Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Page 42
Þórunn Eva Guðbjargardóttir Thapa og Silja Rut Sigurjónsdóttir stofnuðu samtökin Zebrabörn. Samtökin eru lítil deild innan samtakanna Lindar, félags um meðfædda ónæmisgalla. Og nú eru komnar í sölu gullfallegar zebramyndir, teiknaðar af Berg- rúnu Írisi, og rennur ágóði af sölu myndanna óskertur til Zebrabarna. Við Silja eigum báðar börn sem eru með meðfædda ónæmisgalla,“ segir Þórunn Eva. „Samtökin Zebrabörn eru sérstaklega tileinkuð börnum sem fæðast með ónæmisgalla. Að eiga langveikt barn hefur veruleg áhrif á líf allra í fjölskyldunni, en við reyn- um að eiga eins eðlilegt fjölskyldulíf og hægt er. Það getur þó verið erfitt þegar maður er minntur á veikindin daglega. Það er eiginlega ekki hægt að vera í vinnu, en ríkið er lítið sem ekkert að aðstoða fjölskyldur. Það er erfitt að ganga í gegnum lyfjagjafir, spítalaferðir og veikindi sem fylgja því að eiga langveik börn og við vildum því leggja okkar af mörkum til að létta undir með og aðstoða börnin og foreldra þeirra.“ Þær hófu vinnu við herferðina í maí síðastliðnum og nýlega leit afraksturinn dagsins ljós í boði sem haldið var í Bílaumboðinu Öskju, gullfallegar zebramyndir í A5 stærð, teiknaðar af Bergrúnu Írisi Ævars- dóttur. „Herferðin er okkur hjartans mál, enda varð hún til vegna barn- anna okkar. Sem foreldrar gerum við allt sem við mögulega getum fyrir börnin okkar, því þau eru það dýrmætasta sem við eigum. Við erum glaðar og lífshamingjan alltaf stutt undan og við munum halda ótrauðar áfram,“ segir Þórunn Eva. Þess má einnig geta að Jón Sverr- ir, 13 ára gamall sonur Þórunnar, ætlar að hlaupa til styrktar Einstök- um börnum í Reykjavíkurmaraþon- inu í ágúst næstkomandi. Ágóði myndanna rennur óskertur til Zebrabarna, en tilgang- ur þeirra er að fjármagna fræðslu í þágu sjúkdómsins. Samtökin Zebrabörn Stofnuð Styrkja börn með meðfædda ónæmisgalla Gullfal- leGar teikninGar Teikningarnar eru gullfallegar en Bergrún Íris Sævarsdóttir á heiðurinn af þeim. Hlynur Guðlaugsson hjá prentun.is sá um prentun, en bæði gáfu þau vinnu sína við verkefnið. fékk fyrstu myndina Jón Sverrir afhendir Sölku Sól fyrstu myndina fyrir hönd Zebrabarna. flottir faGurkerar Þórey Gunnarsdóttir og Tinna Freysdóttir, eigend- ur Fagurkerar.is, mættu og styrktu Zebrabörn. askja hélt boð Á dögunum var haldið boð í Bílaumboðinu Öskju til heiðurs samtök- unum og voru stjörnur á borð við Sölku Sól á staðnum ásamt þekktum snöppurum og einstak- lingum. Myndirnar voru til sölu og boðið upp á veitingar. annar stofnenda Zebrabarna Þórunn Eva, til vinstri, ásamt vinkonu sinni, Hrafn- hildi Tyrfingsdóttur, og syni hennar, Vikari Loga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.