Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Qupperneq 42
Þórunn Eva Guðbjargardóttir Thapa og Silja Rut Sigurjónsdóttir stofnuðu samtökin
Zebrabörn. Samtökin eru lítil deild innan samtakanna Lindar, félags um meðfædda
ónæmisgalla. Og nú eru komnar í sölu gullfallegar zebramyndir, teiknaðar af Berg-
rúnu Írisi, og rennur ágóði af sölu myndanna óskertur til Zebrabarna.
Við Silja eigum báðar börn sem eru með meðfædda ónæmisgalla,“ segir Þórunn
Eva. „Samtökin Zebrabörn eru
sérstaklega tileinkuð börnum sem
fæðast með ónæmisgalla. Að eiga
langveikt barn hefur veruleg áhrif á
líf allra í fjölskyldunni, en við reyn-
um að eiga eins eðlilegt fjölskyldulíf
og hægt er. Það getur þó verið erfitt
þegar maður er minntur á veikindin
daglega. Það er eiginlega ekki hægt
að vera í vinnu, en ríkið er lítið sem
ekkert að aðstoða fjölskyldur. Það er
erfitt að ganga í gegnum lyfjagjafir,
spítalaferðir og veikindi sem fylgja
því að eiga langveik börn og við
vildum því leggja okkar af mörkum
til að létta undir með og aðstoða
börnin og foreldra þeirra.“
Þær hófu vinnu við herferðina
í maí síðastliðnum og nýlega leit
afraksturinn dagsins ljós í boði sem
haldið var í Bílaumboðinu Öskju,
gullfallegar zebramyndir í A5 stærð,
teiknaðar af Bergrúnu Írisi Ævars-
dóttur.
„Herferðin er okkur hjartans
mál, enda varð hún til vegna barn-
anna okkar. Sem foreldrar gerum
við allt sem við mögulega getum
fyrir börnin okkar, því þau eru það
dýrmætasta sem við eigum. Við
erum glaðar og lífshamingjan alltaf
stutt undan og við munum halda
ótrauðar áfram,“ segir Þórunn Eva.
Þess má einnig geta að Jón Sverr-
ir, 13 ára gamall sonur Þórunnar,
ætlar að hlaupa til styrktar Einstök-
um börnum í Reykjavíkurmaraþon-
inu í ágúst næstkomandi.
Ágóði myndanna rennur
óskertur til Zebrabarna, en tilgang-
ur þeirra er að fjármagna fræðslu í
þágu sjúkdómsins.
Samtökin Zebrabörn Stofnuð
Styrkja börn með meðfædda ónæmisgalla
Gullfal-
leGar
teikninGar
Teikningarnar
eru gullfallegar
en Bergrún Íris
Sævarsdóttir
á heiðurinn af
þeim. Hlynur
Guðlaugsson
hjá prentun.is
sá um prentun,
en bæði gáfu
þau vinnu sína
við verkefnið.
fékk fyrstu
myndina
Jón Sverrir afhendir Sölku
Sól fyrstu myndina fyrir
hönd Zebrabarna.
flottir faGurkerar
Þórey Gunnarsdóttir og Tinna Freysdóttir, eigend-
ur Fagurkerar.is, mættu og styrktu Zebrabörn.
askja hélt boð
Á dögunum var haldið
boð í Bílaumboðinu
Öskju til heiðurs samtök-
unum og voru stjörnur
á borð við Sölku Sól á
staðnum ásamt þekktum
snöppurum og einstak-
lingum. Myndirnar voru
til sölu og boðið upp á
veitingar.
annar stofnenda
Zebrabarna
Þórunn Eva, til vinstri,
ásamt vinkonu sinni, Hrafn-
hildi Tyrfingsdóttur, og syni
hennar, Vikari Loga.