Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 45
Helgarblað 26. maí 2017 KYNNINGARBLAÐ Útivist 5 Sársaukinn gleymist en minningin um afrekið fylgir manni ævilangt Gunnlaugur Auðunn Júlíus-son er einn þekktasti lang-hlaupari landsins og hefur getið sér frægð fyrir þátttöku sína í svokölluðum ofurhlaupum þar sem hundruð kílómetra eru lögð að baki. Athyglisvert við feril Gunnlaugs, sem í dag er 65 ára, er að hann byrjaði ekki að hlaupa fyrr en vel upp úr fertugu og hljóp sitt fyrsta maraþon þegar hann var 48 ára. „Á þessum tíma þótti mörgum fásinna að svona gamall maður ætlaði að hlaupa maraþon,“ segir Gunnlaugur. En er það ekki bölvuð vitleysa? „Jú, jú. Sú kenning er til að þegar menn eru yngri þá séu þeir sneggri og sprettharðari og leiti þá frekar í styttri hlaup. Þegar menn eldast þá eykst seiglan í þeim og úthaldið. Það hægir jafnframt á þeim og þeir leita í lengri hlaupin.“ Gunn- laugur bætir við að andlegt þrek aukist oft með árunum en jafn- framt aukist líkamleg seigla með áratugalangri þjálfun líkamans. Þú ert lifandi dæmi um að fólk geti byrjað að hlaupa á miðjum aldri og orðið langhlauparar. En hlýtur ekki samt að vera eitthvað óvenjulegt við þig? Fyrir flesta getur það varla verið raunhæft að stefna að því að keppa í 200 eða 400 kílómetra hlaupi? Gunnlaugur hlær við: „Sko, mér finnst ég vera voðalega venjulegur. Þetta er eitthvað sem þróaðist stig af stigi hjá mér og ég held að mín mesta gæfa sem hlaup- ari hafi verið sú hvað ég byrjaði rólega. Í nokkur ár hélt ég mig við tíu kílómetra og þar undir. Þannig byggði ég skrokkinn upp hægt og rólega. Svo eftir nokkur ár hlunk- aðist ég í hálfmaraþon. Tveimur árum síðar var það maraþon. Eftir það vaknaði löngunin í að hlaupa Laugaveginn. Eftir að því markmiði var náð fékk ég veður af því að það væru í boði enn lengri hlaup. Svona þróaðist þetta nú bara, eitthvað sem í upphafi hefði verið algjörlega óraunhæft var síðar orðið að raunhæfu markmiði.“ Ég hef séð haft eftir þér að mataræði skipti miklu máli fyrir árangur þinn. „Já, ég byrjaði að taka til í mataræðinu fyrir um tíu árum. Ég held mig við kjöt og fisk, grænmeti og ávexti. Þegar ég er að æfa mikið sneiði ég alveg hjá hveiti, sælgæti og öllu ruslfæði. Kolvetni eru svo auðleysanleg, þetta er eins og munurinn á bensíni og dísil. Bensínið fuðrar upp en dísil er svo miklu lengur að brenna. Þegar maður hleypur þessu löngu hlaup er einfaldlega best að vera saddur. Þá er líkaminn full- ur af orku. En ef maður er svangur þá er þetta bara eins og það leki úr dekkj- unum undir bíl og keyrt sé á felgunum. Þegar ég hljóp Thames Ring á Bretlandi, 400 kílómetra hlaup sem tók á fjórða sólarhring, þá man ég að það voru pítsur í boði á drykkjar- stöðvunum og það var bara eins og að gapa upp í vindinn, engin næring. Það sem gildir er kjöt, fita og prótein og stundum dökkur bjór en kolvetnin í honum eru góð fyrir langhlaupara.“ Gunnlaugur bendir á að hollt og rétt mataræði auki ekki aðeins árangur meðan á hlaupi stendur heldur hafi mikil áhrif á hve lengi líkaminn er að jafna sig eftir hlaup. Fyrir hann er fituríkt, próteinríkt og kolvetnasnautt mataræði lykillinn. Aðspurður játar hann að hluti af því að þrauka ofurhlaup sé að þola sársauka: „Maður hugsar með sér að hann sé tímabundinn en upplifunin af hlaupinu og afrekinu er eilíf. Þó að einhverjar blöðrur myndist á fótunum þá eru þær grónar fyrr en varir en upplifunin af afrekinu fylgir manni það sem eftir er. Þetta verður aldrei frá manni tekið: að fara út í óvissuna og sigrast á þrautinni,“ segir Gunnlaugur og samsinnir því að þetta hljóti að vera sambærilegt við tilfinningu fjallgöngugarpsins sem klífur hinn hæsta tind. Hér eru að lokum hollráð Gunn- laugs til þeirra sem vilja byrja að stunda reglubundna hreyfingu: 1. Það geta allir miklu meira en þeir halda. 2. Maðurinn er gerður til að hreyfa sig. 3. Forsenda fyrir árangri er að setja sér markmið og byggja upp aga til að ná settum markmiðum. 4. Það er engin þörf á að hlaupa til að byggja upp þrek og úthald. Það er nægilegt að finna góða brekku og ganga rösklega upp hana. Það tekur líka í! 5. Heilnæmt mataræði er forsenda svo margs, til dæmis almenns heilbrigðis og vellíðunar. Spjallað við Gunnlaug Auðun Júlíusson ofurlanghlaupara Myndir: Gunnlaugur Júlíusson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.