Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Blaðsíða 26
Helgarblað 7. júlí 2017KYNNINGARBLAÐ2 Gott í gogginn
Happy Hour og DJ á
föstudagskvöldum
DJ Grill
Dj Grill er heimilislegur, vinalegur og þægileg-ur hamborgarastaður
í miðbæ Akureyrar. Stað-
urinn stendur fyllilega undir
þessum þremur lýsingarorð-
um því þú getur komið með
fjölskyldunni og sest niður í
rólegheitum og fengið þér
hamborgara, samloku eða
aðra smárétti. Þú getur líka
skotist í hádegispásunni og
fengið þér einn snöggan
borgara og ef áhugi er fyrir
hendi er lítið mál að koma
og horfa á boltann á Dj
Grilli. Þar eru sýndir flestir
leikir sem eru á dagskránni í
enska boltanum og í meist-
aradeildinni.
Spennandi nýjungar
Nokkrar litlar en áhugaverð-
ar nýjungar eru að eiga sér
stað í þjónustu staðarins í
sumar, þessar helstar:
Á föstudagskvöldum í
sumar, frá og með föstu-
dagskvöldinu 14. júlí, verður
Happy Hour á barnum frá
20.30 til 21.30 og strákarnir
í lucid Dreams mæta með
„dj set“ vikunnar.
Hádegistilboð á aðeins
1.100 krónur alla virka daga
og er hægt að panta fyrir
hópa.
Jafnframt er hægt að
horfa á íslenska boltann á
flatskjáum á staðnum.
Byrjaði í gríni
Núverandi eigendur tóku
við staðnum fyrir að verða
um áratug, þrátt fyrir að
vera á þeim tíma í tveimur
öðrum störfum, að byggja
sér húsnæði og með búskap
til hliðar!
„Þetta byrjaði allt í hálf-
gerðu gríni,“ segja Elva
Sigurðardóttir og Snæbjörn
Sigurðsson, eiginmaður
hennar. Það vantaði rekstr-
araðila fyrir staðinn og Elva
og Snæbjörn ákváðu að slá
til og prófa. Þau tóku við rétt
fyrir verslunarmannahelgina
og vissu ekkert út í hvað
þau voru að fara, og varð-
andi tilsögn um reksturinn
treystu hjónin á starfsfólkið
og eiganda.
Þetta gekk mun betur en
nokkur hafði þorað að vona
og nokkrum mánuðum síðar
urðu eigendaskipti. Stuttu
síðar hætti Elva í sinni vinnu
og hefur síðan einungis
komið að Dj Grilli. Snæbjörn
er smiður og búskapurinn
er enn á sínum stað, sumir
virðast bara hafa fleiri tíma í
sólarhringnum en aðrir.
Staðurinn hefur tekið
miklum breytingum síðan
árið 2008, bæði útlitslega
og varðandi matseðilinn.
Fjölskyldan er nánast öll
með annan fótinn á svæð-
inu, en starfsmannahópur-
inn stækkar ört eftir því sem
líður á. Einn starfsmaður
hélt áfram eftir eigenda-
skiptin og stendur enn
vaktina við grillið og er hann
löngu orðinn einn af fjöl-
skyldunni.
Zurgbassi langvinsælastur
„Staðurinn á orðið stór-
an fastakúnnahóp en sem
betur fer sjáum við líka
mörg ný andlit,“ segja Elva
og Snæbjörn. „Það gleður
okkur líka alltaf jafn mikið
þegar utanbæjarfólk kemur
aftur og aftur til okkar þegar
það á erindi til Akureyrar.
Þrátt fyrir að ostborgarinn
sé alltaf klassískur hefur
hamborgari sem við köllum
Zurgbassa slegið í gegn og
er sá allra, allra vinsæl-
asti á seðlinum hjá okkur
en hann er með piparosti
og fleira góðgæti. Flestir
hamborgararnir hjá okkur
hafa stafina Dj fyrir fram-
an; Dj Maggi, Dj Hulda og
svo framvegis, en þess má
geta að þegar við tókum við
staðnum voru þetta helstu
nöfnin sem voru að spila á
Akureyri á þeim tíma. Zurg-
bassi er t.a.m. sviðsnafn
sem ingi Þór, sonur okkar,
og vinur hans notuðu þegar
þeir spiluðu.“
Dj Grill Strandgata 11 600
Akureyri Sími: 462–1800
www.facebook.com