í keppnir. „Ég stunda
sjálfur mikið gönguskíði og hef
verið í þessu í yfir tuttugu ár,“ segir
Kristbjörn. Þegar Kristbjörn er ekki
í búðinni eða á gönguskíðum, situr
hann síður en svo auðum höndum.
Hann stundar einnig mikið hlaup,
göngur og hjólar mikið. Hann
þekkir útivistarvörurnar vel af eigin
reynslu og þykir mikilvægt að þeir
sem koma í búðina í leit að búnaði,
fái góða þjónustu sem hentar þeim
persónulega. „Í Noregi og Svíþjóð
er alla jafna hægt að treysta því
að þegar þú ferð í búð sem selur
skíðabúnað, veit starfsfólkið allt
um vöruna og hefur sjálft reynslu.
Það leiðir til þess að viðskipta
vinurinn fær vöru sem hentar
honum. Þannig er það líka í búðinni
hjá mér,“ segir Kristbjörn. Hann
segist ekki vera að þessu til þess
að einfaldlega selja, heldur vilji
hann að þeir sem leiti til hans haldi
áfram að stunda íþróttina. Það er
mikilvægt að viðskiptavinurinn fái
góðar vörur sem endast vel og eru
þægilegar. „Þú heldur ekki áfram
í sportinu ef þú færð ekki góðan
búnað, það er mikið atriði,“ segir
Kristbjörn.
Frá Madshus fást svokölluð
skinnskíði, en það eru gönguskíði
með skinni undir miðjunni sem
eykur festu og fatt og gerir það
auðveldara að spyrna sér áfram.
„Þessi eru mjög vinsæl í dag og
henta öllum sem vilja stunda
gönguskíði af krafti. Við flytjum
líka inn gönguskíðaskó og stafi
frá Madshus,“ segir Kristbjörn.
Gönguskíðaskórnir eru yfirleitt
hreyfanlegri og léttari en þessir
hefðbundnu svigskíðaklossar. „Svo
erum við með mjög góða skíðastafi
frá Madshus. Markaður fyrir
gönguskíði hefur stækkað stöðugt
vegna aukins áhuga hér á Íslandi.“
Alhliða fatnaður
„Ásamt gönguskíðunum frá Mads
hus þá flyt ég inn fatamerkið Craft,
sem framleiðir ýmsan sportfatnað
en Craft hefur verið með þeim
stærri og betri undanfarin ár í
gönguskíðafatnaði. Gönguskíða
fatnaðurinn er alhliða fatnaður og
hentar því ekki eingöngu í göngu
skíðasportið, heldur einnig vel í
aðra útivist svo sem gönguferðir,
hlaup og reiðhjólamennsku. Fram
an á fatnaðinum er oft vindhlíf
sem tekur vindinn þegar verið er
að renna sér. Hér í búðinni eigum
við til dæmis einar bestu buxurnar
á markaðnum fyrir hjólreiðar á
veturna. Þetta eru í raun göngu
skíðabuxur með vindhlíf framan
á, en henta frábærlega í hlaup og
reiðhjólamennsku. Ég hef lagt mikið
upp úr því að flytja inn það sem ég
veit að virkar og er góð og vönduð
vara,“ segir Kristbjörn
Craftsport er staðsett að
Austurvegi 2, 400 Ísafirði. Opið
er alla virka daga frá 10–18 og á
laugardögum frá 11–13. Sími: 456
3110. Netfang: craftsport@craft.
is. Nánari upplýsingar má nálgast
á vefsíðu Craftsport og Facebook
síðunni.
Hágæða göngu-
skíðavörur.
Útivistarfatnaður frá Craft.
Fyrsta flokks
gönguskíði frá
Madshus.
Nettir gönguskíðaskór frá Madshus. Skíðaáburður frá Rode.
Besta búðin varðandi hlaupavörur. Útivistarfatnaður frá Craft.
Um að gera að viðhalda orkunni á
fjöllum.