Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 51
Starfsmenn fyrirtæk-isins Bortækni leysa fagmannlega af hendi öll verkefni, stór sem smá, á fljótlegan og skilvirkan hátt. „Við höfum 36 ára reynslu sem er dýrmæt og nýtist viðskiptavinum okkar vel. Strax í upphafi var sérstök áhersla lögð á fagleg vinnu- brögð og þrifalega um- gengni. Keyptar voru vatns- sugur og ýmislegt fleira í þeim tilgangi,“ segir Halldór Kristjánsson verkstjóri. Nýjustu og bestu tækin Halldór segir að Bortækni annist margvísleg verkefni, eins og t.d. kjarnaborun og gólfslípun auk þess sem fyrirtækið sérhæfir sig í steypusögun, kjarnaborun og niðurrifi. „Bortækni hefur á rúmlega 35 ára ferli ávallt lagt mikla áherslu á að veita viðskiptavinum sínum góða og persónulega þjónustu. Með nýjustu og bestu fáan- legum tækjum er okkur kleift að bjóða hraða þjónustu á sanngjörnu verði,“ segir hann. Leiðandi á íslensk- um verktakamark- aði „Bortækni hefur verið leiðandi á íslenskum verktaka- iðnaði í gegnum tíð- ina og ekkert verk er of stórt eða of smátt fyrir okkur. Í dag erum við með átta starfsmenn sem eru frábærir. Okkur er mjög umhugað um vinnuöryggi og heilsu okkar starfsmanna. Bortækni vinnur mikið í heimahúsum við að saga glugga, hurðar- op og stiga. Fyrir- tækið tekur einnig að sér að saga fyrir hita í gólf og sér um að rífa allt, eins og innréttingar, veggi og gólfefni. Við komum á staðinn og gerum verðtilboð þér að kostnaðar- lausu,“ segir Halldór að lokum. Bortækni ehf., Miðhrauni 14, 210 Garðabær. Símar: 567- 7570, 693-7700. Netfang: bortaekni@bortaekni.is www. bortaekni.is. Byggingafyrirtækið Skjólverk ehf. hefur verið starfandi frá árinu 1987, eða í rétt tæp 30 ár. Megin- þungi starfsemi fyrirtækisins liggur í viðhaldi og endurbótum á húsnæði, umfram verkefni á sviði nýbygginga. Skjólverk sinnir reglulegu viðhaldi og endurbótum á hátt á þriðja þúsund íbúðum á höfuð- borgarsvæðinu í samstarfi við stærstu fasteignafélög lands- ins, þar inni eru meðal annars fjölmargar íbúðir í félagslega húsnæðiskerfinu. En Skjólverk sinnir líka þjónustu við einstök húsfélög og vinnur því fyrir bæði litla og stóra aðila. Mikill reynsla og þekking Hjá Skjólverki starfar hópur fag- lærðra iðnaðarmanna á hinum ýmsu sviðum. Víðtæk þekking þeirra og reynsla gagnast vel við hin ýmsu vandamál sem hefð- bundnar byggingaraðferðir á Íslandi hafa í för með sér. Margt er vel gert við byggingu íbúða hér á landi en aðferðirnar og byggingarefnin hafa líka skapað vandamál á borð við húsa- sveppi, raka, skort á loftun á þökum og slæma hljóðvist. Þessi vandamál takast starfsmenn Skjólverks á við, til dæmis með því að skipta út byggingarefnum þar sem við á. Hér kemur stór reynslubanki Skjólverks að góð- um notum en fyrirtækið vinnur auk þess oft í nánu samstarfi við arkitekta og sérfræðinga á sviði byggingarverkfræði og byggingareðlisfræði. Heildarmynd og forgangsröðun Skjólverk kappkostar að beita bestu og nýjustu aðferðum hverju sinni við lagfæringar og endurbætur. Fyrirtækið virkjar þar, auk þekkingar og reynslu eigin starfsmanna, náið samstarf sitt við sér- hæfða samstarfsaðila með mikla menntun og reynslu hver á sínu sviði. Afrakstur þess er lækkun viðhaldskostn- aðar og betri heildarsýn yfir ástand og rekstur fasteigna. Skjólverk býður upp á alhliða viðgerðir á öllum tegundum fasteigna, til dæmis glugga og glerskipti, endurnýjun og viðgerðir á þakefnum, uppsetn- ingu á utan hússklæðningum, pípulagnir, raflagnir, múrvinnu, málun, dúklagningar og fleira. Auk einstakra viðhalds- og endurbótaverkefna býður fyrirtækið upp á nýbyggingar og viðbætur fasteigna og veitir auk þess langtímaþjónustu og ráðgjöf (LCC) vegna viðhalds fasteigna. Stórt og smátt – allar iðngreinar Skjólverk tekur bæði að sér stór og smá verk á sviði lagfæringa og endurbóta og vinnur jafnt fyrir stóra sem smáa aðila, eins og fyrr segir. Sérhæfð þekking og kunnátta iðnaðarmanna Skjólverks spannar vítt svið en fyrirtækið hefur á sínum vegum iðnmeistara og faglærða iðnað- armenn í eftirtöldum greinum: Húsasmíði Málun Trésmíði Innréttingar/hurðir Múrverk Dúkalögn/veggfóður Pípulagnir Pappalagnir/dúkur Raflagnir Niðurrif Blikksmíði Stíflulosun Hver sá sem þarf á þjónustu iðnaðarmanna að halda, í stórum sem smáum verkefnum, getur haft samband við Skjól- verk og fengið tilboð. Skjólverk er í Ármúla 8, 108 Reykjavík. Sími er 898 4520 og netfang skjolverk@skjolverk.is Á vandaðri heimasíðu fyrirtækisins, skjolverk. is, er að finna gagnlegar upplýsingar um starf- semina og þá þjónustu sem í boði er. Helgarblað 4. ágúst 2017 KYNNING SKjóLVERK: Alhliða viðhald og endurbætur BORtæKNI: 36 ára þekking og reynsla „VIð KOMuM Á StAðINN OG GERuM VERðtILBOð ÞéR Að KOStNAðARLAuSu“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.