Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 62
38 menning Helgarblað 4. ágúst 2017 H ann heitir Garðar Eyfjörð Sigurðsson, en er kallaður Gæi eða Gassi. Í rapp- heiminum gengur hann undir listamannsnafninu Kilo og á Snapchat er hann KiloKefCity. Kilo hefur rappað lengi en ýmis- legt hélt aftur af honum í upphafi ferilsins. Núna er hann rísandi stjarna í íslenskri tónlist og ein af vinsælustu Snapchat-stjörn- um landsins. Hann hefur einnig riðið öldu veipsins og þreytist ekki á að fræða fyrrverandi reyk- ingafólk og aðra áhugamenn um kosti þess. Þann 10. ágúst kemur út fyrsta plata hans, „White Boy of the Year“. Kom undir í fiskikari Kilo er fæddur í Keflavík árið 1982. Hann var slysabarn, for- eldrar hans voru aldrei par en störfuðu saman í fiskverk- smiðju í Grindavík. Kilo segir kíminn: „Ég frétti að þau hefðu „bang“-að í einhverju fiskikari.“ Móðir hans hóf seinna sambúð með bandarískum manni og þau fluttu á stöð varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þar bjuggu þau í eitt ár en fluttu síðan út til Bandaríkjanna. „Ég bjó í New Orleans í Louisi ana, svo bjó ég í fjölda smábæja í Pennsylvaníu. Titus- ville, Centerville, ég bjó meira að segja í bæ sem hét Pleasant- ville, alveg eins og bíómyndin. Það var hræðilegt. Þar bjuggu 167 manns, allt eldri borgarar.“ Kilo flutti aftur til Íslands 14 ára gamall og hann segist elska landið. Þá sérstaklega hreina loftið og öryggið. Fjölskylda hans býr ennþá úti í Bandaríkj- unum og hann heimsækir hana reglulega. Nú býr hann með afa sínum og ömmu í rauðu ein- býlishúsi í Keflavík. Hann hefur unnið sem næturvörður á hóteli í nokkur ár. „Ég er mjög vel liðinn í hótelbransanum hérna.“ Var í sukki um tíma „Ég var í rosalegu sukki frá því ég var 19 ára þar til ég varð 26 ára. Eyddi lífi mínu í kjaftæði. Var að vorkenna sjálfum mér og kenna öðrum um vandamál mín. Ég þroskaðist afskaplega seint, náði ekki að skilja hvað ég hafði það slæmt.“ Kilo drakk mikið, dópaði og umgekkst fólk sem dró hann niður. „Þegar þú ert svona hár persónuleiki eins og ég þá laðast fólk að þér, hangir á þér. Það var í febrúar í fyrra sem ég ákvað að skera allt þetta pakk úr lífi mínu. Fólk sem var að draga mig niður, nota mig. Þá fór ég að finna mér stefnu.“ Kilo þakkar Bjarka „Balatron“ Hallbergssyni að hafa náð að rífa sig upp. „Hann er minn Miyagi og sýnir enga með- virkni. Ef ég væli og kvarta yfir einhverju þá sparkar hann í mig og segir mér satt. Enginn filter. Ég öðlaðist sjálfstraust mitt vegna hans.“ Balatron er lagasmiður, framleiðandi og plötusnúður sem hefur meðal annars unnið fyrir Pál Óskar. Hann og Kilo starfa nú saman í rappinu. Rapp er íþrótt Kilo hefur rappað í næstum því 16 ár. Tvítugur byrjaði hann að semja texta. „Ég skrifaði hvern einasta dag fyrstu sex árin, að minnsta kosti eitt vers. Eins og með hljóðfæraleik. Ef þú ætlar að verða góður gítarleikari, þarftu að spila á hverjum einasta degi.“ Hann segist vera heppinn að hafa alist upp á tíunda áratugnum, gullöld hip-hopsins. Hann hafi lært mikið áður en hann byrjaði að þróa sinn eigin stíl. „Núna eru allir að gera sama skítinn. Allir geta rappað vegna þess að allir nota bara sama „flow“-ið, svokallaðan Memphis- stíl.“ Kilo hefur oft verið kallaður „bófa-rappari“ en hann segist einfaldlega hafa árásargjarnan stíl. „Ég er „old-school“, ég vil myrða rappara. Ég vil að rapparar séu hræddir við mig og mína hæfileika.“ Rapp er orðin ein vinsælasta tónlistarstefnan á Íslandi í dag, en Kilo kallar eftir meiri samkeppni milli rappara. „Það er ekkert að heilbrigðri samkeppni á milli fólks. Rapp er íþrótt. Ef þú ert alvöru MC, alvöru spittari, verður „Frumlegi heilinn virkar á allt annan hátt en venjulegi heilinn. n „Ég vil myrða rappara“ n Þekktari fyrir snappið n Byrjaði að veipa vegna ömmu sinnar Kilo er rappari, snappari og andlit veip á íslandi Kristinn Haukur Guðnasson kristinn@dv.is Kíló „Ég er besti rappari á Íslandi.“ Mynd SiGtRyGGuR ARi Reykti tóbak í 17 ár „Veip bjargar mannslífum.“ Mynd SiGtRyGGuR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.