Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 10
10 Helgarblað 4. ágúst 2017fréttir Þ að hefur oft verið líflegra við Hlemm en undan- farin ár. Þó að þar séu enn tengistöðvar fyrir strætisvagna dugar það ekki til að glæða torgið miklu mann- lífi enda er sjálft biðstöðvar- húsið lokað. Nú standa vonir til þess að mannlíf á Hlemmi muni brátt verða meira og fjölskrúð- ugra með opnun Mathallar í gamla biðstöðvarhúsinu sem mun hýsa tíu aðila, veitingastaði og matarkaupmenn. Markmið þeirra sem reka Mathöllina er að fá mannlíf til að blómstra á Hlemmtorgi sem aldrei fyrr. Nafnið Hlemmur er dregið af brúarstubbi sem var yfir Rauðará en hún rann þar sem gatan Rauðarárstígur er núna. Fólk komst því fótgangandi eða á hestbaki yfir ána vegna „hlemmsins“. Á svæðinu var vatnsþró þar sem hægt var að brynna hestum og síðar þegar bílar höfðu leyst hesta af hólmi sem farartæki var lengi bensín- stöð BP á Hlemmi. Gasstöð var starfrækt á Hlemmi frá 1910 til 1956 og stendur gamla Gas- stöðvarhúsið ennþá við torgið. Leigubílastöðvar hafa verið við Hlemm óslitið frá stríðsárum en árið 1970 voru tengistöðvar fyrir strætisvagna fluttar þangað frá Kalkofnsvegi. Árið 1978 var reist þar biðstöðvarhúsið sem þar hefur skýlt strætisvagnafar- þegum undanfarna áratugi. Húsið er lokað núna en mun hýsa Mathöllina innan tíðar. Á árunum í kringum 1980 fylltu unglingar gjarnan bið- stöðvarhúsið, þeir reyktu þar innandyra og sumir neyttu áfengis og annarra vímugjafa. Unglingavandamálið á Hlemmi fjaraði nokkuð út er nær dró aldamótum en lengi vel vöndu útigangsmenn komur sínar á svæðið og barinn Keisarinn sem þarna var staðsettur var mörgum þyrnir í augum. Úti- gangsmönnum við Hlemm hef- ur fækkað mikið og umfram allt er svæðið rólegt núorðið. Þarna eru samt nokkrir veitingastaðir í nágrenninu, kaffihús og barir, en ekki fjölsóttir. Lækjartorg, Laugavegur og Skólavörðustígur hafa iðað af lífi undanfarin ár og ekki síst hafa erlendir ferðamenn fyllt göturn- ar. Þegar upp á Hlemm er kom- ið tekur hins vegar götu ysinn að hljóðna mjög og svæðið er ein- kennilega rólegt í samanburði við miðbæinn og Hlemm for- tíðarinnar. Mathöllin gæti breytt þessu. Mathöllin á sér erlendar fyrirmyndir „Það hefur verið rólegt þarna undanfarið enda höllin verið lokuð og ekki mikið um að vera þarna í svolítinn tíma. En þetta er falleg bygging sem Gunnar Hansson hannaði þarna upp- haflega árið 1978. Hlemmur er líka eitt af fáu almennilegu torgunum í Reykjavík og var það hannað með það í huga að þarna yrði mikið mannlíf og einhvers konar miðpunktur sem átti að tengja umferðina saman. Við teljum að auðvelt sé að fylgja þeirri hugmynd eftir,“ segir Ragnar Egilsson, framkvæmdastjóri Hlemmur Mathallar. Tíu aðilar munu bjóða upp á mat og veitingar í Mathöllinni á Hlemmi: „Svona mathallir eru oft vendipunktar í hverfum og verða miðstöðvar fyrir mann- lífið almennt og það er hug- myndin með þessari mathöll að blása lífi í hverfið. Þessi nýja alda markaða af þessu tagi, t.d. Copenhagen Street Food, Tor- vehallen og Great Nordic Food Hall eru viðmið sem við lítum til. Þarna verða tíu veitinga- staðir og kaupmenn. Þetta eru fyrst og fremst veitingastað- ir, en þó verða þarna íslenskir grænmetisbændur með græn- meti í lausasölu og ýmsa græn- metisrétti á boðstólum. Þarna verður Ísleifur heppni sem verður með ísgerð með fljót- andi köfnunarefni, Jómfrúin verður þarna með sinn fyrsta nýja stað fyrir utan staðinn við Lækjargötu, síðan verður alvöru Taco-staður með taco og ým- islegt annað mexíkóskt góð- gæti, hann heitir La Poblana. Bánh Mí er staður sem verð- ur með víetnamskar samlok- ur. Veitingastaðurinn Borðið úr Vesturbænum verður með lang- hangikjöt, súrsað grænmeti og ýmislegt annað góðmeti, þau verða mitt á milli þess að vera kaupmaður og veitingastaður. Kröst verður með grill og göm- ul vín. Skál! verður með gæða- bjór og barmat. Te og kaffi verð- ur með Micro Roast og Brauð & Co. verður þarna með nýjan stað, sinn þriðja, og býður upp á súrdeigsbrauð, sætabrauð og pítsur,“ segir Ragnar. Frumleiki og gæði eiga að einkenna framboðið í Mathöll- inni: „Þarna verða engar stórar keðjur. Sumir hafa verið með rekstur annars staðar en eru þarna að bjóða upp á sérstaka útgáfu af sínu, en aðrir eru að opna starfsemi í fyrsta sinn.“ Strætisvagnar munu áfram stöðva á Hlemmi „Við höfum enga aðkomu að strætó. Það liggur fyrir að flytja strætisvagnastöðvarnar niður á BSÍ þegar BSÍ hefur verið upp- gerð og það er ekki að fara að gerast alveg á næstunni. En jafnvel eftir að tengistöðin hefur verið flutt niður á BSÍ þá verða áfram strætisvagnaferðir og stoppistöð hér. Það verður bara ekki aðalstöð,“ segir Ragnar að- spurður um framtíð strætis- vagna á Hlemmi. Hann segist fagna strætó sem og öllu öðru mannlífi á svæðinu. En er áhættusamt að opna mathöll á þessu svæði sem hef- ur verið svo rólegt lengi? „Veitingabransinn er alltaf áhættusamur en ég er mjög bjartsýnn á þetta. Kosturinn við mathallir er líka sá að þegar einn aðili verður vinsæll þá dregur hann að fólk fyrir alla hina. Þannig að þetta er einn fyrir alla og allir fyrir einn. Fjöl- breytnin þarna er líka styrkur þannig að þó að einhver verði leiður á einum aðila er stutt yfir í þann næsta.“ Reykjavík á biðstöðvarhúsið áfram. Fyrir- tækið Hlemmur Mathöll, sem Ragnar er í forsvari fyrir, leigir húsið af borginni og framleigir það áfram til rekstraraðilanna sem verða inni í höllinni. En á Ragnar von á því að erlendir ferðamenn flykkist á Hlemm eftir opnun Mathallarinnar? „Fólk kannast við svona mathallir frá öðrum löndum og verður örugglega ekki lengi að kveikja á perunni. Hins vegar er það í sjálfu sér ekki okkar mark- mið að kynna þetta fyrir erlend- um ferðamönnum heldur fyrir Reykvíkingum sjálfum. En við erum að fara hér inn í eitthvað sem fólk kannast við og það verður ekki erfitt að sannfæra fólk um ágæti svona mathalla.“ Opnun Mathallarinnar er ráðgerð 15. ágúst en sú tíma- setning er ekki endanlega stað- fest. Ljóst er að höllin verður opnuð í ágústmánuði. Opið verður frá morgni til kvölds alla daga vikunnar en endanlegur afgreiðslutími hefur ekki held- ur verið fastsettur. Leyfi hefur fengist fyrir því hafa opið frá 7 á morgnana til 11 á kvöldin. n Verður brátt líf og fjör á Hlemmi? n Mathöllin á Hlemmi opnuð fljótlega n Á sér fjölda erlendra fyrirmynda „Svona mathallir eru oft vendi- punktar í hverfum og verða miðstöðvar fyrir mannlífið almennt og það er hugmyndin með þessari mathöll að blása lífi í hverfið. Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is Gamla gasstöðin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.