Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2017, Side 12
12 Helgarblað 23. júní 2017fréttir
U
m 95 prósent af mínum
viðskiptavinum eru með
matarkomplexa.“ Þetta
segir einkaþjálfarinn Ólöf
Tara Harðardóttir sem þekkir frá
fyrstu hendi hvernig það er að
eiga í óheilbrigðu sambandi við
mat. Þá segir Ólöf Tara að fólk
sé með alltof óraunhæfar kröfur
hvað varðar útlitsmarkmið. Henn
ar reynsla er sú að fæstir mæti í
ræktina til að bæta heilsuna held
ur sé markmiðið yfirleitt að líta
betur út. Þá þykir henni undarlegt
sjá hve margir virðast vera í flækju
með mataræðið. Hvað má borða
og hvað ekki, til að ná sem bestum
árangri. „Þetta á ekki að vera flók
ið. Allur matur er góður í hófi. Þú
þarft ekki að lifa á haframjöli og
þurrum kjúklingabringum til að
létta þig. Það er ekkert annað en
leiðinleg mýta.“
Var 20 kílóum of þung
Ólöf Tara hefur starfað sem einka
þjálfari síðan í janúar 2016, en hef
ur þó verið viðloðandi bransann
lengur. Ólöf fékk aftur áhuga á lík
amsrækt árið 2012, eftir nokkurt
hlé, þegar hún byrjaði að vinna
í afgreiðslunni hjá World Class.
„Þá var ég 20 kílóum of þung. Sem
krakki og unglingur var ég alltaf í
fimleikum. Ég meiddist mikið og
þurfi að hætta snemma. Ég mátt
lítið hreyfa mig á tímabili og ein
faldlega hætti því.“
Samhliða því að Ólöf smitað
ist af áhuga vinnufélaga sinna á
líkamsrækt byrjaði hún að æfa
aftur. Stuttu síðar fór hún á nám
skeið þar sem hún lærði að vera
hóptímakennari. Árið 2015 fór
Ólöf svo í Keili þar sem hún lærði
einkaþjálfun. Í upphafi árs 2016
byrjaði hún svo að þjálfa. „Ég hefði
getað fengið viðskiptavini miklu
fyrr en fannst ég ekki tilbúin. Ég
var ekki í heilbrigðu sambandi við
mat og fannst ekki rétt að taka við
skiptavini á meðan ég væri sjálf að
glíma við að breyta hugarfarinu.“
Ólöf útskýrir að matar
komplexar geti birst í mörgum
myndum; að borða of mikið,
borða of lítið, fá samviskubit
yfir því að borða óhollt, hræðast
ákveðna tegund af fæðu og að
fitna af því að borða hana. Einnig
í að mikla mataræðið fyrir sér og
finnast maður þurfa að borða ein
falda, og kolvetnaskerta fæðu, í öll
mál, til að ná árangri. Í dag hef
ur Ólöf Tara unnið bug á sínum
matarkomplexum og reynir, eftir
fremsta megni, að aðstoða við
skiptavini sína. „Oft þegar ég fæ
matardagbækur þá eru ummæli
í sviga fyrir aftan þar sem kúnn
inn rífur sig niður fyrir að eitt að
fá sér kökusneið eða Snickers.
Það er auðvitað ekki í lagi. Mað
ur skemmir ekkert vikuna með því
að borða súkkulaði af og til. Það
þarf miklu meira til svo það hafi
áhrif á vigtina.“
Að hennar mati er stærsta
vandamálið að það séu svo
margar reglur í gangi varðandi
mataræði. „Staðreyndin er sú að
ef þú borðar venjulegan mat þá
færðu öll næringarefni sem lík
aminn þarf úr fæðunni. Þetta er í
alvörunni svona einfalt.“
Instagram hættulegt
Eitt af vandamálunum sem fólk
stendur frammi fyrir í dag, og ýtir
undir óraunhæf útlitstengd mark
mið, eru samfélagsmiðlar. „Maður
dettur alveg í þennan pakka sjálf
ur þegar maður skoðar, til dæm
is, fitnessmódel á Instagram. En
þá er líka mikilvægt að átta sig
á því að ef maður ætlar að vera
með „sixpack“ allt árið þá krefst
það, fyrir flesta, gríðarlega mikils
skipulags og tíma. Margir eiga
auðvelt með þetta en aðrir ekki.
Maður á að einbeita sér að því að
vera besta útgáfan af sjálfum sér í
stað þess að vera stöðugt að miða
sig við aðra.“
Ólöf Tara segir það nokkuð al
gengt að fólk komi til hennar, fyrir
sumarið, og segi að þar sem það
sé að fara á ströndina þá langi
það að létta sig og komast niður í
ákveðna fituprósentu áður en frí
ið byrjar.
„Ég skil stundum ekki þessar
kröfur. Hver segir að maður þurfi
að vera 15 prósent fita til að eiga
það skilið að fara í bikiní og ef það
tekst ekki þá rífur maður sig nið
ur. Þetta er komið út í svo miklar
öfgar. Fólk verður að átta sig á því
að við erum jafn ólík og við erum
mörg. Það sem skiptir mestu máli
er að hreyfa sig til að öðlast betri
líkamlega heilsu. Því miður eru
fæstir með það markmið.“
Erfitt að breyta um lífsstíl
Þá segir Ólöf að Íslendingar séu
almennt ekki nógu vel upplýstir
um næringarfræði. „Auðvitað
ætti fólki að vera boðin ókeypis
ráðgjöf, þjálfun og fræðsla. Það
ætlar sér enginn að verða feitur.
Það að fræða fólk og leiðbeina
því myndi kosta samfélagið miklu
minna, þegar upp er staðið, en
sem nemur kostnaði sem fylgir
lífsstílstengdum sjúkdómum. Þeir
eru stórt vandamál á Íslandi í dag.
Það varðar okkur öll þegar heilsa
þjóðarinnar er slæm.“
Ólöf vill jafnframt leiðrétta
þann misskilning að óhollur
matur sé ódýrari en hollari fæða.
„Pítsa getur kostað allt upp í 4.000
krónur. Ég þekki mjög margt fólk
sem borðar mikið af pítsu. Maður
getur keypt mjög mikið af hollum
mat fyrir þann pening, og átt af
ganga næstu daga á eftir. Það er
stundum eins og fólk átti sig ekki
á því.“
Það sem skiptir mestu máli til
að ná árangri, að mati Ólafar, er
að brjótast úr viðjum vanans. „Við
erum bara ein stór venja og sækj
um aftur og aftur í sama farið. Það
er erfitt að breyta venjum og tekur
miklu lengri tíma en fólk gerir sér
grein fyrir. Fólk verður að gefa sér
tíma, líka til að mistakast.“ n
Kristín Clausen
kristin@dv.is „Hver segir
að maður
þurfi að vera 15
prósent fita til að
eiga það skilið að
fara í bikiní
Einkaþjálfari Ólöf Tara Harðar-
dóttir er einkaþjálfari í World Class
í Egilshöll Glímdi sjálf við mikla
matarkomplexa. Mynd SiGTryGGur Ari
„Það ætlar sér enginn
að verða feitur“
Ólöf Tara er einkaþjálfari sem þekkir matarkomplexa af eigin raun
Þjálfar í World Class í Egilshöll
Segir fæsta mæta í ræktina til að
öðlast betri heilsu. Mynd SIgTryggur ArI
„Maður skemmir ekkert
vikuna með því að borða
súkkulaði af og til