Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Page 38
Dior tískuhúsið opnaði mið-vikudaginn 5. júlí síðast-liðinn stærstu sýningu sem
haldin hefur verið á hátísku í París.
Tilefnið er 70 ára afmæli tísku-
hússins og verður sýningin opin
næstu sex mánuði í Musée des Arts
Décoratifs.
Sýningin varpar ljósi á öll
tímabil í tískuhönnunarsögu Dior
með flíkum eftir helstu hönnuði
hússins, þar á meðal Christian Dior,
Yves Saint Laurent, Marc Bohan,
Gianfranco Ferre, John Gallia-
no, Raf Simons og Maria Grazia
Chiuri. Á sýningunni má dást að
yfir 300 hátískukjólum frá árunum
1947–2017, sem falla undir 23 ólík
þemu. Á sýningunni má einnig
finna efni, fjölda tískuljósmynda,
listaverk fengin að láni frá helstu
listasöfnum og frumskjöl og teikn-
ingar eftir hönnuðina Rene Gruau
og Mats Gustafson.
Þetta er önnur sýning Dior á
safninu, en sú fyrri var árið 1987
í tilefni af 40 ára afmæli tísku-
hússins.
Yfir 300
hátískukjólar
Dior til sýnis