Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 63

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Blaðsíða 63
menning 39Helgarblað 4. ágúst 2017 að líta á þig sem íþróttamann. Það þýðir að þú þarft að æfa þig og hlusta á aðra.“ Þá gagnrýnir hann einnig þá stemningu að allir eigi að vera vinir í rappinu og saknar þess að menn sendi pillur milli sín í textum, svokallað „beef“. „Ég er besti flæðarinn. En allir rapparar eiga að segja það. Eins og í boxinu. En ég er besti rappar­ inn þegar allt er tekið með í reikn­ inginn.“ Eini rapparinn sem Kilo telur ógna sér er Herra Hnetu­ smjör en þeim hefur einmitt oft verið líkt saman hvað varðar hraða og flæði. „En það er gaman, það heldur mér á tánum. Ég ber mikla virðingu fyrir Herra Hnetu­ smjöri.“ Sker sig úr fjöldanum Kilo sker sig úr í rappsenunni að því leyti að hann rappar á ensku en langflestir íslenskir rappar­ ar rappa á íslensku. „Ég er bara svona mikill Kani, ég er betri í ensku en íslensku. Þú getur leik­ ið þér miklu meira með enskuna.“ Í upphafi íslenska rappsins á tíunda áratugnum voru til hljóm­ sveitir eins og Subterranean og Quarashi sem röppuðu á ensku en XXX Rottweiler hundar mörk­ uðu kaflaskil með því að nota ís­ lensku í kringum aldamótin. Kilo segist hafa verið undir miklum þrýstingi um að rappa á íslensku. „Fólk sagði: Móður­ málið Kilo, þú verður að rappa á móður málinu, þú verður að fall­ beygja rétt!“. Hann telur þó að það sé að slakna á þessari stefnu og ís­ lenskir rapparar séu byrjaðir að sletta mun meira en þeir gerðu áður. Hann segist einnig hafa horft til enskunnar sem farvegar fyrir tónlist sína erlendis. Nú ein­ beiti hann sér hins vegar einungis að velgengni hér heima. Í fyrrahaust gaf hann út lagið „Magnifico“ sem sló heldur betur í gegn. Fyrstu vikuna á Youtube var horft á það 22.000 sinnum og er það nú komið í um það bil 54.000. Á Spotify er hlustun kom­ in yfir 100.000. „Ég er búinn að vera neðanjarðargoðsögn í 15 ár. Nú er ég kominn í almenna spil­ un sem ég er mjög ánægður með. Magnifico er samt eina fræga lag­ ið mitt.“ Hann segist hafa verið mikið gagnrýndur fyrir um tíu árum fyrir að bera gullkeðjur og annað glingur. Þá var hann kall­ aður „póser“. „Núna eru allir krakkarnir með grill í tönnunum. Loksins eru Íslendingar búnir að ná Kananum. Ísland hefur hingað til alltaf verið svolítið eftir á í tón­ list, nema þá helst í rokki. En ekki í dag.“ Þekktari sem snappstjarna Kilo byrjaði að snappa fyrir tveim­ ur árum sem KiloKefCity. Það var snappstjarnan Gæi (Iceredneck) sem hjálpaði honum til að byrja með. „Hann reddaði mér mín­ um fyrstu 100 vinum á Snapchat. Hann var orðinn frægur, kominn með 700 fylgjendur. Við þekktu­ mst vel, ég keypti minn fyrsta bíl af honum. Hann var kallaður Gæi steri, ég var kallaður Gæi feiti. Við gerum alveg gjörólík snöpp en hann tók mig undir væng sinn um tíma.“ Aðspurður hvort hann sé snappstjarna segir Kilo: „Já. Ég fattaði það í fyrra að ég væri snappstjarna.“ Hann segir marga snappara ljúga til um fjölda fylgj­ enda en hann sé sjálfur með um 7.500–8.000 í dag og þeim fari ört fjölgandi. Í dag sé hann mun þekktari sem snappari en rappari. „Ég hef svo gaman af þessu. Ég fékk ekki frið á Secret Solstice í sumar. Um 300–400 manns vildu fá „selfie“ með mér. Ég fékk meiri athygli en Aron Mola sem er með fleiri fylgjendur. Ég gleymdi í smá stund að ég væri rappari.“ Fær sendar myndir af heimili sínu Rapparinn Kilo og snapparinn KiloKefCity gætu vart verið ólíkari persónur, eins og doktor Jekyll og herra Hyde í sögu Stevenson. Rapparinn er árásargjarn og fjandsamlegur en snapparinn ávallt hress og örlítið ruglaður. Á Snapchat er hann þekktur fyrir leikrit sem hann setur upp. „Þetta kemur allt í einu. Fólk heldur að ég skrifi þetta. Þetta byrjar að rúlla þegar mér leiðist. Frumlegi heilinn virkar á allt annan hátt en venju­ legi heilinn. Það slökknar aldrei á honum. Ég er bara heppinn.“ Líkt og aðrar snappstjörnur hefur Kilo fengið sinn skerf af óþægilegum uppákomum. „Fólk tekur myndir af húsinu mínu og sendir mér þær og krakkar eru að banka hérna upp á. Sumir taka myndir af hótelinu sem ég vinn á.“ Hann segir þennan fylgifisk frægðarinnar frekar óþægilegan. Hann hefur þó ekki oft lent í því að fá hatursskilaboð frá fylgj­ endum sínum. Þau séu teljandi á fingrum annarrar handar sem sé mjög sjaldgæft í snappheimin­ um. Hann telur að þessi skilaboð séu sennilega flest send af krökk­ um. Meirihluti fylgjenda hans sé uppkomið fólk. Kilo svarar flest­ um skilaboðum sem hann fær en hann lendir þó í því að fólk klínir sér á hann og hann eigi erfitt með að losna við það. Byrjaði að veipa vegna ömmu sinnar Amma Kilo veiktist af lungna­ þembu fyrir jólin árið 2015. Hún var lögð inn á gjörgæslu og henni var ekki hugað líf. Heilbrigðis­ starfsfólkið sagði fjölskyldunni að hún myndi sennilega kveðja um Þorláksmessu. „En hún er hörku­ tól, með nautshjarta, og lifði þetta af.“ Hún fékk að fara af sjúkrahús­ inu í febrúar árið 2016. Fram að þessu hafði Kilo reykt einn til tvo sígarettupakka á dag í 17 ár samfellt. „Salem Lights. Á djamminu keðjureykti ég þrjá til fjóra pakka.“ En hann lofaði sjálf­ um sér og ömmu sinni að hætta þegar hún kæmi heim af sjúkra­ húsinu. Þá kynntist hann veipinu. „Veip er tískubóla fyrir fólk sem hefur ekki reykt, en þetta bjargar mannslífum. Án gríns. Þetta er 95 prósent minna skaðlegt en síga rettutóbak og reykingar hafa minnkað heilmikið á landinu vegna þess. Þetta er ekki alveg skaðlaust en þú þarft ekki að vera kjarneðlisfræðingur til að sjá að þetta er mun betra en að reykja tóbak.“ Kilo er duglegur að auglýsa veip í gegnum Snapchat­reikn­ ing sinn og þær helstu græjur og vökva sem til eru á markaðinum. „Ég er frægasti veiparinn á landinu, það er pottþétt mál. Ef ég mæli með einhverju þá selst það upp á einni viku.“ Hann er í samstarfi við veip búðina Djákn­ ann á Suðurlandsbraut. „Þetta er ekki einu sinni spons. Djákninn er minn staður. Þeir koma best fram við mig.“ Finnst hræðilegt að sjá krakka veipa Hann telur veipið þó einnig hafa sínar myrku hliðar. „Ég fæ stundum snöpp frá 11–12 ára krökkum að veipa. Það er hræði­ legt, þetta eru börn. Maður er orðinn svo þekktur fyrir veipið að maður hefur ekki stjórn á þessu. Það hefur pottþétt fjöldi krakka byrjað að veipa út af mér og mér líður mjög illa yfir því.“ Veip er ekki einungis leið fyrir fólk til að hætta að reykja, heldur er það orðið að lífsstíl eða áhuga­ máli. Kilo segist eiga fimm græjur núna sem hann noti að staðaldri. Hann hafi hins vegar átt yfir 30 í gegnum tíðina. „Þú getur keypt þér veip­græju sem eru eins og Toyota Corolla, svo geturðu keypt þér veip­ græju sem er eins og Rolls Royce.“ Kilo veipar vitanlega einungis á Rolls Royce­týpunni. Hann segist fá margar spurningar um veip á Snapchat, og þá sérstaklega um vökvann. „Ég veipa ekki djús nema hann sé framleiddur í Kaliforníu. Það er Mekka djússins.“ Uppá­ haldið hans er Vapor Maid og Juice Roll­Upz. Einnig er hægt að veipa án nikótíns. „Fólk sem reykir ekki ætti ekki að byrja að veipa með nikótíni. Sumir vilja bara veipa til að vera með, upp á félagslega þáttinn. Það eru til vökvar með engu nikótíni sem eru ekkert ávanabindandi.“ n „Þú verður að fall- beygja rétt! Kíló „Ég er besti rappari á Íslandi.“ Mynd Sigtryggur Ari Snappstjarna „Ég gleymdi í smá stund að ég væri rappari.“ Mynd Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.