Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Qupperneq 27
Þjóðhátíð 3Helgarblað 4. ágúst 2017 KYNNINGARBLAÐ Við erum í sjálfu sér ekki að fá fleiri gesti um verslunarmanna­ helgina en vanalega en við erum hins vegar að fá fjölmarga þjóðhátíðargesti hingað. Það er útbreiddur misskilningur að hér séu allir bara að drekka og skemmta sér á Þjóðhátíð. Hér er margt fólk sem nýtur þess að skoða menninguna yfir daginn og kemur hingað á safnið til að fræðast um eldgosin. Hins vegar er það einstakt um verslunarmannahelgina að þá eru einu gestirnir fólk sem sækir Þjóðhátíðina, því þá eru allar ferðir bókaðar fyrir þjóðhátíðargesti, hvort sem það er með flugi eða Herjólfi. Aðrar helgar koma hingað margir erlendir og innlendir ferðamenn.“ Þetta segir Kristín Jó­ hannsdóttir, forstöðumaður Eldheima, safns um Heima­ eyjargosið og Surtseyjar­ gosið, tvo heimssögulega viðburði. Safnið var opnað í maí árið 2014 og er því rúmlega þriggja ára gamalt. Um tvær ólíkar og aðskildar sýningar er að ræða, Heima­ eyjargosið 1973, sem lagði byggð í Vestmannaeyjum í rúst tímabundið, og hins vegar Surtseyjargosið, en það var neðansjávargos á árunum 1963–1967, sem myndaði Surtsey en eyjan er á heimsminjaskrá. „Miðpunktur sýningar­ innar um Heimaeyjargosið eru rústir húss úr gosinu. Hægt er að skoða það frá öllum hliðum en auk þess er hægt að standa við skjá með stýripinna og ferðast í gegnum húsið til að sjá hvaða hlutir voru skildir eftir og í hvaða ástandi þeir komu undan ösku eftir 40 ár,“ segir Kristín. Sú staðreynd að enginn lét lífið af völdum gossins hefur gert samstarf við íbúa um að gera þessari sögu skil auðveldara: „Þó að vissulega sé sárt að missa heimili sitt er það ekkert í líkingu við að missa ást­ vini. Núna er sá tími runninn upp að fólk er tilbúið að rifja upp þessa sögu og vill halda henni til haga fyrir komandi kynslóðir.“ Kristín segir að sýningarn­ ar um Heimaeyjargosið og Surtseyjargosið séu gjörólíkar: „Annars vegar eru það þessir mannlegu hrakningar og hins vegar eru það vísindin, en í Surtseyjar­ sýningunni er ferlið rakið nákvæmlega og vísinda­ legar upplýsingar framsettar á aðgengilegan hátt.“ Eldheimar eru til húsa að Suðurvegi/Gerðisbraut 10 í Vestmannaeyjum, eða við rætur fjallsins þar sem Heimaeyjargosið átti sér stað: „Fólk tekur þetta í sömu ferðinni, það gengur jafnvel á gíginn eða fer um hraunið og fær síðan restina af sögunni hérna á safninu á eftir,“ segir Kristín. Nánari upplýsingar um sýningarnar er að finna á Facebook eða heimasíðunni eldheimar.is. EldHEiMASAFNið opið lAUGArdAG, SUNNUdAG oG MáNUdAG Frá 13–17 Á Eldheimum fræðast þjóðhátíðargestir um sögu eldgosanna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.