Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Side 26
Helgarblað 7. júlí 2017KYNNINGARBLAÐ2 Gott í gogginn Happy Hour og DJ á föstudagskvöldum DJ Grill Dj Grill er heimilislegur, vinalegur og þægileg-ur hamborgarastaður í miðbæ Akureyrar. Stað- urinn stendur fyllilega undir þessum þremur lýsingarorð- um því þú getur komið með fjölskyldunni og sest niður í rólegheitum og fengið þér hamborgara, samloku eða aðra smárétti. Þú getur líka skotist í hádegispásunni og fengið þér einn snöggan borgara og ef áhugi er fyrir hendi er lítið mál að koma og horfa á boltann á Dj Grilli. Þar eru sýndir flestir leikir sem eru á dagskránni í enska boltanum og í meist- aradeildinni. Spennandi nýjungar Nokkrar litlar en áhugaverð- ar nýjungar eru að eiga sér stað í þjónustu staðarins í sumar, þessar helstar: Á föstudagskvöldum í sumar, frá og með föstu- dagskvöldinu 14. júlí, verður Happy Hour á barnum frá 20.30 til 21.30 og strákarnir í lucid Dreams mæta með „dj set“ vikunnar. Hádegistilboð á aðeins 1.100 krónur alla virka daga og er hægt að panta fyrir hópa. Jafnframt er hægt að horfa á íslenska boltann á flatskjáum á staðnum. Byrjaði í gríni Núverandi eigendur tóku við staðnum fyrir að verða um áratug, þrátt fyrir að vera á þeim tíma í tveimur öðrum störfum, að byggja sér húsnæði og með búskap til hliðar! „Þetta byrjaði allt í hálf- gerðu gríni,“ segja Elva Sigurðardóttir og Snæbjörn Sigurðsson, eiginmaður hennar. Það vantaði rekstr- araðila fyrir staðinn og Elva og Snæbjörn ákváðu að slá til og prófa. Þau tóku við rétt fyrir verslunarmannahelgina og vissu ekkert út í hvað þau voru að fara, og varð- andi tilsögn um reksturinn treystu hjónin á starfsfólkið og eiganda. Þetta gekk mun betur en nokkur hafði þorað að vona og nokkrum mánuðum síðar urðu eigendaskipti. Stuttu síðar hætti Elva í sinni vinnu og hefur síðan einungis komið að Dj Grilli. Snæbjörn er smiður og búskapurinn er enn á sínum stað, sumir virðast bara hafa fleiri tíma í sólarhringnum en aðrir. Staðurinn hefur tekið miklum breytingum síðan árið 2008, bæði útlitslega og varðandi matseðilinn. Fjölskyldan er nánast öll með annan fótinn á svæð- inu, en starfsmannahópur- inn stækkar ört eftir því sem líður á. Einn starfsmaður hélt áfram eftir eigenda- skiptin og stendur enn vaktina við grillið og er hann löngu orðinn einn af fjöl- skyldunni. Zurgbassi langvinsælastur „Staðurinn á orðið stór- an fastakúnnahóp en sem betur fer sjáum við líka mörg ný andlit,“ segja Elva og Snæbjörn. „Það gleður okkur líka alltaf jafn mikið þegar utanbæjarfólk kemur aftur og aftur til okkar þegar það á erindi til Akureyrar. Þrátt fyrir að ostborgarinn sé alltaf klassískur hefur hamborgari sem við köllum Zurgbassa slegið í gegn og er sá allra, allra vinsæl- asti á seðlinum hjá okkur en hann er með piparosti og fleira góðgæti. Flestir hamborgararnir hjá okkur hafa stafina Dj fyrir fram- an; Dj Maggi, Dj Hulda og svo framvegis, en þess má geta að þegar við tókum við staðnum voru þetta helstu nöfnin sem voru að spila á Akureyri á þeim tíma. Zurg- bassi er t.a.m. sviðsnafn sem ingi Þór, sonur okkar, og vinur hans notuðu þegar þeir spiluðu.“ Dj Grill Strandgata 11 600 Akureyri Sími: 462–1800 www.facebook.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.