Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Qupperneq 15
umræða 15Helgarblað 4. ágúst 2017 alhæfandi, þá hafa margir bæði í ræðu og riti haft það til marks um lélegan húmor Íslendinga hvað sögurnar í umræddum heftum falla oft dauðar niður. En þá eru menn óneitanlega að láta yfir­ skriftina blekkja sig; hefði titill­ inn verið annar er eins líklegt að menn myndu ekkert alhæfa út frá honum, heldur bara sjá að þetta eru sögur úr stoltum flokki þjóð­ sagna af þessu tagi sem flestar eru betur sagðar; þær segja ekkert um kímnigáfu neinna annarra en skrásetjarans sjálfs. Á sama tíma og þær voru færðar í letur var verið um allt land að hripa niður miklu fyndnari og betur sagðar sögur, að maður tali nú ekki um bókmenntir sömu ára, og það þótt maður nefni ekki af­ burða húmorista eins og Þórberg Þórðarson eða Halldór Laxness. Íslensk fyndni verður ekki endi­ lega að henni þótt einhver höf­ undur kunni að kalla sögur sínar því nafni, og þetta mættu menn hafa í huga næst þegar þeir hrapa að stórum ályktunum sem aldrei hefðu komið þeim í hug ef bóka­ flokkurinn hefði heitið „Kerskni úr ýmsum áttum“ sem hefði verið jafn nærtækt. Upp og ofan eins og gengur En víkjum aftur að Hundrað og einni nýrri vestfirskri þjóð­ sögu, en sex hefti af átta keypti ég fyrir nokkrum árum af útgef­ andanum sem var þá með lítinn söluskúr fyrir bækur Vestfirska forlagsins niðri við höfn á Þing­ eyri við Dýrafjörð. Það eru alveg hreinar línur að margar af sögun­ um í bókunum eru afbragðsvel sagðar, hreinar perlur, þótt gæð­ in séu reyndar afar misjöfn eins og að líkum lætur. Húmorinn er reyndar ærið kallalegur, enda fjalla næstum allar sögurnar um karlmenn og oft þeirra blaut­ legu athugasemdir. Og þótt ég sé reyndar orðinn dálítið leiður á langdregnu kveini um karlrembu í bókum, verð ég samt að segja að í þessum kverum sem hér um ræðir eru athugasemdir um kon­ ur stundum hreinlega grófar og hljóta sumar að vera meiðandi þegar fólk er nafngreint. En þótt sögurnar séu kallalegar þá eru konur þó hetjur þeirra innan um, eins og ein albesta sagan að mínu mati, en hún er úr bindi númer tvö, heitir „Hvort er séní“: „Í fyrirsögn samantektar DV um séra Gunnar Björnsson í Holti í Önundarfirði var haft eftir göml­ um vini séra Gunnars, að hann væri misskilið séní. Nokkru síðar hringdi blaðamaður í Holt og frú Ágústa Ágústsdóttir, eiginkona séra Gunnars, kom í símann. „Hvernig er að vera í hjónabandi með séní?“ spyr blaðamaðurinn. „Ég get nú lítið sagt um það“, svar­ ar frú Ágústa. „Þú ættir frekar að spyrja manninn minn.““ Séra Baldur í Vatnsfirði Ýmsir menn koma mikið við sögu í þessum þáttum, og þá gjarnan vegna orðheppni sinnar. Þeirra á meðal er sá frægi klerkur og pró­ fastur Baldur Vilhelmsson í Vatns­ firði, sem lést í elli fyrir tæpum þremur árum. Um séra Baldur var eitt sinn gerður skemmtilegur sjónvarpsþáttur, og sá sem þessar línur skrifar kynntist hinum aldna prófasti þannig að hann hringdi gjarnan í mig snemma árs eftir að hafa lesið þá nýútkomna bók og vildi ræða efni hennar og ýmislegt annað við höfundinn; urðu það oft skemmtileg símtöl, sem enduðu á þann veg að hann sagði: „Ég heyri betur í þér góði“. Ég er ekki með öll hefti vestfirsku þjóðsagn­ anna undir höndum, en ein fræg­ asta sagan af Baldri og er að mig minnir í fyrsta heftinu og á þá leið að eitt sinn var hann að aka um Ísafjarðardjúp og kom þar fram á svínshræ, sem trúlega hafði dottið af sláturbíl. Klerki þótti óþrifnað­ ur af þessu, farið að slá í hræið og fluga að gjóta í augntóftir svo hann hringdi í lögregluna á Ísafirði og bað hana að sjá um að þetta yrði fjarlægt. Sá sem varð fyrir svör­ um á lögreglustöðinni þekkti pró­ fastinn og svaraði í gamansömum tón: „Hvern andskotann ertu að hringja í okkur út af þessu? Við skiptum okkur ekkert af dauðu svíni inni í Djúpi.“ Þá sagði klerk­ ur: „Já, já, góði. Þetta er nú allt í besta lagi. En það hefur nú verið venjan hérna í prestakallinu að láta þá nánustu vita þegar dauðs­ föll verða.“ Önnur saga af séra Baldri var einhvern veginn á þá leið að hann hafði gumað af veiðilendum sín­ um inni í Djúpi og hvað hægt væri að háfa þar marga lunda á einum degi, og bauðst jafnframt til að lána mönnum háfa ef þeir kæmu og vildu reyna sig. Einhverjir tóku hann á orðinu, komu og veifuðu háfunum daglangt en höfðu sára­ lítið upp úr krafsinu. Þeir skömm­ uðu svo klerkinn og spurðu hvers vegna þeir hefðu fengið svona lítið í samanburði við það sem hann hefði sagt. Er skammar­ lesturinn þagnaði sagði séra Bald­ ur: „Gestaháfar góði, gestaháfar.“ Vagnstjórinn Annar maður sem verður efni í nokkrar góðar sögur í þessum heftum er Guðbjartur Jónsson sem kallaður var vagnstjóri er hann rak veitingahúsið Vagninn á Flateyri. Hann þótti fljótur að hugsa en fór stundum fram úr sér í orðatiltækj­ um, að því er hermt er; um póli­ tískt álitamál á hann að hafa sagt: Ég er hissa á hvað fáir vita þetta, því þetta vita allir! Ein afbragðs­ fín saga er svona í meðförum Gísla heitins í fimmta heftinu: „Guðbjartur vagnstjóri Jónsson á Flateyri var eitt sinn fenginn til að leysa af í beitningu í Bolungarvík og tók hann ekki í mál að fara upp á annað en beita tíu bala á dag. Fyrsta morgun­ inn mætti Guðbjartur klukkan níu. Landformaðurinn tók óblíð­ lega á móti honum og gerði hon­ um það ljóst á beituskúramáli, að hér byrjuðu menn að beita klukk­ an sex en væru ekki að drattast til vinnu klukkan níu að ganga tíu, því allt þyrfti að vera búið klukkan þrjú á daginn. Guðbjartur svaraði þessu litlu, hóf að beita og kláraði sína tíu bala. Þegar hann fór heim klukkan tvö sagði hann um leið og hann fór: Á Flateyri er aldrei spurt hvenær menn byrja heldur hvenær þeir eru búnir. Þegar Guð­ bjartur kom aftur til Flateyrar fóru menn að ræða þetta við hann. Var þá til þess tekið hvað hann hefði verið fljótur með þessa tíu bala, ekki nema fimm klukkutíma. Það þýddi að hann hefði beitt að meðal tali tvo bala á klukkutíma. Þá svaraði Guðbjartur af hóg­ værð: Það er ekki lengi gert að beita í klukkutíma.“ Tvær í lokin Úr því að nú fer í hönd mikil ferða­ helgi læt ég hér fylgja í lokin kjarn­ ann úr tveimur sögum úr þessum bókaflokki, sem upplagt er að lesa upp fyrir ferðafélaga á löngum akstri. Í þeirri fyrri segir frá Sig­ urði Þórðarsyni, bónda á Lauga­ bóli í Nauteyrarhreppi í Djúpi, en hann var sagður hafa haft gaman af að ýkja er hann sagði sögur. Eitt sinn hafði honum áskotnast for­ láta riffill með kíki, og Matthías Bjarnason alþingismaður á að hafa spurt hann hvort riffillinn væri ekki góður? „„Minnstu ekki á það verk­ færi“, sagði Sigurður. „Það geigar ekki skot. Ég get sagt þér að hann Jónsi gamli hérna á Bjarnastöð­ um hinum megin við fjörðinn bað mig að skjóta fyrir sig hrút. Ég nennti ekki að fara fyrir Ísa­ fjörðinn og sagði honum að fara með hrútinn út um kvöldið klukk­ an níu og standa við fjárhúsið. Ég væri kominn með svo góðan riffil og það væru nú ekki nema tve­ ir kílómetrar yfir fjörðinn. Jónsi gamli kom út með hrútinn á um­ ræddum tíma og stóð með hann í klofinu við fjárhúshornið. Ég skaut svo yfir fjörðinn og hrútur­ inn steinlá.“ „Mikill andskotans snillingur ertu, Siggi“, segir Matti. „Það er nú ekkert“, segir Sig­ urður, en ég dáðist að karlskratt­ anum að þora að hafa hrútinn í klofinu.““ Og úr því séra Gunnar Björns­ son var nefndur hér fyrr í pistlin­ um þá kemur þessi hér: „Á prestskaparárum séra Gunnars Björnssonar í Bol­ ungarvík (1972–82) varð hann þess áskynja, að rígfullorðið sam­ býlisfólk, sem bjó á Mölunum, hefði aldrei verið gefið saman í hjónaband. Lifði í synd, sem kall­ að er. Séra Gunnar hafði áhyggjur af þessu og heimsótti hjúin. Setti prestur á langar tölur yfir þeim og leiddi þeim fyrir sjónir að þessi syndsamlegi lifnaður gengi ekki. Þegar prestur hafði drukk­ ið kaffi, þakkað fyrir sig og kvatt, sagði konan við sambýlismann sinn: Heyrðu elska, heldurðu ekki að við ættum að gifta okkur eins og presturinn sagði? Karlinn svaraði: Hver heldurðu að vilji okkur?“ n „Sögurnar eiga kannski mikið undir því hvernig sá sem vitnað er til ber málið fram, kúnstpásur og kækir geta horfið í prent- málinu og oft er mikil- vægt að þekkja deili á helstu persónum til að skilja grínið. „Húmorinn er reyndar ærið kalla- legur, enda fjalla næstum allar sögurnar um karl- menn og oft þeirra blaut- legu athugasemdir. Þeir vita það fyrir vestan Gunnar Björnsson Haft eftir gömlum vini séra Gunnars að hann væri misskilið séní.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.