Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 30
Magnað kvöld í boði Red Hot Chili Peppers Það ríkti mikil eftirvænting og stemning í Laugardalshöllinni síðasta kvöld júlí- mánaðar, enda tilefnið ærið: strákarnir í fönkrokkhljómsveitinni Red Hot Chili Peppers á leið á svið. Margir mættu vel undirbúnir, klæddir í boli eða fjár- festu í þeim á staðnum. En eins og vaninn er þá var hægt að kaupa varning merktan sveitinni á staðnum. Red Hot Chili Peppers er ein af farsæl-ustu hljómsveitum sögunnar, með yfir 80 milljón plötur seldar á heimsvísu, hefur verið tilnefnd til 16 Grammy-verðlauna (unnið sex þeirra) og þegar Billboard-listinn bandaríski er skoðaður þá hafa þeir átt flest lög í fyrsta sæti (13 talsins), flestar vikur í fyrsta sæti (85) og flest lög á topp tíu listanum (25 lög). Árið 2012 voru þeir innvígðir í frægðarhöll rokksins. Það var því ljóst að von var á góðri kvöld- stund í Höllinni og strákarnir stóðu svo sannarlega undir væntingum. Helstu slagarar þeirra fengu að hljóma og tóku tónleikagestir vel undir. Bassaleikarinn Flea, sem hafði að mestu orðið milli laga, hrósaði einnig tónleika- gestum sérstaklega fyrir að vera ekki stans- laust með símana á lofti og njóta frekar staðar og stundar. Vissulega fóru símar á loft af og til, enda nauðsynlegt að festa minninguna á samfélagsmiðla, en óvenju lítið var um eilífar upptökur eins og virðist vera orðin venja, frekar en undantekning. Hreint út sagt, frábær kvöldstund fyrir eldri sem yngri aðdáendur strákanna í Red Hot Chili Peppers. RokkaRafjölskylda Árni Hrafn falk, Guðbjörg María jensdóttir, sandra Rut falk og kristján Ársæll jóhannesson. Árni og Sandra eru börn gítarleikarans góðkunna, Guðlaugs falk, sem er nýlega fallinn frá. Mynd MuMMi Lu EinbEittuR Gítarleikarinn josh kling- hoffer var flottur á sviðinu. Mynd MuMMi Lú koMinn úR flea var fljótlega kominn úr að ofan enda mikill hiti og stemning í Höll- inni. Mynd MuMMi Lú VElkoMin anthony kiedis heilsar áhorfendum. Mynd MuMMi Lú tVEiR í stíl Félagarnir Matthías Hjartarson og Pétur kristófer oddsson búnir að kaupa bol og tilbúnir í tónleika. Mynd MuMMi Lú flottiR fEðGaR Feðgarnir ingvar axel og bjarni sveinn kristjánsson. Mynd MuMMi Lu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.