Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 36
Hrollvekjan Annabelle: Creation heimsfrumsýnd á Íslandi Langar þig í bíómiða? -Skylduáhorf fyrir hrollvekjuaðdáendur Kvikmyndin Annabelle: Creation verður heims-frumsýnd í Sambíóun- um þann 9. ágúst næstkomandi og er óhætt að lofa góðum trylli fyrir spennu- og hrollvekjuað- dáendur, enda engir byrjendur í bransanum sem koma að myndinni. Aðalframleiðandi er James Wan, en fyrsta mynd hans var hin frábæra Saw (2004), sem hann leikstýrði og skrifaði handritið að. Myndin hefur leitt af sér átta framhalds- myndir og kom Wan að fimm þeirra. Myndin fjallar um hjónin, Samuel brúðugerðarmann og eiginkonu hans, Esther. Tólf árum eftir að dóttir þeirra deyr í skelfilegu bílslysi ákveða þau að opna heimili sitt fyrir og breyta því í heimili fyrir munaðarlausar stúlkur. Í byrjun gengur allt vel, en fljótlega fara skelfilegir atburðir að gerast í húsinu og ljóst að brúðan Annabelle á einhvern hlut þar að máli. Myndin er eins og nafnið gefur til kynna upprunasaga brúðunnar Annabellu og því forsaga myndarinnar Annabelle (2014), en sú mynd var síðan ákveðin forsaga atburðanna í Conjuring-myndunum, sem komu út 2013 og 2016 og er þriðja myndin í vinnslu. Það eru Lulu Wilson og Talitha Bateman, 11 og 16 ára, sem fara með aðalhlutverkin og hafa þær fengið fína dóma fyrir. Leikstjóri Annabelle: Creation er hinn sænski David F. Sandberg sem fékk góða dóma fyrir Lights out (2016), sem var fyrsta myndin sem hann leikstýrði í fullri lengd, en myndin er byggð á stuttmynd hans frá árinu 2013. Fram- leiðandi Lights out var James Wan og greinilega eiga þeir félagar gott samstarf í hryllingsmynda- geiranum. AnnaBelle: Creation er sýnd í Sambíóunum og í samstarfi við þau gefum við miða á myndina. Þrír einstaklingar verða dregnir út og fá tvo miða hver. Það eina sem þú þarft að gera til að eiga kost á miðum er að senda tölvupóst með nafni þínu og símanúmeri á ragna@dv.is eða skilja eftir skilaboð fyrir neðan greinina á dv.is eða Face- book-síðu okkar fyrir 9. ágúst næst- komandi. Vinnings- hafar verða látnir vita með tölvupósti fyrir hádegi þann 9. ágúst og geta sótt miða sína á skrif- stofu DV. LuLu WiLson Leikur Lindu Þegar kemur að því að fjárfesta í nýjum bíl er úr vöndu að ráða og úrvalið gríðarlegt. Fjöldi bíla, bæklinga og mynda að skoða og spekúlera í. En nú er komin skemmtileg nýjung, því Ísband býður þér að skoða og kynna þér nýjan bíl í snjallsímanum. Íslensk-Bandaríska ehf. í Mos-fellsbæ er með bráðskemmtilega nýjung í boði fyrir væntanlega bílaeigendur, sem geta nú skoðað Jeep Compass í snjallsímanum. Þessi tækni hefur aldrei áður verið notuð hér á landi við kynningar á nýjum bíl. Birta fór og kynnti sér málið og flautaði meðal annars bílflautunni, með snjallsímanum! „Um er að ræða sérhannað for- rit fyrir kynningu á Jeep Compass, byggt á Tango hugbúnaði, sem Google hannaði fyrir snjallsíma. Og kynninguna sýnum við á Lenovo Phab2 Pro snjallsíma,“ segir Sigurður Kr. Björnsson, mark- aðstjóri Íslensk-Bandaríska ehf. Jeep Compass verður síðan frumsýndur þann 26. ágúst næst- komandi, sama dag og bæjarhátíð Mosfellinga „Í túninu heima“ hefst. Skoðaðu bílinn í snjallsímanum Skemmtileg nýjung í bílaviðskiptum BíLLinn kominn í snjaLL- símann Nú er hægt að skoða bílinn í snjallsímanum, í stað þess að fletta bæklingi. Mynd Brynja Fyrstu BíLarnir koma í Lok ágúst, en þangað tiL má skoða þá í snjaLLsímanum. „Fyrstu bílar sem koma verða „Launch Edition“ og eru það vel útbúnir bílar í Limited útfærslu með mismunandi útbúnaði þó. Fyrst um sinn verður 2.0 lítra 170 hestafla dísilvél í boði, en síðar verður hægt að fá 1.4 lítra 170 hestafla bensínvél. Þá mun Compass verða fáanlegur í Trailhawk útfærslu, sem mun hafa meiri veghæð og vera betur útbúinn til aksturs utanvega,“ segir Sigurður. Mynd Brynja FLautan virkar! Það má meira að se gja prófa flautuna í bílnum, með snjallsímanum. Mynd B rynja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.