Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 30
Fyrir rúmu ári fékk ég sjaldgæfan níu tíma svefn, vaknaði full af orku og dreif mig í að sækja um
og fá réttindin til að halda hátíðina,
svona áður en ég hætti við, og þess
vegna er þessi fjögurra daga hátíð
hér um helgina á Hótel Nordica og
í Iðnó,“ segir Edda. „Midnight Sun
Salsa er langþráður draumur hjá mér
til nokkurra ára, en ég og vinir mínir
í Salsa Ísland höfum farið og dansað á
svona hátíðum erlendis.“
Fjögurra daga hátíð
„Það eru allir velkomnir að koma, sjá
og upplifa, hvort sem er til að dansa
salsa eða ekki,“ segir Edda. „Níu er-
lendir gestakennarar koma til landsins,
dj-arar og fleiri, böll verða haldið bæði
í Iðnó og á Hilton og hápunkturinn
er Norðurlandmót í salsa og bachata
sem haldið verður á Hilton laugardags-
kvöldið 27. maí.
Við verðum ekki með tíma í boði
fyrir byrjendur, en öllum gefst kostur
á að koma á ball á laugardaginn, þar
verðum við með tvö dansgólf. Keppnin
sjálf á laugardag er síðan þvílík sýning,
þar etja níu lið kappi, þar af fjögur
erlend. Síðan tekur ballið við þar sem
allir sem hafa gaman af að dansa við
aðra eru velkomnir.“
Salsa er félagsskapur fyrst og fremst
„Það sem er mest heillandi við salsa er
að þetta er félagslíf, af því að salsa er
spuni, ekki fyrirfram ákveðin rútína
eins og til dæmis í samkvæmisdönsum.
Þar er parið búið að æfa ákveðna rútínu
sem það getur bara dansað saman,“
segir Edda. „Þegar þú mætir á námskeið
geturðu skráð þig, þarft ekki að mæta
með félaga. Þar eru kennd grunnspor
sem eru eins og hlutlausi gírinn í dans-
inum. Herrunum eru kenndar ákveðnar
bendingar og stýritækni, þannig að
með ákveðinni hreyfingu á ég að snúa
til hægri og með annarri hreyfingu til
vinstri. Maður lærir ákveðið tungumál
í dansi, sem má svo nota hvar sem er og
með hverjum sem er. Síðan er maður
bara kominn í það að fara út að dansa
einu sinni í viku.“
Edda segir að það sem geri salsa
svo vinsælt sé að ekki sé bara um eitt
námskeið að ræða, heldur verður salsa
hluti af félagslífi þeirra sem það stunda.
„Í Reykjavík erum við með vikuleg
danskvöld í Iðnó á miðvikudögum. Ég
er ekki alin upp sem dansari, byrjaði
sem unglingur að dansa og ég var orðin
þrítug þegar ég lærði salsa. Salsa er fyrir
venjulegt fólk.“
Salsa Ísland
Í rúman áratug hefur Edda rekið Salsa
Ísland sem býður upp á námskeið á
fimm getustigum og því er hægt að
mæta á námskeið í fimm ár, án þess að
endurtaka sig. Margir hafa gert það og
á salsakvöldin í Iðnó mæta að meðaltali
80–100 manns.
„Ég kynntist salsa erlendis og þegar
ég kom heim dauðlangaði mig að dansa
salsa hér og því kom ég því af stað hér
heima,“ segir Edda.
„Salsa er svo stórkostlegt og það
er svo gaman að fara út og kynnast
fjölda fólks. Margir sem stunda salsa
StærSti
lúxuSinn
er SalSa
alla daga
Edda Blöndal færði
Salsa til Íslands:
Edda Blöndal er að eigin sögn dellumanneskja, sem heillaðist af salsa á keppnis
ferðalagi í karate. Hún færði það hingað til lands og í dag er salsa allt í senn
atvinna hennar, áhugamál og félagslíf. Og um helgina stendur hún fyrir glæsilegri
salsahátíð, Midnight Sun Salsa, sem fer fram á Hilton og í Iðnó.
OrkubOlti
Edda er einstakur
orkubolti sem
færði Íslendingum
salsa fyrir rúmum
áratug. Vikulega
mæta 80–100
manns á danskvöld
í Iðnó, hún heldur
námskeið og er með
sýningarhópa sem
keppt hafa og unnið
erlendis. Nú um
helgina er hún drif-
krafturinn í fjögurra
daga salsahátíð.
Mynd Sigtryggur Ari