Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Page 52
28 sakamál Helgarblað 7. júlí 2017 K enneth Noye fæddist í Bex- leyheath í Kent-sýslu á Englandi árið 1947. Fað- ir hans sá um rekstur pósthúss og móðir hans var framkvæmdastjóri hundaveð- hlaupabrautar. Noye varð ungur að árum afar vinnusamur og sagði skilið við nám fimmtán ára að aldri. Hann sinnti mörgum störf- um og var stoltur af því. Í upphafi bar hann út dagblöð og mjólk og tók að sér ýmis viðvik í verslunum. Hann seldi prógrömm á hunda- veðhlaupabrautum og reyndi fyr- ir sér með blaðsöluturn í miðborg London. Hneigðist til glæpa En glæpahneigð gerði einnig vart við sig hjá hinum vinnusama Noye og hann fékk tækifæri til að skoða fangelsisveggi að innanverðu áður en hann náði 23 ára aldri, eftir að hafa verið gripinn glóðvolgur við að höndla með stolna bíla. En 23 ára kvæntist hann Brendu, dóttur verkfræðings, og drap aðeins niður fæti í prentun- argeiranum og á áttunda áratug síðustu aldar vann hann á nætur- vöktum í prentsmiðju í Fleet Street í London. Stofnaði flutningafyrirtæki Noye hugnaðist þó ekki að vinna fyrir aðra til lengdar og ákvað að verða sjálfstæður. Hann stofn- aði flutningafyrirtæki með höfuð- stöðvar í niðurníddu hjólhýsi fyr- ir aftan bílskúr í West Kingsdown í Kent. Síðan haslaði hann sér völl í byggingargeiranum og enn síð- ar í lóða- og jarðabraski sem hann hagnaðist ágætlega á. Árið 1977 hljóp snurða á þráð- inn og Noye fékk eins og hálfs árs skilorðsbundinn dóm fyrir ólög- lega skotvopnaeign. Einbýlishús og snekkja En fyrir tilstilli ábatasams reksturs komst Noye í álnir og 1980 byggði hann tíu svefnherbergja setur í Tudor-stíl skammt frá West Kings- down. Til að bæta um betur þá keypti hann einbýlishús á Kýp- ur og snekkju að andvirði 700.000 sterlingspunda. En eins og dæmin sanna þá vill mikið meira og 26. nóvember, 1983, réðust sex vopnaðir menn inn í Brink's Mat-vöruhúsið á Hea- th row-flugvelli. Þeir helltu bensíni yfir öryggis- verðina og hótuðu að bera að þeim eld hefðu þeir sig ekki hæga. Sex- menningarnir höfðu á brott með sér heilmikinn ránsfeng, þar á meðal 6.800 gullstengur, platínum og demanta. Heildarverðmætið var um 26.369.778 sterlingspund. Innanbúðarmaður handtekinn Öryggisvörður að nafni Anthony Black hafði verið í vitorði með ræningjunum og gaf hann lög- reglu upp nafn eins þeirra. Einn af öðrum lentu þeir í höndum lög- reglunnar sem hafði Noye sterk- lega grunaðan um aðild að ráninu. Á meðan Noye var til rannsókn- ar vegna ránsins, 1983, varð hann leynilögreglumanni, sem hafði hann undir eftirliti, að bana. Noye bar við sjálfsvörn og var sýknaður. Árið 1986 var Noye sakfelldur fyrir að höndla með þýfi úr Brink's Mat-ráninu, dæmdur til að greiða samtals 700.000 sterlingspund og úrskurðaður í 14 ára fangelsi. Þær voru frekar kaldar kveðjurnar sem hann sendi kviðdómurum: „Ég vona að þið drepist öll úr krabba- meini.“ Fór huldu höfði Því fer fjarri að Kenneths sögu Noye hafi lokið þegar þarna var komið sögu. Hann afplánaði sjö ár og sneri heim þar sem honum tókst að láta lítið á sér bera um tveggja ára skeið. Þann 19. maí, 1996, var Noye á ferð á M25-þjóðveginum, skammt frá Kent, og lenti þá saman við annan ökumann, Stephen Camer- on. Til átaka kom og urðu lyktir þær að Noye stakk Camer- on til bana. Í kjölfarið beið Noye ekki boð- anna og flúði land og það var ekki fyrr en árið 1998, eftir tveggja ára leit, sem hann fannst á Spáni. Noye var framseldur til Eng- lands sjö mánuðum síðar og 14. apríl 2000 fékk hann lífstíðardóm. Noye áfrýjaði dómnum tvisvar; árið 2001 og 2004, en hafði ekki árangur sem erfiði n n Kenneth Noye var dugnaðarforkur í æsku n Hann lenti ungur á refilstigum vafasamra vinnubragða „Ég vona að þið drepist öll úr krabbameini.“ Frá örbirgð til auðlegðar Fékk lífstíðardóm Réttlætið sigraði að lokum í tilfelli Noye. Stephen Cameron Kembdi ekki hærurnar eftir deilu við Noye.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.