Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Qupperneq 36
Það voru þeir Stan Lee og Steve Ditko sem sköpuðu Spider-Man sem birtist fyrst
í teiknimyndasögu árið 1962. Eftir-
spurn eftir teiknimyndasögum fyr-
ir unglinga olli því að Stan Lee fór
að velta fyrir sér hugmyndum að
nýrri ofurhetju sem unglingar gætu
tengt við. Karakterinn Richard
Wentworth, sem bar viðurnefnið
The Spider, þegar hann barðist við
glæpamenn í samnefndum blöðum
var aðalinnblásturinn í að Stan Lee
ákvað að stofna karakter sem bar
nafnið Spider-Man, eða Kóngu-
lóarmaðurinn. Nafnið Spider-boy,
eða Kóngulóardrengurinn, kom
ekki til greina að mati Lee, þar sem
hann sá fyrir sér að karakterinn
myndi þróast úr unglingsdreng í
karlmann, auk þess sem drengur
myndi draga úr vigt hans í saman-
burði við aðrar ofurhetjur.
Í sköpun þeirra Lee og Ditko er
ofurhetjan, Peter Parker, munað-
arlaus unglingur sem elst upp hjá
May frænku og Ben frænda í New
York og eins og aðrir unglingar
þarf hann að kljást við þau hefð-
bundnu vandamál sem því fylgir
að vaxa og þroskast, auk þess að
kljást við ýmsa erkióvini og glæpa-
menn í gervi Spider-Man.
Með sköpun Spider-Man var
brotið blað hvað ofurhetjur varðar
þar sem unglingur var í fyrsta sinn
í hlutverki aðalhetjunnar. Hann
hafði heldur engan sér eldri til að
kenna honum á kosti og galla þess
að vera ofurhetja, líkt og til að
mynda Batman hafði, og þurfti því
að reka sig á og læra sjálfur.
Í fjölmörgum teiknimyndasög-
um Marvel þróaðist Spider-Man
úr feimnum unglingsdreng í New
York yfir í atvinnuljósmyndara.
Upp úr 2010 varð hann síðan
einn meðlima Avengers, ofur-
hetjuteymis Marvel. Hliðarsög-
ur um Spider-Man hafa einnig
verið gefnar út, eins og til dæmis
Ultimate Spider-Man, sem fjallar
um ævintýri Peter Parker í hliðar-
heimi.
Spider-Man er flaggskip Marvel
Comics og ein allra vinsælasta
ofurhetja og teiknimyndakarakt-
er allra tíma. Ásamt Batman og
Superman, sem eru ofurhetjur DC
Comics, er Spiderman fræg-
asta ofurhetjan.
Ekki bara teiknimyndasögur
Spider-Man hefur birst í
teiknimyndasögum, teikni-
myndum, kvikmyndum, sjón-
varpsþáttum, tölvuleikjum,
litabókum, bókum, plötum og
barnabókum.
Í sjónvarpi birtist hann fyrst í
teiknimyndaseríunni Spider-Man á
ABC sjónvarpsstöðinni á árunum
1967–1970, fleiri teiknimyndaserí-
ur fylgdu í kjölfarið og síðan leikin
sería, The Amazing Spider-Man,
með Nicholas Hammond í aðal-
hlutverki sem sýnd var 1978–1979.
Kóngulóarmaðurinn fer á hvíta tjaldið
Spider-Man birtist fyrst í kvik-
mynd árið 2002 þegar Sam Raimi
leikstýrði Tobey Maguire í aðal-
hlutverkinu í fyrstu mynd trílogíu,
seinni myndirnar komu árin 2004
og 2007. Til
stóð að gera
eina mynd til
viðbótar árið
2011, en Sony
sló það af og
ákvað að breyta
um leikstjóra
og leikara.
Endurgerðin
The Amazing
Spider-Man
með Andrew Garfield í hlutverki
Spider-Man í leikstjórn Marc Webb
var frumsýnd árið 2012 og mynd
númer tvö árið 2014.
Sá nýjasti til að taka að sér hlut-
verk Spider-Man, Tom Holland,
lék hann í kvikmyndinni Captain
America: Civil War sem kom út
árið 2016. Og nú er nýjasta myndin
um Kóngulóarmanninn sjálfan,
Spider-Man: Homecoming, komin
út í leikstjórn Jon Watts og sú
næsta er áætluð í júlí 2019.
Holland mun einnig endurtaka
hlutverk sitt í Avengers: Infinity
Wars sem frumsýnd verður árið
2018 og annarri Avengers-mynd
sem enn hefur ekki hlotið nafn en
er áætluð 2019.
Hver er hinn nýi Spider-Man?
Breski leikarinn Tom Holland er
aðeins 21 árs, fæddur 1. júní
1996 í London. Hann byrjaði
í hop hop danstímum, þar
sem hann var uppgötvaður
10 ára gamall af Lynne Page
sem sá um kóreógrafíu
Billy Elliott söngleiksins.
Eftir átta áheyrnarprufur og
tveggja ára æfingar hóf hann
að leika í söngleiknum og var
þar næstu tvö ár.
Fyrsta kvikmyndahlutverk
var í The Impossible þar sem
hann lék á móti Naomi Watts og
Ewan McGregor. Byggir myndin á
sannri sögu fjölskyldu sem upplifði
náttúruhamfarir þegar gríðarleg
flóðbylgja skall á í Indlandi á jólum
árið 2004, með þeim afleiðingum
að 227 þúsund manns létu lífið.
Holland hefur síðan leikið í mynd-
um á borð við A Monster Calls og
Captain America: Civil
War (báð-
ar
2016).
Kóngulóarmaðurinn
Kominn aftur á KreiK
Spiderman: Homecoming komin í bíó
Spider-Man, ein af ofurhetjum Marvel Comics, birtist nú
enn á ný á hvíta tjaldinu í Spiderman: Homecoming.
Fyrsta tölu-
blað spider-
Man-seríunn-
ar The Amazing
Spider-Man #1,
sem kom út í mars
1963. Listamenn
voru Jack Kirby og
Steve Ditko. Blöðin
urðu alls 700 talsins
á árunum 1963 –
2012.
„With great
power there
must also come
great responsi-
bility“
– með þessari setningu lauk fyrstu
sögu Spider-Man, en hún var seinna
eignuð Ben frænda.
sá nýjasti Tom
Holland er hinn nýi
Spider-Man.
tobey Maguire
lék Spider-Man í
þremur myndum árin
2002–2007.
Fyrsta For-
síðan Amazing
Fantasy #15 sem
kom út í ágúst
1962. Listamenn
voru Jack Kirby
og Steve Ditko.
Blaðið varð eitt
af mest seldu
blöðum Marvel.