Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 64
40 menning Helgarblað 4. ágúst 2017
G
uðlaugur Arason hefur
undanfarin ár unnið að
gerð svonefndra álfabóka.
Hann hefur sýnt þær víða
um land og á þessu ári sýndi hann
á Ísafirði og Akranesi. Nú er komið
að síðustu sýningunni, sem er í
menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Sýningin verður opnuð 3. ágúst
og stendur út ágústmánuð. Eftir
það heldur Guðlaugur úr landi.
„Ég hef fengið mig fullsaddan af
þessari íhaldseyju og ætla að flýja
til Danmerkur,“ segir hann. „Þar
sem ég er ekki háður neinum,
skulda engum neitt og get ráð-
ið mér sjálfur þá ætla ég að gera
þetta núna og anda að mér annars
konar lofti. Ég ætla að setjast að í
Mols-héraði úti á Jótlandi og ger-
ast þannig alvöru Molbúi.“
Guðlaugur er búinn að ráða
sér umboðsmann í Danmörku
og ætlar að fara á markað þar og
gera danskar álfabækur. Hann bjó
í áratugi í Danmörku og þekkir því
danskt samfélag vel. „Það er ekki
eins sárt að tuða í Danmörku og á
Íslandi. Ástandið á Íslandi tek ég
svo inn á mig að ég hef ekki taugar
í að búa hérna. Það er skömminni
skárra þegar maður er kominn til
Danmerkur, þá er maður ekki í
sínu eigin landi og getur leyft sér
að tuða því þá er komin ákveðin
fjarlægð frá því sem maður er
óánægður með.
Mér finnst misréttið og órétt-
lætið sem er alls staðar í kring-
um okkur skrýtið og það virðist
ekki minnka heldur aukast. Ég er
fæddur kommúnisti, stútfullur af
réttlætiskennd og get ekkert að því
gert. Fyrir mér er sósíaldemókrati
sama og framsóknarmaður.“
Býr í húsbíl
Guðlaugur verður á Dalvík meðan
á sýningu hans þar stendur og býr
í húsbíl, eins og hann gerði á Ísa-
firði og á Akranesi. „Á yndislegu
sumri þegar hlýtt er og hitabylgjur
ganga yfir landið eins og nú um
stundir, þá er gott að búa í húsbíl.
Ég kann vel við svona sígaunalíf.
Það er erfitt yfir veturinn í mestu
stórhríðunum að búa þannig en
það er allt í lagi yfir sumarið, ekki
síst þegar maður hefur tilgang í
því að fara á milli staða.“
Guðlaugur hefur alls gert um
360 álfamyndir sem allar eru
númeraðar. Hann er spurður um
viðbrögð við þeim. „Fólk verður
glatt við að sjá þær, slær sér jafn-
vel á lær og brosir. Þær höfða líka
til krakka. Það fylgir því mikil gleði
að sýna þær.“
Reynir alltaf að gera betur
Hvernig fékkstu þá hugmynd að
búa til álfabækur?
„Frá því ég man eftir mér hefur
legið fyrir mér að búa til bækur.
Ég hef verið að skera út bækur,
mála bækur, binda inn bækur og
skrifa bækur. Í Suður-Evrópu er
aldagömul hefð fyrir gerð lítilla
bóka og það er hægt að læra að
búa þær til. Ég bjó í Sviss í nokkur
ár og þar kynntist ég manni sem
gerði litlar ævintýramyndir í þrí-
vídd. Ég ræddum saman um gerð
lítilla mynda. Ég vildi athuga hvort
ég gæti ekki gert litlar bækur eftir
bókunum í bókasafni mínu. Ég
tók nokkra mánuði í að búa til
litlar útgáfur af Íslendingasögun-
um. Það tókst og síðan átti þetta
ekki að vera meira. En svo var ég
orðinn svo ánægður með sjálfan
mig að ég fór að velta því fyrir mér
hvort ég gæti gert betur. Ég er enn
að reyna að gera betur.“
Hann segist ekki geta svarað því
hversu lengi hann sé með hverja
mynd. „Ég er alltaf með margar
myndir í takinu. Það eru heilu
vikurnar sem ég er bara að búa
til bækur og svo er ég að smíða
ramma og kassa. Svo einn góðan
veðurdag, eftir nokkrar vikur, er
efniviðurinn orðinn þannig að ég
get farið að mála og líma bækurn-
ar og raða þeim upp. Þá eru allt í
einu orðnar til nokkrar myndir.“
Ráð frá vinkonu
Guðlaugur er rithöfundur og
meðal skáldsagna hans má nefna
Eldhúsmellur, Pelastikk og Sóla,
Sóla. Langt er síðan skáldsaga
eftir hann kom út. „Ég er alltaf
að skrifa, ég gef bara aldrei neitt
út. Ég er aldrei nógu ánægður
með það sem ég geri,“ segir hann.
„Dönsk vinkona mín sagði: Gulli,
þú átt ekkert að vera að skrifa,
það er fjöldi fólks sem er að skrifa,
bæði góðar bækur og vondar
bækur, slepptu því. Gerðu það
sem enginn annar getur og það er
að búa til litlar álfabækur.“ n
n Guðlaugur Arason sýnir álfabækur sína á Dalvík n Flytur til Danmerkur
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Ætlar að gerast
alvöru Molbúi
„Fólk verður
glatt við
að sjá þær, slær
sér jafnvel á
lær og brosir.
Guðlaugur Arason
„Ég vildi athuga hvort
ég gæti ekki gert litlar
bækur eftir bókunum í
bókasafni mínu.“
Mynd SiGtRyGGuR ARi
Litlar bækur „Það eru
heilu vikurnar sem ég er
bara að búa til bækur.“
Mynd SiGtRyGGuR ARi
Hefur gert um 360 álfamyndir
„Það fylgir því mikil gleði að sýna þær.“
Mynd SiGtRyGGuR ARi