Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Page 35
1957 Elvis Presley nær fyrsta topp- sæti sínu í Bretlandi með laginu All Shook Up, tíunda lagið sem hann gaf út í Bretlandi. Lagið hélt toppsætinu í sjö vikur. 1969 George Harrison tók upp lagið Here Comes the Sun með tveimur öðrum Bítlameðlimum, Paul McCartney og Ringo Starr, í Abbey Road stúdíóinu í London. John Lennon var fjarverandi, að ná sér eftir bílslys sem hann lenti í í Skotlandi. 1984 Bruce Springsteen náði fyrsta sæti bandaríska plötulistans með Born In the USA. Platan var í samtals 139 vikur á listanum. Platan er einnig ein af aðeins þremur plötum sem inniheldur sjö lög sem náð hafa á topp tíu listann í Bandaríkjunum, hinar eru Thriller plata Michael Jackson og Rhytm Nation plata Janet Jackson. 1984 Prince hóf fimm vikna setu í toppsæti bandaríska listans með laginu When Doves Cry. Lagið náði hæst í fjórða sæti á breska vinsældalistanum. 2007 The Live Earth tónleik- arnir fóru fram víðs vegar um heimsálfuna, en þáverandi varaforseti Bandaríkjanna, Al Core, efndi til þeirra til að vekja athygli á loftslags- breytingum. The Police slógu botninn í tónleika í New Jersey og Madonna í London, með lagi sem hún samdi sérstaklega af þessu tilefni. Á meðal annarra stórstjarna sem komu fram má nefna: Snow Patrol, Red Hot Chili Peppers, Genesis, The Be- astie Boys, James Blunt, The Foo Fighters, Duran Duran, UB40, Snoop Dogg, Enrique Iglesias, Crowded House & Joss Stone.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.