Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 16
16 sport Helgarblað 4. ágúst 2017 A ron Einar Gunnarsson, fyrir liði Íslands og leik­ maður Cardiff, hefur leik í næstefstu deild Englands um helgina en deildin þar er að hefjast. Aron er algjör lykilmaður í liði Cardiff og hefur verið það í mörg, árið í ár er samt líklega það síðasta í herbúðum félagsins en samningur hans er á enda næsta sumar. „Þetta undirbúningstímabil er búið að vera allt í lagi, það hefur verið létt yfir þessu og maður sér að Warnock (þjálfari Cardiff) hefur al­ veg gert þetta áður. Hann veit hvað leikmenn þurfa til að vera í réttu formi en líka að vera léttir andlega, við erum búnir að æfa mjög vel en það hafa líka verið skemmtileg­ ir hlutir í gangi. Þetta hefur verið blanda af erfiðisvinnu og skemmti­ legum hlutum, ég fékk líka aðeins lengra frí. Þetta var því styttra undir­ búningstímabil fyrir mig, þetta var mjög fínt. Í raun eitt skemmtileg­ asta undirbúningstímabil sem ég hef farið í gegnum,“ sagði Aron í samtali við DV í vikunni en hann fékk lengra sumarfrí en aðrir leik­ menn liðsins. „Ég fékk ekki mikið frí síðasta sumar, þetta voru í raun tvö tímabil sem maður tók í röð með Evrópumótinu þar á milli. Það var kærkomið að fá afslöppun og að­ eins lengra frí en aðrir, það gerir mikið fyrir hausinn á manni að slappa alveg af og hugsa um allt aðra hluti en fótbolta. Þetta var kær­ komið eftir tvö mjög erfið tímabil.“ Væntingar gerðar til liðsins Stuðningsmenn Cardiff gera kröfur til liðs síns í ár og vilja að það berj­ ist um að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina. „ Maður finnur fyrir smá væntingum frá stuðnings­ mönnum okkar, maður finnur fyrir því að það eru gerðar kröfur um að við berjumst um þessi efstu sex sæti. Það vita allir knattspyrnu­ áhugamenn hvernig þessi næstefsta deild á Englandi virkar, við erum með Warnock og hann er þekktur fyrir að ná í úrslit í þessari deild. Maður veit ekki hvað hann á langt eftir á ferli sínum og ég held að hann vilji gera atlögu að því að komast upp. Við vitum að það eru stórir klúbbar í þessari deild með mikið af peningum, leikmenn hafa farið fram og til baka og við gerum okkur grein fyrir því að þetta get­ ur orðið erfitt. Markmiðið er alltaf að komast í þessi efstu sex sæti og eiga möguleika á því að fara upp, við verðum að sjá hvernig þetta þróast í byrjun. Mér sýnist á öllu að menn séu ferskir og léttir og við ætt­ um að geta byrjað vel, þegar í alvör­ una er komið veit maður svo aldrei. Við erum alveg búnir undir að það hlutir geta farið úrskeiðis en við erum klárir í slaginn. Það er mikil­ vægt að byrja vel, við byrjuðum ekki vel í fyrra og vegna þess var þjálfar­ inn okkar rekinn. Warnock kom svo inn og nær 30 leikjum og nær í úr­ slit sem fólk var ekki að búast við, vegna þess eru væntingarnar til okkar núna meiri. Það er jákvætt. Ég myndi segja að við værum með sterkara lið en í fyrra, við erum búnir að bæta við okkur leikmönn­ um og nánast halda öllum. Cardiff hefur ekki selt neinn leikmann í sumar og ég held að það hafi verið lagt upp með að halda öllum frá því í fyrra og bæta því við sem þurfti. Við erum komnir með meiri breidd í liðið og aðeins meiri hraða fram á völlinn. Warnock vildi meiri breidd út af þessu leikjaálagi, það er góð blanda í þessum hóp og þetta lítur vel út. Fyrstu sex leikirnir eru mik­ ilvægir.“ Er orðinn Hr. Cardiff Aron Einar er reynslumesti leik­ maður Cardiff en hann kom til fé­ lagsins árið 2011 og lék eitt ár með liðinu í úrvalsdeildinni árið 2013. „Peter Whittingham fór frá okkur í sumar, hann var samningslaus og fékk lengri samning hjá Blackburn en Cardiff var til í að bjóða. Ég er því orðinn reynslumesti leikmað­ urinn hjá Cardiff núna, ég er búinn að vera lengst hjá félaginu af leik­ mönnunum í dag. Þeir sem komu liðinu upp í úrvalsdeildina eru ekki í þessum hóp lengur, það er skrýtið. Þeir hafa reynslu í að koma liðinu upp en Warnock hefur hana líka og við erum með flottan hóp í dag.“ Reiknar með því að fara næsta sumar Aron Einar var orðaður við nokkur lið í sumar og áhuginn var til stað­ ar, Neil Warnock, knattspyrnustjóri liðsins, sagði Aroni hins vegar að hann væri ekki til sölu fyrir sum­ arið og það kom á daginn. „Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvort ég fari næsta sumar, eins og staðan er í dag þá reikna ég með því. Maður veit samt aldrei hvað gerist og hvað Cardiff kemur með. Ég ætla að taka stöðuna á næstu vikum, ef eitthvað gerist þá sér maður hvað er í gangi og prófar eitthvað nýtt kannski. Núna er hausinn fyrst og fremstur stilltur inn á að byrja tímabilið vel með Cardiff. Það gekk á ýmsu í sumar, sumt var ekki spennandi en aðrir hlutir voru spennandi. Ég vissi alveg að Warnock myndi ekki taka neinu tilboði í mig, hann sagði við mig í lok síðasta tímabils að hann myndi ekki selja mig og ég reiknaði því með því að það stæði bara. Það verður að koma í ljós í janúar hvað gerist, þeir gætu viljað selja mig til að fá einhvern pening eða boðið mér þá nýjan samning. Þetta kemur allt í ljós.“ Mikilvægustu landsleikir sögunnar Í byrjun september leikur íslenska landsliðið tvo mikilvæga lands­ leiki, við Finnland og Úkraínu, og sigrar í þeim leikjum væru stórt skref inn á HM í Rússlandi næsta sumar. „Þessir landsleikir eru alltaf ofarlega í hausnum á manni, það er klisjan sem við höf­ um notað mikið síðustu ár. Þetta eru mikilvægustu landsleikir í sögu karlalandsliðsins fram und­ an, við þurfum að ná í tvo sigra í næstu tveimur leikjum. Króatía er ekki að tapa mörgum leikjum, Króatar ætla sér á HM. Við þurf­ um að eiga tvo toppleiki til að ná í sex stig gegn Finnlandi og Úkraínu. Við vorum í veseni gegn Finnlandi á heimavelli þar sem við þurftum að stjórna leiknum og við þurfum að vera vel yfir þann leik og ég veit að Heim­ ir Hallgrímsson er að því. Þetta verða tveir virkilega skemmtileg­ ir leikir og ég er spenntur fyrir ferðinni til Íslands því það verð­ ur mikið af Íslendingum þarna í sameiningu við körfuna. Ef við töpum öðrum af þessum leikjum þá skiptir sigurinn á Króatíu ekki neinu máli, öll sú erfiðisvinna sem við settum í það verkefni myndi bara þurrkast út. Við get­ um ekki tapað þessum leikjum út af einhverju kæruleysi, við þurf­ um að hafa hausinn í lagi og ég hef reyndar ekki neinar áhyggjur af því að svo verði ekki. Ég hef ekki trú á neinu öðru en að menn séu með hugann við þessa leiki.“ n Langþráð sumarfrí hjá reynslu- mesta leikmanni Cardiff n Aron Einar hefur leik á Englandi um helgina n Líklega síðasta tímabilið með Cardiff Sumarið var fjörugt hjá Aroni Aron Einar gekk í það heilaga í sumar auk þess sem Ísland vann frábæran sigur á Króatíu. Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.