Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 38
Söng- og leikkonan Cherilyn Sarkisian, Cher, sem fæddist 20. maí 1946 hefur verið kölluð gyðja popptónlistarinnar og þrátt fyrir að vera komin á áttræðis- aldur, sýnir hún þess engin merki að hún hyggist slaka á. Hún kemur enn fram á sýningum og á tónleikum, er í toppformi andlega og líkamlega og röddin er enn sú sama. Nýlega var hún heiðruð á athöfn Billboard- tónlistarverðlaunanna, þar sem hún fékk Goðsagnarverðlaunin (Icon) afhent. Cher naut fyrst vinsælda 1965 eftir að lag hennar og eiginmanns hennar, Sonny Bono, I Got You Babe komst í fyrsta sæti vinsælda- lista bæði í Bandaríkjunum og Bret- landi. Í lok árs 1967 hafði dúettinn Sonny & Cher selt meira en 40 milljónir platna á heimsvísu. Ári áður hóf Cher einnig sólóferil sinn, varð vinsæll þáttastjórnandi með Sonny í þáttunum The Sonny and Cher Comedy Hour, sem naut mikilla vinsælda þau þrjú ár sem hann var í sýningu og í eigin þáttaröð, sem hét einfaldlega Cher. Hún hefur leikið fjölda aðal- og aukahlutverka, bæði á Broadway og í kvikmyndum. Hún þreytti frumraun sína á leiksviðinu 1982 og hlaut lof fyrir fyrstu þrjú kvikmyndahlutverkin, Silkwood (1983), Mask (1985) og Moonstruck (1987) og hlaut hún Óskarsverðlaunin fyrir þá síðast- nefndu. Margverðlaunuð Auk áðurnefndra Óskarsverðlauna hefur Cher fengið fjölmörg önnur verðlaun: Grammy-, Emmy- og þrenn Golden Globe-verðlaun, verðlaun á Cannes-kvikmyndahá- tíðinni auk fjölda annarra. Hún er í hópi söluhæstu listamanna allra tíma, með yfir 100 milljónir hljómplatna seldar á heimsvísu. Og til þessa er hún eini tónlistarmaðurinn til að eiga lag í fyrsta sæti Billboard-listans á hverjum áratug frá þeim sjöunda til dagsins í dag. Brösótt hjónabönd Þrátt fyrir að ferillinn hafi verið langur og að mestu góður, þá hafa vinsældirnar samt dalað inni á milli og lífið verið brösótt. Sama á við um hjónabönd Cher sem er tvígift. Hún og Sonny kynntust 1962 og á ýmsu gekk í sambandinu og þau voru í samböndum við aðra þar til þau að lokum giftu sig 1969, þegar dóttir þeirra Chastity Bono fæddist. Þau skildu 1975 og fjórum dögum síðar giftist Cher tónlistar- manninum Gregg Allman. Níu dögum seinna fór Cher fram á skilnað vegna heróínneyslu og drykkju Allman. Allt féll þó í ljúfa löð í bili, þau eignuðust soninn Elijah Blue 1976 og sama ár hóf Cher að nýju samstarf við Sonny. The Sonny and Cher Show komst aftur í sýningu og naut þátturinn vinsælda frá upphafi, en rifrildi þeirra á skjánum, auk erfiðleika í hjónabandi Cher og Allman, leiddi til þess að þátturinn var blásinn af 1977. Cher og Allman skildu síðan 1979. Stundar sjóbretti Til að viðhalda unglegu útliti borðar Cher að mestu grænmetisfæði og segist hún ekki hrifin af kjöti. „Heilbrigði hefur alltaf verið hluti af mínu lífi, það virkar bara fyrir mig,“ sagði hún í viðtali árið 2013. „Hlutir eins og áfengi og eiturlyf eru óheilbrigðir og ég fann fljótt að hvorugt átti við mig. Ég reykti sígarettur á tímabili en hætti því og ég drekk kannski þrisvar til fjórum sinnum á ári.“ Til að halda sér í formi stundar Cher sjóbretti, sem hún lærði þegar hún var sextug, hleypur, gengur og fer í ræktina, en hún segist stunda líkamsrækt fimm sinnum í viku. Goðsagnarverðlaun Billboard Á Billboard-verðlauna- afhendingunni kom Cher fram og flutti tvö lög, Believe frá 1998 og If I Could Turn Back Time frá 1989, þar sem segja má að hún hafi snúið á Herra Tíma sjálfan, því hún mætti á svið í sama búningi og þegar hún flutti lagið nærri 20 árum áður. Þó að Cher hafi leitað aðstoðar læknavísindanna oftar en einu sinni og oftar en tvisvar til að viðhalda lík- amanum þá er því ekki að neita að hún er í toppformi, en hún varð 71 árs daginn fyrir verðlaunahátíðina. Að eigin sögn getur hún plankað í fimm mínútur. Í ræðunni við afhendingu verð- launanna þakkaði Cher móður sinni sem sagði við hana þegar hún var ung: „Þú verður ekki sú klárasta, þú verður ekki sú fallegasta, þú verður ekki sú hæfileikaríkasta, en þú munt verða sér- stök.“ Cher sagði síðan að Sonny hefði sagt það sama þegar þau hittust fyrst. Það má hins vegar segja að Cher hafi svo sannarlega sannað hið gagnstæða, enda hæfileikarík á mörgum sviðum, falleg og fyrirmynd margra yngri söngkvenna. Cher í sex áratugi GoðsöGn í tónlistar- heiminum Alsæl með heiðursverðlAun Söngkonan Gwen Stefani afhenti Cher verðlaunin og sagði hún Cher vera táknmynd goðsagnar og hrósaði henni fyrir áhrif hennar á tónlistarheiminn og tískuna. engu gleymt Cher vakti hrifningu með frammistöðu sinni á Billboard-verðlaununum. Brugðið á leik Cher og seinni eigin- maður henn- ar, Gregg Allman. Hann lést 27. maí síðastliðinn. meðAn Allt lék í lyndi Sonny og Cher á góðri stundu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.