Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 56
32 sport Helgarblað 26. maí 2017
K
eppni í Pepsi-deild karla
er komin á fulla ferð og eru
fjórar umferðir búnar. Línur
á toppi og botni deildarinnar
eru byrjaðir að skýrast og
ljóst má vera að mikil spennan er
framundan. Deildin byrjar líka með
látum og er skemmtanagildi hennar
mikið. Fólk sem mætir á völlinn fær
mikið fyrir peninginn og greinilegar
framfarir eru frá síðasta tímabili sem
var á köflum mjög leiðinlegt.
Á toppi deildarinnar eru Stjarnan
og Valur með tíu stig en mikið fjör
hefur verið í leikjum liðanna, bæði
lið hafa tjaldað miklu til fyrir tíma-
bilið og það er ljóst að þau ætla sér að
berjast á toppi deildarinnar fram eft-
ir öllu. Lið nýliða KA og Grindavík-
ur hafa svo bæði farið vel af stað og
eru með sjö stig. Sjaldan hafa nýliðar
virkað jafn öflugir og á þessari leiktíð
þar sem bæði lið hafa farið á kostum.
Stórveldin valda vonbrigðum
Stórveldin KR og FH hafa svo valdið
vonbrigðum en FH er með fimm
stig á meðan KR hefur sex, þessi lið
eigast við á sunnudag og liðið sem
tapar þeim leik er í vondum málum.
Breiðablik er aðeins með þrjú stig
líkt og Víkingur Ólafsvík og Víkingur
R, en ÍA er eina lið deildarinnar sem
er án stiga.
Búið er að skipta um þjálfara hjá
tveimur liðum, Arnar Grétarsson
var rekinn frá Breiðabliki og Milos
Milojevic hætti hjá Víkingi. Milos var
ekki lengi án starfs því hann tók við
Breiðabliki á meðan Víkingar réðu
Loga Ólafsson til starfa.
Eftir þessar fjórar umferðir er
gaman að skoða hvaða leikmenn
hafa staðið sig hvað best í deildinni
og hér á eftir má sjá þá tíu sem
hafa skarað fram úr það sem af er
tímabili. n
10 Bestu leiKmenn
PePsi-deildarinnar
n miklu meira fjör er fyrir fólkið í stúkunni í ár n tvö stórlið eru í klípu
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Tíu sem skarað hafa fram úr það sem af er
Daníel Laxdal (Stjarnan)
n Kletturinn í vörn Stjörnunnar verður betri með
hverju árinu. Daníel byrjar þetta tímabil ótrúlega vel og
er líklega besti leikmaður deildarinnar í fyrstu fjórum
umferðunum. Leikur Daníels þroskast á hverju ári og í
ár kemur hann fljúgandi inn í deildina.
Hilmar Árni
Halldórsson (Stjarnan)
n Ótrúlega duglegur við að skora og búa til mörk.
Hilmar Árni hefur stigið stór skref síðustu ár og ef fer
sem horfir mun hann enda í atvinnumennsku á allra
næstu árum. Er orðinn talsvert duglegri leikmaður en
hann var og byrjaður að spila öflugri varnarleik. Hann
kemur svo alltaf að mörkum í Garðabænum.
Sigurður Egill Lárusson (Valur)
n Ef horft er yfir síðustu tímabil í Pepsi-deildinni er
Sigurður Egill líklega einn besti leikmaður deildar-
innar. Hefur tekið miklum framförum eftir að hann
fór að taka fótboltann alvarlega. Hann talar sjálfur
reglulega um að hann sé byrjaður að æfa betur og
hugsa betur um mataræðið. Það skilar sér innan vallar
hjá Sigurði.
Dion Acoff (Valur)
n Margir efuðustu um að Dion gæti spilað með einu af
betri liðum deildarinnar eftir að hafa verið stór fiskur í
lítilli tjörn hjá Þrótti. Hann ógnar hins vegar sífellt með
hraða sínum og krafti og hefur styrkt sóknarleik Vals
með miklum ágætum.
Steven Lennon (FH)
n Fimm mörk í fjórum leikjum er frábær tölfræði,
framherjinn frá Skotlandi hefur byrjað með látum.
Hann setti tóninn í fyrsta leik með þrennu gegn ÍA og
hefur haldið áfram að skora. Er í betra hlaupaformi
en í fyrrasumar og létti sig talsvert í vetur, það virðist
henta Lennon vel að vera léttari og það skilar sér í fleiri
mörkum. Til gamans má geta þess að Lennon skoraði
sex mörk í Pepsi-deildinni í fyrrasumar.
Hallgrímur Mar
Steingrímsson (KA)
n Nýliðar KA hafa byrjað vel og ein stærsta ástæða
þess er Hallgrímur Mar, fæddur árið 1990 og er að
verða stjarna í efstu deild seinna en flestir. Flestir sem
fylgjast vel með fótbolta hafa vitað af hæfileikum
Hallgríms síðustu ár, sem hann hefur að mestu sýnt
í næstefstu deild. Nú þegar KA er mætt aftur í deild
þeirra bestu eftir langa fjarveru er Hallgrímur byrjaður
að sýna fólki vikulega að hann sé einn hæfileikaríkasti
leikmaður deildarinnar. Með frábærar spyrnur sem
bæði skila sér í stoðsendingum og mörkum.
Guðmann Þórisson (KA)
n Fyrirliði KA hefur heldur betur sannað af hverju
margir tala um hann sem besta miðvörð íslenska
fótboltans. Margir voru hissa þegar FH ákvað að losa
sig við Guðmann í fyrrasumar en hann ákvað þá að
skella sér til KA og hjálpa liðinu upp. Guðmann var
langbesti varnarmaður 1. deildarinnar í fyrra og gæti
orðið besti varnarmaður Pepsi-deildarinnar í sumar.
Hefur fínan hraða, góðan styrk og er orðinn miklu meiri
leiðtogi en áður. Hatar að tapa og það hugarfar virðist
hafa smitast í lið KA.
Þórður Ingason (Fjölnir)
n Markvörðurinn öflugi er að bæta sig mikið þessa
dagana og ekki virðist vera langt í að Þórður verði
besti markvörður landsins. Mikið var talað um Þórð á
hans yngri árum og var hann gríðarlegt efni. Stjarna
hans varð þó ekki jafn skær og flestir bjuggust við en
vandræði hans utan vallar höfðu þar áhrif. Þórður tók
vel til í sínum málum fyrir tæpum tveimur árum þegar
hann hætti að drekka áfengi. Síðan þá hefur ferill
Þórðar farið á flug og hann hefur byrjað þetta sumar
frábærlega.
Andri Rúnar Bjarnason (Grindavík)
n Framherjinn í Grindavík hefur nánast tryggt liðinu
sex stig einn síns liðs og það eru dýrmæt sex stig fyrir
nýliða í deildinni. Grindavík er aftur á meðal þeirra
bestu og Andri Rúnar var öflugur fyrir liðið í 1. deildinni
í fyrra, hann byrjar svo með látum þetta sumarið.
Andri skoraði þrennu gegn Skagamönnum á föstudag
og gæti orðið ein af stjörnum Pepsi-deildarinnar í
sumar.
Hafsteinn Briem (ÍBV)
n Menn í Eyjum eru byrjaðir að kalla hann „límið“.
Hafsteinn er kletturinn í liði ÍBV og langmikilvægasti
leikmaður liðsins. Hann byrjaði mótið með því að fá
rautt spjald gegn Fjölni og missti af næsta leik liðsins.
Það var tapleikur gegn Stjörnunni þar sem Eyjamenn
töpuðu 5-0. Þá varð flestum ljóst að Hafsteinn er mikil-
vægasti hlekkurinn í liði ÍBV. Hann hefur spilað síðustu
tvo leiki, gegn Víkingi Reykjavík og Víkingi Ólafsvík, og
ÍBV vann þá leiki báða og hélt marki sínu hreinu.
Guðmann Þórisson
Fyrirliði KA hefur heldur
betur sannað af hverju
margir tala um hann
sem besta miðvörð
íslenska fótboltans.
Næsta umferð
Laugardagurinn 27. maí:
14.00 KA - Víkingur R.
16.00 ÍBV - ÍA
Sunnudagurinn 28. maí:
18.00 Breiðablik - Víkingur Ólafsvík
19.15 Fjölnir - Stjarnan
19.15 Grindavík - Valur
20.00 KR - Valur