Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 8
8 Helgarblað 4. ágúst 2017fréttir S elfyssingurinn Karitas Harpa Davíðsdóttir, sem vann söngkeppnina The Voice í febrúar síðast- liðnum, komst nýlega að því að hún og tveggja ára sonur hennar eru með sjaldgæfan erfðagalla eða heilkenni sem nefnist UHS (uncombable hair syndrome). Heilkennið lýsir sér í ljósu, þurru og ójöfnu hári sem erfitt er að ráða við. Það vex einnig hægar en annað hár. Um er að ræða stökk- breytingu á vissum genum og yfir- leitt er um einstök tilvik að ræða. Þó getur það verið arfgengt. Sjaldgæft heilkenni „Þetta er löng saga. Þegar ég var lítil var ég með eins hár og strák- urinn minn er núna með. Það hefur þó skánað nokkuð með aldrin- um,“ segir Karitas sem er einmitt á leiðinni með son sinn, Ómar Elí, í klippingu. „Mamma hafði ekki hug- mynd um hvaðan þetta hár kom, hvorugt foreldra minna er ljóshært eða með svo úfið hár. Fólk stoppaði mömmu úti á götu og spurði hvort hún vafflaði hárið á mér.“ Karitas segist nýlega hafa kom- ist að því hvers vegna hár þeirra mæðgina er eins og það er. „Ég fór inn í Facebook-hóp sem nefnist „mæðratips“, setti þar inn myndir af Ómari og spurði hvort einhver kannaðist við þetta. Þá kom í ljós að fleiri voru að kljást við sama vandamál og þá heyrði ég fyrst um þetta heilkenni, UHS.“ Hún las sér til um heilkennið á netinu og komst að því að allt passaði við tilvik hennar og Ómars Elís. „Ég sá að það var ekki eitt- hvað að okkur, það er fjöldi fólks sem er svona.“ Karitas segist ekki vita hversu margir eru haldnir UHS-heilkenninu hér á landi en á Facebook þræðinum var minnst á um það bil 10–15 tilvik. Þekkt fyrir krúttfaktorinn Karitas segir að mjög fáir séu greindir með UHS, fólk fari ekki og láti greina þetta og læknar hafi sjaldnast þekkingu á heilkenn- inu, það sé svo sjaldgæft. Sjálf vinnur hún á sjúkrahúsinu á Sel- fossi og hefur sagt læknunum þar frá UHS. UHS getur tengst öðrum sjúkdómum, svo sem í húð, bein- um og augum. Í þeim tilvikum er fólk hvatt til að hafa samband við húðlækni. Fólk er hins vegar farið að verða meðvitaðra um heilkennið. Vinkona hennar, sem vinnur hjá Íslenskri erfðagreiningu, sagði henni nýverið frá ráð- stefnu um sjaldgæfa erfða- galla sem haldin var hér á landi. Þar var minnst á UHS og tekið fram að heilkennið væri þekkt fyrir „krúttfaktor- inn“. Ef hár fólks með UHS er skoðað undir smásjá sést að það er öðruvísi í laginu en venjulegt hár. Þá eru hársekkirnir sjálfir hjartalaga en ekki kringlóttir eins og hjá flestum. „Þetta kemur ekki í ljós með fyrsta barnahárinu held- ur milli þriggja mánaða og tíu ára aldurs. Þetta lagaðist tölu- vert hjá mér á unglingsár- unum. Ábyggilega vegna alls kyns hormónabreytinga og fitumyndana í líkamanum.“ Hún segir hár sitt enn mjög þurrt og erfitt með- ferðar. „Ég set ekki sjampó í hárið á mér nema 1–2 sinn- um í viku. Það er mjög viðkvæmt enn, en ég hef lært að meðhöndla það með hár efnum. Ég hef einnig verið dugleg að setja náttúru- legar olíur og styrkjandi efni í hár Ómars, til dæmis Moroccan- og Argan- olíur.“ Karitas segir algengt hjá fólki með UHS að hárið losni auðveld- lega frá hársverðinum. „Ef einhver togaði í hárið á mér, þegar ég var lítil, kom það út í flyksum. Sem betur fer er hár Ómars ekki svo viðkvæmt.“ Útlendingar taka myndir í laumi Karitas segir þau mæðginin ekki verða fyrir miklu ónæði á Sel- fossi vegna hársins. Annað er hins vegar uppi á teningnum þegar þau heimsækja Reykjavík því þar fá þau mikla athygli frá erlendum ferða- mönnum. „Það er alltaf verið að taka ljósmyndir af Ómari í laumi, sem mér finnst ekki skemmtilegt. Það er ekkert mál að fá að taka mynd en mér finnst sjálfsagt að fólk spyrji fyrst. Hann er lítið barn.“ Hún segir fólk sem þau mæta spyrja hana hvort hárliturinn sé náttúrulegur og sumir pískra sín á milli. Hún myndi vitaskuld aldrei aflita hár tveggja ára barns. „Við sátum og borðuðum við Laugaveg- inn í gær. Þá byrjar eldri maður að renna fingrunum í gegnum hárið á honum án þess að spyrja. Hann tekur auðvitað ekki eftir neinu en ég er ekki sátt við svona framkomu.“ Karitas hefur einnig verið í nokkrum vandræðum með að fara með Ómar í klippingu. „Hann getur auðvitað ekki fengið venju- lega herraklippingu.“ Nota þarf mjúka bursta og ekki má greiða það harkalega eða nota hárþurrku. Þegar blaðamenn DV bar að garði var Ómar nýkominn úr snyrtingu og það virtist hafa gengið nokkuð vel. n Karitas Harpa og sonur hennar kljást við „krúttheilkenni“ n Þurrt, úfið og ljóst hár sem erfitt er að ráða við n Útlendingar taka myndir í laumi Kristinn Haukur Guðnasson kristinn@dv.is „Það er alltaf verið að taka ljósmyndir af Ómari í laumi, sem mér finnst ekki skemmtilegt. Ómar Elí Tveggja ára. Mynd Brynja Karitas Harpa Hárið kom foreldrunum í opna skjö ldu. Karitas og Ómar Elí Hárið vekur athygli. Mynd Brynja Eldbakaðar pizzur hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni salur fyrir hópa sími 557 1007 hamborgarar, salöt, pasta, kjúklingavængir og flEira
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.