Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 55
Helgarblað 9. júní 2017 KYNNING 31 Þú þarft ekki að bölva tölvunni lengur! Tölvur og gögn ehf. er rót-gróið fyrirtæki í Mjóddinni. Fyrirtækið veitir faglega þjónustu og persónulega ráðgjöf varðandi heildarlausnir í tölvu- og tæknimálum einstaklinga, minni og meðalstórra fyrirtækja. „Við erum meðal annars með alhliða netlausnir fyrir fyrirtæki og heimili, hvort sem um er að ræða kap- alkerfi eða háþróuð þráðlaus netkerfi,“ segir Ævar. Einnig sér fyrirtækið um vefsíðugerð, hýsingu, innri vefi, auglýsingaborða og grafíska vinnslu ásamt uppsetn- ingu og umsjón samskiptamiðla, Facebook og Twitter. Sú þjónusta er nefnd SpiderWeb (SpiderWeb. is) og hentar öllum gerðum fyrir- tækja og stofnana, stórum sem smáum. „Við leggjum mikið upp úr góðum samskiptum og vönduðum vinnubrögðum, þar sem traust þjónusta og gæði eru í fyrirrúmi. Mikil menntun, reynsla og þekk- ing er til staðar í fyrirtækinu og við leggjum okkur alltaf fram við að leysa málin fljótt og vel,“ segir Ævar. Sérfræðingar í tölvum og tæknimálum Uppsetning prentara á tölvunetum getur verið flókin og oft aðeins á færi þeirra sem kunna vel til verka. Það kannast líklegast margir við það að sótbölva prentaranum þegar upp kemur villumelding og skjalið einfaldlega vill ekki prentast. „Við hjá Tölvur og gögn ehf. höfum séð um uppsetningu á prenturum, plotterum og öðrum jaðartækjum til fjölda ára hjá hinum ýmsu fyrirtækjum,“ segir Ævar. Tölvur og gögn ehf. selur einnig, þjónustar og hefur umsjón með Office 365. „Við erum vottað skýjaþjónustu- fyrirtæki hjá Microsoft, Office 365 Small Business MCP vottað- ir. Seljum einnig öll stýrikerfi og annan hugbúnað frá Microsoft. Einnig sjáum við um uppsetningu vírusvarnaforrita, vírushreinsun og umsjón með því ásamt uppsetn- ingu og lagfæringu stýrikerfa bæði fyrir PC- og Mac-tölvur. Við gerum okkur grein fyrir því að öll þessi tækni þurfa að virka vel og við sjáum til þess að svo sé,“ segir Ævar. Tölvur og gögn ehf. hefur til margra ára verið samstarfsaðili Opinna kerfa og fleiri fyrirtækja og boðið tölvubúnað í miklu úrvali og á góðu verði. „Fyrirtæki geta fengið tilboð í tölvubúnað, tóner og aðra rekstrarvöru hjá okkur ásamt ráðgjöf um val á búnaði.“ Þar með er starfseminni ekki lokið því fyrir- tækið býður einnig upp á kennslu í margmiðlun, meðhöndlun mynda, gagnameðhöndlun o.fl. „Einnig komum við á staðinn og kennum þér á þína eigin tölvu. Kennslan er sérstaklega sniðin að óskum viðskiptavinarins og kennt er á þeim hraða sem hentar honum,“ segir Ævar. Gögn, gagnabjörgun og gagnaeyðing Tölvur og gögn ehf. er með fjöl- þætta starfsemi þegar kemur að tölvubúnaði fyrirtækja og einstaklinga og eins og nafnið gefur til kynna, þá sér það einnig um afritun á gögnum. „Afritun er afar mikilvæg og ekki síst í dag, þar sem upplýsingar og stafræn gögn eru oft það verðmætasta sem fyrirtæki og einstaklingar eiga. Heimili þurfa einnig að hugsa fyrir afritun á ljósmyndum fjölskyldunn- ar þar sem geymd eru ómetanleg augnablik. Við útvegum búnað eða notum skýjalausnir og setjum upp afritun á hagkvæman og einfaldan máta og bjóðum upp á sérsniðnar lausnir sem henta þörfum hvers og eins,“ segir Ævar. Fari svo að gögn týnist af einhverjum ástæðum þá sér fyrirtækið einnig um að endur- heimta þau. Tölvur og gögn ehf. hefur lengi verið í gagnabjörgun fyrir bæði einstaklinga og fyrir- tæki. „Björgun gagna er gífurlega nauðsynleg í nútímanum þar sem verðmæt gögn eiga sífellt á hættu á að tapast. Við erum með gríðar- lega reynslu í þeim málum og tryggjum vönduð og örugg vinnu- brögð. Við höfum verið samstarfs- aðili við Ontrack/ibas til fjölda ára og hafa þeir reynst okkur afar vel,“ segir Ævar. Þar með er gagnaþjón- usta fyrirtækisins ekki upptalin því Tölvur og gögn ehf. sér einnig um að eyða gögnum af stafrænum miðlum fyrir stofnanir og fyrirtæki, sem vinna með viðkvæm gögn. Gögnin eru þá þurrkuð út sam- kvæmt alþjóðlegum staðli, þannig að ekki er hægt að finna þau aftur, jafnvel ekki með fullkomnustu tækni í gagnabjörgun. Fjarlægð er ekki vandamál Tölvur og gögn ehf. býður upp á þjónustu yfir internetið, hvort sem er við fyrirtæki eða heimili. „Þá tengjumst við tölvum og net- þjónum í gegnum internetið og framkvæmum eftirlit og viðgerðir, án þess að senda mann á staðinn. Þetta hentar sérstaklega vel fyrir þá sem búa afskekkt eða eiga erfitt með að nálgast þjónustu okkar á annan hátt,“ segir Ævar. SpiderWeb „Við höfum nú aðskilið starfsemi okkar að hluta, þannig að tækni- þjónustan er sér og vefsíðugerðin og hýsingin sér. Þetta er samt sem áður á sama stað í Mjóddinni enda er þar gott að vera. Vefsíðugerðin og hýsingin gengur undir nafninu SpiderWeb og er að stærstum hluta í höndum Jakobs, samstarfs- aðila míns. Hann sér meðal annars um vefsíðugerð, innri vefi, upp- setningu, útlit, auglýsingaborða og myndvinnslu. Við sjáum einnig um vefsíður er tengjast Microsoft Office 365 og Azure, innri vefsíðu- gerð fyrirtækja. Nú er einnig mjög vinsælt að nota Google AdWords og leitarvélabestun til að koma vefsíðum á framfæri og við að- stoðum að sjálfsögðu við að setja það upp líka,“ segir Ævar. Tölvur og gögn ehf. og SpiderWeb, Mjóddinni, Þarabakka 3, 2.h., 109 Reykjavík Sími: 696-3436 Tölvup: togg@ togg.is Tölvup: vefur@spiderweb. is Nánari upplýsingar og tilboð má nálgast á vefsíðum fyrirtækisins, togg.is, spiderweb.is og á Facebook undir nöfnunum Tölvur og gögn og SpiderWeb vefsíðugerð. Tölvur og gögn ehf. sér um tæknimálin fyrir þig Bergur Þór Ævarsson Tæknimaður (forritun, vefir o.fl.). Nemi í forritun við Tækniskóla Íslands. Jakob S. Ævarsson Tæknimaður (vefhönnuður – skýjaþjónusta). Office 365 SMB MCP. Ævar B. Jakobsson Framkv.stj. (UT stjóri – IT manager). Office 365 SMB MCP, MCSA, Network+. Tölvur og gögn ehf. er með glæsilega skrifstofu. Tölvur og gögn og SpiderWeb eru til húsa í Mjóddinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.