Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 72
Helgarblað 26. maí 2017
37. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS
SENDUM ÚT UM ALLT LAND
Gaf enginn
Dóra DNA
auga?
Glóðaraugu á
lokahófi HSÍ
n Lokahóf HSÍ fór fram með
pompi og prakt í Gullhömrun í
Grafarvogi síðastliðið miðviku-
dagskvöld. Dagskráin var með
hefðbundnu sniði, veislumatur,
verðlaunaafhendingar og gam-
anmál. Veislustjóri var skemmti-
krafturinn Halldór Halldórsson,
betur þekktur sem Dóri DNA.
Handboltamenn eru þekktir fyrir
að taka átökum fagnandi, aðal-
lega innan vallar, og því var Dóri
við öllu búinn. Hann tilkynnti
um verkefnið á Twitter-síðu sinni
og bætti við: „Er að hugsa um að
láta setja á mig tvö
glóðaraugu fyrir-
fram“. Heimildir
DV herma að Dóri
hafi sloppið við að
vera laminn sem
þykir krafta-
verki næst.
Bölvun Blöndals
brotin
n Aðdáendur Manchester
United supu hveljur í vikunni
þegar í ljós kom að sjónvarps-
maðurinn Auðunn Blöndal yrði
meðal áhorfenda á úrslitaleik
Evrópudeildarinnar í Stokk-
hólmi, þar sem enska liðið
mætti hollenska liðinu Ajax.
Auðunn hefur löngum verið
talinn óheillakráka hin mesta
þegar kemur að gengi Rauðu
djöflanna. Til marks um það
eru um 1.200 manns meðlimir
í Facebook-hópnum „Bönnum
Auðunn Blöndal á Old Trafford“
sem var stofnaður fyrir nokkrum
árum. En Manchester United
vann 2-0 sigur og
Auðuni var sýnilega
létt. „Ég sagði þér að
gamli væri orðinn
happa aftur,“ sagði
hann á Facebook-
síðu vinar síns
sem fagnaði
sigrinum.
Þórdís Elva hitti
Geenu Davis
n Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
var með stjörnur í augum þegar
hún flutti inngangsræðu á ráð-
stefnu í Sydney í Ástralíu á
dögunum. Ástæðan var að
bandaríska leikkonan og kven-
réttindabaráttukonan Geena
Davis var meðal viðstaddra.
Þórdís Elva, sem vakið hefur
mikla athygli fyrir bók sína South
of Forgiveness undanfarið, grein-
ir frá kynnum sínum af Davis á
Instagram þar sem hún birtir
myndir af þeim stöllum saman
auk eins konar tékklista yfir
hluti sem hún hafi afrekað þetta
kvöld. Það fyrsta var að flytja er-
indi sitt í návist Davis, næsta var
að gera það án þess að vitna í
leiðinni linnulaust í kvikmyndina
Thelmu & Louise, og
loks náði hún að
hrósa leikkonunni
heimsþekktu fyrir
frábært starf í bar-
áttunni fyrir jafn-
rétti kynjanna
með Geena
Davis Institute
on Gender in
Media.
Ronaldo og Reagan
Prófessor í íslensku segir hallærisheitunum í tungumálinu stríð á hendur í hæðni
E
iríkur Rögnvaldsson, prófessor
í íslensku við Háskóla Íslands,
hefur að undanförnu gagnrýnt
notkun fyrirtækja og annarra
aðila á enskum frösum við markaðs-
setningu. Blöskrar Eiríki andvaraleys-
ið þegar kemur að varðveislu tungu-
málsins og þykir ekki mikið til um
þær skýringar sem hann hefur fengið,
þegar hann hefur leitað eftir þeim.
Þannig fannst Eiríki ekki mikið
til um nafngift vöru- og þjónustu-
sýningar sem fram fór í Laugardals-
höll um síðustu helgi undir nafninu
„ Amazing Home Show“. Sendi Eiríkur
forsvarsmönnum hátíðarinnar tóninn
í skilaboðum og bað um skýringar. Að-
standendur hennar svöruðu því til að
niðurstaða þeirra væri sú að enska
heitið gerði betur grein fyrir innihaldi
sýningarinnar en sambærileg íslensk
heiti. Eiríkur hefur nú tekið þessa
röksemd gilda og segist hafa breytt
nafni sínu í Enrico Ronaldo. „ Hljómar
betur og er miklu markaðsvænna,“
skrifar Eiríkur á Facebook, uppfullur
af hæðni.
En Eiríkur er ekki sá eini sem
gerir stólpagrín að enskum heitum
fyrirtækja og viðburða. Fjöldi fólks
tekur undir með Eiríki og velt-
ir því upp hvernig hægt væri að
gera nöfn þess meira „töff og
söluvænni“ í athugasemdum á
síðu hans. Þannig veltir rithöfund-
urinn Ingunn Snædal því upp hvort
hún gæti tekið upp nafnið Ingrid
Snickerdoodle og Gauti Kristmanns-
son, prófessor í þýðingafræðum,
hyggst nota þýsku útgáfuna af nafni
sínu, Goethe von Christmann.
En Eiríkur er ekki sá eini í sinni fjöl-
skyldu sem sér tækifærin í því að taka
upp alþjóðlegra nafn. Það gerir systir
hans, matgæðingurinn og matreiðslu-
bókahöfundurinn Nanna Rögnvaldar-
dóttir, einnig. Nanna segir þannig á
Facebook að hún sé sannfærð um að
nafnið hafi alla tíð staðið því fyrir þrif-
um að hún yrði heimsfrægur metsölu-
höfundur. Því sé hún að velta því fyrir
sér að taka upp markaðsvænna nafn
og „fara að heita Nancy Reagan“. n
freyr@dv.is
Enrico, áður Eiríkur
Eiríkur Rögnvaldsson
er ekki hrifinn af mark-
aðssetningu íslenskra
fyrirtækja á enskri
tungu. Mynd Sigtryggur Ari
nancy, áður nanna Nanna
Rögnvaldardóttir er sannfærð
um að hún væri löngu orðin
heimsfrægur matreiðslu-
bókahöfundur, ef ekki væri fyrir
nafnið. Mynd ÞorMAr Vignir gunnArSSon