Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 56
32 Helgarblað 4. ágúst 2017 S arah Bernhardt var í lif­ anda lífi sögð frægasta kona í sögu Frakklands, fyrir utan Jóhönnu frá Örk. Í byrjun fyrri heimsstyrj­ aldar var hún beðin um að yfir gefa Parísarborg því menn stóðu í þeirri trú að Þjóðverj­ ar myndu leggja allt kapp á að taka hana sem gísl. Aðdáendur hennar kölluðu hana „hina guð­ dómlegu Söruh“. Þegar hún lá fyrir dauðanum safnaðist al­ þýða Parísarbogar saman fyrir utan heimili hennar og kraup í strætinu og bað fyrir lífi hennar. Íhugaði að gerast nunna Sarah Bernhardt fæddist í París árið 1844. Hún var dóttir vændiskonu sem virtist alla tíð standa á sama um dóttur sína. Sarah var heilsuveil sem barn og skortur á umhyggju og ástúð setti varanlegt mark á skapgerð hennar sem þótti bera vott um ójafnvægi og óöryggi. Eina ástúðin sem Söruh hlotnaðist í æsku kom frá abba­ dís í klausturskóla þar sem hún stundaði nám. Sarah var hinn mesti vandræðanemandi og var þrisvar sinnum rekin úr skóla fyrir óknytti. Kynnin af abbadís­ inni sem sýndi henni móður­ lega umhyggju höfðu svo mikil áhrif á Söruh að hún sagði að minningin um þessa góðu konu hefði gert sig að betri mann­ eskju en hún hefði annars orðið. Um tíma íhugaði hún jafnvel að gerast nunna. Í stað þess steig hún á svið átján ára gömul. Með árunum óx frægð hennar jafnt og þétt og um þrítugsaldur var hún í sýningarferðum um heim­ inn. Hún var orðin ein dáðasta kona heims. Henti hundi sínum út um glugga Sarah eignaðist son utan hjóna­ bands. Milli þeirra mæðgina ríkti alla tíð gagnkvæm ástúð en sonurinn varð auðnuleys­ ingi sem lifði alla tíð á móð­ ur sinni og varð ekki til mikils gagns í þessum heimi. „Hann er slæmur strákur en mér líkar vel við hann,“ sagði hin umburðar­ lynda móðir. Sarah giftist einu sinni, grískum aðalsmanni og eiturlyfjaætu, Damala að nafni, sem í hjónabandi niðurlægði hana opinberlega á allan hátt. Hún sagðist hafa gifst honum vegna þess að gifting væri það eina sem hún hefði átt eftir að reyna. Hjónabandið var átaka­ mikið og þótt þau væru löngum aðskilin voru þau enn gift þegar hann lést 34 ára gamall vegna ofneyslu morfíns og kókaíns. Sarah virtist syrgja einlæglega mann sem hafði reynst henni mjög illa. Eftir dauða hans undirritaði hún öll opinber skjöl: Sarah Bernhardt, ekkja Damala. Slúðurberar höfðu nóg við að iðja þegar Sarah átti í hlut. „Ég virðist laða að mér alla geðsjúk­ linga heimsins,“ sagði hún. „Ég held að engin kona hafi orðið fyrir meiri rógi og níði.“ Meðal þeirra sagna sem um hana gengu voru þær að hún svæfi í líkkistu sem fóðruð væri með bréfum frá elskhugum hennar en þeir áttu samkvæmt „áreið­ anlegum heimildum“ að hafa orðið þúsund áður en yfir lauk. Meðal þeirra voru sagðir vera Napóleon III, Rússakeisari og sjálfur páfinn. Hún átti reyndar líkkistu og lét mynda sig í henni enda var hún bæði sérvitur og uppátækjasöm. Sarah bjó yfir miklum persónutöfrum og gnægð af hjartahlýju. Hún málaði mynd­ ir, skrifaði rómantískar skáld­ sögur og safnaði bókum sem hún las sjaldnast. Hún hafði enga ánægju af tónlist sem hún sagði vera hávaða en samdi þó að minnsta kosti eitt píanóverk. Hún sankaði að sér dýrum og á einu ferðalagi sínu teymdi hún á eftir sér ljónsunga en neyddist til að láta hann frá sér þegar hót­ elin neituðu að hýsa hann. Hún var mikil skapkona og henti hundi sínum eitt sinn út um hótelglugga í bræðiskasti. Hún iðraðist þess samstundis, teygði sig út um gluggann meðan vinnukona hélt um fætur henn­ ar þar til henni tókst að hand­ sama hundinn sem lent hafði á sillu. Í annað skipti réðst hún inn í íbúð konu sem hafði skrif­ aði um hana níð, lamdi hana með svipu og gekk berserksgang um íbúð hennar. Talaði máli Dreyfusar Hún var einlægur friðarsinni, en dáði Napóleon. Allt frá byrj­ un sýndi hún mikið hugrekki í Dreyfusmálinu. Hún var aldrei í vafa um sakleysi Dreyfusar og hvatti rithöfundinn Emile Zola til að tala máli hans. Dagblöð birtu flennistórar fréttir á for­ síðu: „Sarah Bernhardt fylgir Zola að málum. Hin mikla lista­ kona stendur með gyðingum gegn hernum.“ Sarah var skapandi lista­ maður, sífellt í leit að nýjum víddum í leik sínum. Hún var ekki laus við sviðsskrekk og varð skelfingu lostinn ef hún taldi áhorfendur vera sér fyrir­ fram vinsamlega. Ef hún hafði grun um að áhorfendur væru tortryggnir í hennar garð þá var hún ákaflega yfirveguð og hin rólegasta. Þegar henni hafði tekist sérlega vel upp í leik sín­ um þá gaf hún jafnan sömu skýringuna: „Guð var þar“. Hún skrifaði um leiklist og lagði mikla áherslu á mikilvægi þess að nota röddina rétt, það væri röddin sem tengdi saman áhorfendur og leikara. Sömuleið­ is taldi hún líkamshreyfingu á sviði lykil að árangri. Frægustu hlutverk hennar voru í Phaedru og Kamelíufrúnni. Hún lék oft karlmannshlutverk og var 56 ára þegar hún spreytti sig á hlutverki Hamlet. Hún sagði karlmanns­ hlutverk vera bestu hlutverk­ in. Umtalað var hversu fljót hún var að læra hlutverk sín utan að, en hún sagðist gleyma textanum um leið og hún væri hætt að leika viðkomandi hlutverk. Hún var um sjötugt þegar taka þurfti af henni annan fót­ inn vegna veikinda en hún lét fötlunina ekki hamla sér og hélt á vesturvígstöðvarnar til að skemmta hermönn­ um um leið og hún var út­ skrifuð af spítalanum. Hún hélt áfram að leika fram í andlátið árið 1923 og var með fyrstu leikkonum til að leika í kvikmyndum. Hún sagði eitt sinn: „Við eigum sjaldnast að hata því það útheimtir of mikla orku, láta okkur oftast standa á sama, fyrirgefa oft og gleyma engu.“ n „Hún var mikl skap- kona og henti hundi sínum eitt sinn út um hótelglugga í bræðiskasti. Hin guðdómlega Sarah Sarah Bernhardt er ein frægasta leikkona allra tíma Hin guðdómlega Sarah Í lifanda lífi var hún sögð frægasta kona Frakklands. Leikkona sem allir dáðu Málverk eftir Georges Clairin. Á efri árum Taka varð af henni annan fótinn en hún lét það ekki aftra sér frá því að leika. MynD © naTionaL PorTraiT GaLLery, LonDon Umtöluð Hneykslishellur fengu aldrei nóg af því að fylgjast með þessari óvenjulegu konu. menning - KjarnaKonur úr fortíð Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.