Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2017, Síða 52
28 sakamál Helgarblað 7. júlí 2017
K
enneth Noye fæddist í Bex-
leyheath í Kent-sýslu á
Englandi árið 1947. Fað-
ir hans sá um rekstur
pósthúss og móðir hans var
framkvæmdastjóri hundaveð-
hlaupabrautar. Noye varð ungur
að árum afar vinnusamur og sagði
skilið við nám fimmtán ára að
aldri. Hann sinnti mörgum störf-
um og var stoltur af því. Í upphafi
bar hann út dagblöð og mjólk og
tók að sér ýmis viðvik í verslunum.
Hann seldi prógrömm á hunda-
veðhlaupabrautum og reyndi fyr-
ir sér með blaðsöluturn í miðborg
London.
Hneigðist til glæpa
En glæpahneigð gerði einnig vart
við sig hjá hinum vinnusama Noye
og hann fékk tækifæri til að skoða
fangelsisveggi að innanverðu áður
en hann náði 23 ára aldri, eftir að
hafa verið gripinn glóðvolgur við
að höndla með stolna bíla.
En 23 ára kvæntist hann
Brendu, dóttur verkfræðings, og
drap aðeins niður fæti í prentun-
argeiranum og á áttunda áratug
síðustu aldar vann hann á nætur-
vöktum í prentsmiðju í Fleet Street
í London.
Stofnaði flutningafyrirtæki
Noye hugnaðist þó ekki að vinna
fyrir aðra til lengdar og ákvað að
verða sjálfstæður. Hann stofn-
aði flutningafyrirtæki með höfuð-
stöðvar í niðurníddu hjólhýsi fyr-
ir aftan bílskúr í West Kingsdown
í Kent. Síðan haslaði hann sér völl
í byggingargeiranum og enn síð-
ar í lóða- og jarðabraski sem hann
hagnaðist ágætlega á.
Árið 1977 hljóp snurða á þráð-
inn og Noye fékk eins og hálfs árs
skilorðsbundinn dóm fyrir ólög-
lega skotvopnaeign.
Einbýlishús og snekkja
En fyrir tilstilli ábatasams reksturs
komst Noye í álnir og 1980 byggði
hann tíu svefnherbergja setur í
Tudor-stíl skammt frá West Kings-
down. Til að bæta um betur þá
keypti hann einbýlishús á Kýp-
ur og snekkju að andvirði 700.000
sterlingspunda.
En eins og dæmin sanna þá
vill mikið meira og 26. nóvember,
1983, réðust sex vopnaðir menn
inn í Brink's Mat-vöruhúsið á Hea-
th row-flugvelli.
Þeir helltu bensíni yfir öryggis-
verðina og hótuðu að bera að þeim
eld hefðu þeir sig ekki hæga. Sex-
menningarnir höfðu á brott með
sér heilmikinn ránsfeng, þar á
meðal 6.800 gullstengur, platínum
og demanta. Heildarverðmætið
var um 26.369.778 sterlingspund.
Innanbúðarmaður handtekinn
Öryggisvörður að nafni Anthony
Black hafði verið í vitorði með
ræningjunum og gaf hann lög-
reglu upp nafn eins þeirra. Einn
af öðrum lentu þeir í höndum lög-
reglunnar sem hafði Noye sterk-
lega grunaðan um aðild að ráninu.
Á meðan Noye var til rannsókn-
ar vegna ránsins, 1983, varð hann
leynilögreglumanni, sem hafði
hann undir eftirliti, að bana. Noye
bar við sjálfsvörn og var sýknaður.
Árið 1986 var Noye sakfelldur
fyrir að höndla með þýfi úr Brink's
Mat-ráninu, dæmdur til að greiða
samtals 700.000 sterlingspund og
úrskurðaður í 14 ára fangelsi. Þær
voru frekar kaldar kveðjurnar sem
hann sendi kviðdómurum: „Ég
vona að þið drepist öll úr krabba-
meini.“
Fór huldu höfði
Því fer fjarri að Kenneths sögu
Noye hafi lokið þegar þarna var
komið sögu. Hann afplánaði sjö
ár og sneri heim þar sem honum
tókst að láta lítið á sér bera um
tveggja ára skeið.
Þann 19. maí, 1996, var Noye á
ferð á M25-þjóðveginum, skammt
frá Kent, og lenti þá saman við
annan ökumann, Stephen Camer-
on. Til átaka kom og urðu lyktir
þær að Noye stakk Camer-
on til bana.
Í kjölfarið beið Noye ekki boð-
anna og flúði land og það var ekki
fyrr en árið 1998, eftir tveggja ára
leit, sem hann fannst á Spáni.
Noye var framseldur til Eng-
lands sjö mánuðum síðar og 14.
apríl 2000 fékk hann lífstíðardóm.
Noye áfrýjaði dómnum tvisvar;
árið 2001 og 2004, en hafði ekki
árangur sem erfiði n
n Kenneth Noye var dugnaðarforkur í æsku n Hann lenti ungur á refilstigum vafasamra vinnubragða
„Ég vona að
þið drepist öll
úr krabbameini.“
Frá örbirgð til auðlegðar
Fékk lífstíðardóm Réttlætið sigraði að lokum
í tilfelli Noye.
Stephen Cameron Kembdi ekki
hærurnar eftir deilu við Noye.