Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 17
Helgarblað 4. ágúst 2017 KYNNING Fox oN Route – FlöKKuReFuRINN: Við vorum mikið að spá í tjöld sem pössuðu við íslenskar aðstæð­ ur og tókum okkur góðan tíma í að prófa þetta. Við vorum með tjald ofan jepp­ anum í heilt ár og tókum aldrei niður, sama hvernig viðraði. Það er til dæmis í þessu rafmagnskerfi sem mikilvægt er að þoli rign­ ingu en það klikkaði aldrei allan tímann,“ segir Kolbeinn Hreinsson sem flytur inn bílatjöld undir merkinu Fox on Route. Starfsemin er hliðarbúgrein hjá Kolbeini og eiginkonu hans, Helenu Hermansen, en þau reka líka fyrirtækið M1 sem sérhæfir sig í fasteignaviðhaldi. „oft veldur raki myglu í tjöldum en það gerðist aldrei með þetta,“ bætir Helena við. Bíltjöld eru mjög þægileg­ ur kostur fyrir þá sem vilja ferðast um landið og tjalda þegar hentar án mikils fyrir­ vara. Þau eru líka óneitan­ lega þægilegri í meðförum en tjaldvagnar. „Við vorum í jeppaklúbbi og ferðuðumst mikið um hálendið og drógum þá alltaf á eftir okkur fellihýsi. Mér fannst það alltaf nokkuð erfitt, þurfti sífellt að hækka vagnana upp og oft rákust þeir niður,“ segir Kolbeinn. tjöldin eru með sjálfvirkan upphífingarbúnað sem er tengdur í 12v og honum stýrt með fjarstýringu. Hann reisir tjaldið upp á einni mínútu. Innanmál hvers tjalds er 2 m x 1,4 m og gert er ráð fyrir því að 2–3 fullorðnir geti gist í tjaldinu. tjöldin eru regnheld og vindheld, með tveimur dýnum, ein ofan á hinni sem gerir svefninn þægilegri. Báðar dýnurnar eru vel einangraðar. tjöldin henta í hálendis­ ferðir, veiðiferðir, norður­ ljósaferðir, útihátíðir, bæjar­ hátíðir eða hvers konar frí sem fólk er að fara í. tjaldið kemst ávallt auðveldlega fyrir og allt sem bíllinn kemst það kemst tjaldið líka, ólíkt því sem getur gilt um tjaldvagna. Sem fyrr segir hafa Helena og Kolbeinn látið reyna hressilega á tjöldin í íslenskri veðráttu og þau minnast þess þegar þau settu tjaldið einu sinni upp í kolvitlausu veðri: „Þá varst þú nú hræddur,“ segir Helena og Kolbeinn ját­ ar því: „Já, ég hélt það myndi fjúka. en það fauk ekki. Þetta var úti við sjóinn, góð öldu­ hæð, hávaðarok. Ég hafði líka áhyggjur af því hvort hífingar búnaðurinn myndi virka en hann þurfti að leggja sig saman á móti vindinum. en það var bara ekkert mál.“ Þess má geta að dóttir þeirra Helenu og Kolbeins, Kristín Birna Kolbeinsdóttir, hannaði merki fyrirtækis­ ins. Fyrirtækið ber heitið Flökkurefurinn á íslensku en Fox on Route er enska heitið á því. Framleiðandinn er kín­ verskur en þau Kolbeinn og Helena völdu þennan fram­ leiðanda eftir að hafa leitað lengi að tegund sem hentaði best íslenskum aðstæðum. Flökkurefurinn miðar aðallega á íslenskan markað hvað snertir sölu á tjöldunum en líka er boðið upp á tjald­ leigu sem erlendir ferðamenn nýta sér gjarnan. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni foxon­ route.net þar sem sjá má frekari upplýsingar um tjöldin, verð og fleira auk mynda og myndbanda og á Facebook­síðunni Flökkurefurinn. einnig er gott að hafa samband við Kolbein eða Helenu í símum 896­6614 og 843­3230 ef áhugi er fyrir því að skoða tjöld. Jafnframt er hægt að senda póst á netfangið foxonroute@foxon­ route.com. Meðfærileg bíltjöld sem þola íslenska veðráttu Innanmál hvers tjalds er 2 m x 1,4 m og gert er ráð fyrir því að 2–3 fullorðnir geti gist í tjaldinu. Mynd: Brynja Það er auðvelt að koma tjöldunum fyrir ofan á bílnum, þægilegt að ferðast með þau og ekki spillir fyrir að þ au eru smekkleg og snotur í útliti. Mynd: Brynja Mynd: Brynja Mynd: Brynja Mynd: Brynja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.