Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2017, Page 16
16 Helgarblað 2. júní 2017fréttir - erlent Alhliða veisluþjónusta Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 | Reykjanesbæ | Sími: 421 2630 | kokulist@kokulist.is Eingöngu fyrsta flokks hráefni Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir Gerðu daginn eftirminnilegan l li veisl j st Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is Eingöngu fyrsta flokks hráefni Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir i fti i il Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming n Sekta foreldra sem bólusetja ekki börn sín n Leikskólar tilkynni forráðamenn til yfirvalda Þ ýsk stjórnvöld hafa skorið upp herör gegn foreldrum sem velja að bólusetja ekki börn sín í ljósi mislinga- faraldurs í landinu sem þegar hefur kostað nokkur manns- líf. Heilbrigðisráðherra Þýskalands boðar herta löggjöf sem tekur gildi strax í næsta mánuði þar sem and- stæðingar bólusetningar geta átt yfir höfði sér þungar sektir. „Það getur enginn með réttu ráði hunsað lengur endurtekin dauðsföll af völdum mislinga,“ sagði Hermann Gröhe, heilbrigðisráðherra Þýska- lands, í samtali við dagblaðið Bild á dögunum. Í burðarliðnum er lagafrumvarp sem herðir verulega á löggjöf varð- andi bólusetningar og ber með sér að hægt verði að sekta foreldra og forráðamenn barna um allt að 2.500 evrur, eða sem nemur 280 þús- und krónum, neiti þeir að bólusetja börnin sín. Eftirlitshlutverk leikskóla Leikskólar munu leika lykilhlut- verk í eftirfylgni með hinni hertu löggjöf þar sem stjórnvöld vilja að skólar tilkynni um alla foreldra eða forráðamenn sem ekki geta fram- vísað læknisvottorði fyrir bólusetn- ingu barna sinna. Geri þeir það ekki getur það þýtt að barninu verði vikið úr skóla samkvæmt hinum endur- skoðuðu lögum sem búist er við að taki gildi, sem fyrr segir, strax í næsta mánuði. Þriggja barna móðir í Essen í Þýskalandi lést eftir að hafa smitast af mislingum í síðustu viku og var það eitt af nokkrum dauðsföllum á undanförnum misserum sem tengja má við einn af þeim mörgu sjúk- dómum sem bólusett er fyrir. Sláandi tölfræði Tölfræðin í Þýskalandi er nokkuð sláandi og gefur ráðamönnum tilefni til að tala um faraldur. Um miðjan apríl síðastliðinn voru 410 staðfest mislingasmit í landinu, samanborið við 325 allt árið í fyrra samkvæmt töl- fræði Robert Koch Institute í Þýska- landi. Stofnunin leggur sömuleiðis til að auk barna ættu allir fullorðnir Þjóðverjar og íbúar Þýskalands sem fæddir eru eftir 1970 að láta bólu- setja sig fyrir mislingum. Jafnvel þótt þeir hafi verið bólusettir sem börn, þá þurfi að endurnýja. Herör gegn kreddum á Ítalíu Mislingar hafa valdið usla víðar og á Ítalíu hafa þrisvar sinnum fleiri mislingatilfelli verið staðfest það sem af er þessu ári en allt árið í fyrra. Ríkisstjórnin greip til þeirra aðgerða að skylda foreldra og for- ráðamenn barna til að bólusetja börnin sín fyrir tólf algengum sjúk- dómum, áður en börnin fengju inn- göngu í ríkisskóla á Ítalíu. Á Ítalíu hafa ráðamenn og sérfræðingar þurft að skera upp herör gegn því sem kallað hefur verið „andvísinda- legar kenningar“ um afleiðingar bólusetninga, sem reglulega láta á sér kræla. Þessar kenningar hafa náð til fólks með þeim afleiðingum að bólusetningartíðni á Ítalíu hefur fallið langt undir þau viðmið sem talin eru örugg til að koma í veg fyrir faraldur hinna ýmsu smitsjúkdóma. Þessar andvísindalegu kenningar eru sem fyrr hinar margafsönnuðu fullyrðingar um að bólusetningarlyf tengist með einhverjum hætti ein- hverfu í börnum. Mislingasmit á Íslandi Hér á Íslandi greindi Landlæknir frá því í mars síðastliðnum að tvö tilfelli af mislingasmiti hefðu greinst í 10 mánaða gömlum tvíburasystkinum. Börnin höfðu dvalist með fjölskyldu sinni á Taílandi en komið aftur til landsins 2. mars síðastliðinn. Þann 21. mars greindi sóttvarnarlæknir frá smiti fyrra barnsins en tíu dögum síðar var staðfest að systk- in þess hefði einnig smitast. Fram kom í tilkynningu frá sóttvarnar- lækni að þetta væri í fyrsta skipti í um aldarfjórðung sem mislingasmit kæmi upp á Íslandi. Hafa ber í huga að börnin í þessu tilfelli höfðu ekki verið bólusett sökum ungs aldurs. n Bólusetningar- stríð Þjóðverja Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Áhyggjufull Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ræðir hér við heilbrigðisráðherrann Her- mann Gröhe. Þjóðverjar ætla að grípa til aðgerða til að sporna við mislingafaraldrinum. Mynd EPA „Það getur enginn með réttu ráði hunsað lengur endur­ tekin dauðsföll af völdum mislinga. Bólusetjið börnin Skilaboð þýskra stjórnvalda eru skýr; bólusetjið börnin ykkar eða takið af- leiðingunum. Mynd 123rf.coM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.