Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Qupperneq 63
menning 39Helgarblað 4. ágúst 2017
að líta á þig sem íþróttamann. Það
þýðir að þú þarft að æfa þig og
hlusta á aðra.“ Þá gagnrýnir hann
einnig þá stemningu að allir eigi
að vera vinir í rappinu og saknar
þess að menn sendi pillur milli
sín í textum, svokallað „beef“.
„Ég er besti flæðarinn. En allir
rapparar eiga að segja það. Eins
og í boxinu. En ég er besti rappar
inn þegar allt er tekið með í reikn
inginn.“ Eini rapparinn sem Kilo
telur ógna sér er Herra Hnetu
smjör en þeim hefur einmitt oft
verið líkt saman hvað varðar
hraða og flæði. „En það er gaman,
það heldur mér á tánum. Ég ber
mikla virðingu fyrir Herra Hnetu
smjöri.“
Sker sig úr fjöldanum
Kilo sker sig úr í rappsenunni að
því leyti að hann rappar á ensku
en langflestir íslenskir rappar
ar rappa á íslensku. „Ég er bara
svona mikill Kani, ég er betri í
ensku en íslensku. Þú getur leik
ið þér miklu meira með enskuna.“
Í upphafi íslenska rappsins á
tíunda áratugnum voru til hljóm
sveitir eins og Subterranean og
Quarashi sem röppuðu á ensku
en XXX Rottweiler hundar mörk
uðu kaflaskil með því að nota ís
lensku í kringum aldamótin.
Kilo segist hafa verið undir
miklum þrýstingi um að rappa
á íslensku. „Fólk sagði: Móður
málið Kilo, þú verður að rappa á
móður málinu, þú verður að fall
beygja rétt!“. Hann telur þó að það
sé að slakna á þessari stefnu og ís
lenskir rapparar séu byrjaðir að
sletta mun meira en þeir gerðu
áður. Hann segist einnig hafa
horft til enskunnar sem farvegar
fyrir tónlist sína erlendis. Nú ein
beiti hann sér hins vegar einungis
að velgengni hér heima.
Í fyrrahaust gaf hann út lagið
„Magnifico“ sem sló heldur betur
í gegn. Fyrstu vikuna á Youtube
var horft á það 22.000 sinnum
og er það nú komið í um það bil
54.000. Á Spotify er hlustun kom
in yfir 100.000. „Ég er búinn að
vera neðanjarðargoðsögn í 15 ár.
Nú er ég kominn í almenna spil
un sem ég er mjög ánægður með.
Magnifico er samt eina fræga lag
ið mitt.“
Hann segist hafa verið mikið
gagnrýndur fyrir um tíu árum
fyrir að bera gullkeðjur og
annað glingur. Þá var hann kall
aður „póser“. „Núna eru allir
krakkarnir með grill í tönnunum.
Loksins eru Íslendingar búnir að
ná Kananum. Ísland hefur hingað
til alltaf verið svolítið eftir á í tón
list, nema þá helst í rokki. En ekki
í dag.“
Þekktari sem snappstjarna
Kilo byrjaði að snappa fyrir tveim
ur árum sem KiloKefCity. Það var
snappstjarnan Gæi (Iceredneck)
sem hjálpaði honum til að byrja
með. „Hann reddaði mér mín
um fyrstu 100 vinum á Snapchat.
Hann var orðinn frægur, kominn
með 700 fylgjendur. Við þekktu
mst vel, ég keypti minn fyrsta bíl
af honum. Hann var kallaður Gæi
steri, ég var kallaður Gæi feiti.
Við gerum alveg gjörólík snöpp
en hann tók mig undir væng sinn
um tíma.“
Aðspurður hvort hann sé
snappstjarna segir Kilo: „Já. Ég
fattaði það í fyrra að ég væri
snappstjarna.“ Hann segir marga
snappara ljúga til um fjölda fylgj
enda en hann sé sjálfur með um
7.500–8.000 í dag og þeim fari
ört fjölgandi. Í dag sé hann mun
þekktari sem snappari en rappari.
„Ég hef svo gaman af þessu.
Ég fékk ekki frið á Secret Solstice
í sumar. Um 300–400 manns vildu
fá „selfie“ með mér. Ég fékk meiri
athygli en Aron Mola sem er með
fleiri fylgjendur. Ég gleymdi í smá
stund að ég væri rappari.“
Fær sendar myndir
af heimili sínu
Rapparinn Kilo og snapparinn
KiloKefCity gætu vart verið ólíkari
persónur, eins og doktor Jekyll
og herra Hyde í sögu Stevenson.
Rapparinn er árásargjarn og
fjandsamlegur en snapparinn
ávallt hress og örlítið ruglaður. Á
Snapchat er hann þekktur fyrir
leikrit sem hann setur upp. „Þetta
kemur allt í einu. Fólk heldur að
ég skrifi þetta. Þetta byrjar að rúlla
þegar mér leiðist. Frumlegi heilinn
virkar á allt annan hátt en venju
legi heilinn. Það slökknar aldrei á
honum. Ég er bara heppinn.“
Líkt og aðrar snappstjörnur
hefur Kilo fengið sinn skerf af
óþægilegum uppákomum. „Fólk
tekur myndir af húsinu mínu og
sendir mér þær og krakkar eru að
banka hérna upp á. Sumir taka
myndir af hótelinu sem ég vinn
á.“ Hann segir þennan fylgifisk
frægðarinnar frekar óþægilegan.
Hann hefur þó ekki oft lent í
því að fá hatursskilaboð frá fylgj
endum sínum. Þau séu teljandi á
fingrum annarrar handar sem sé
mjög sjaldgæft í snappheimin
um. Hann telur að þessi skilaboð
séu sennilega flest send af krökk
um. Meirihluti fylgjenda hans sé
uppkomið fólk. Kilo svarar flest
um skilaboðum sem hann fær en
hann lendir þó í því að fólk klínir
sér á hann og hann eigi erfitt með
að losna við það.
Byrjaði að veipa
vegna ömmu sinnar
Amma Kilo veiktist af lungna
þembu fyrir jólin árið 2015. Hún
var lögð inn á gjörgæslu og henni
var ekki hugað líf. Heilbrigðis
starfsfólkið sagði fjölskyldunni að
hún myndi sennilega kveðja um
Þorláksmessu. „En hún er hörku
tól, með nautshjarta, og lifði þetta
af.“ Hún fékk að fara af sjúkrahús
inu í febrúar árið 2016.
Fram að þessu hafði Kilo reykt
einn til tvo sígarettupakka á dag
í 17 ár samfellt. „Salem Lights. Á
djamminu keðjureykti ég þrjá til
fjóra pakka.“ En hann lofaði sjálf
um sér og ömmu sinni að hætta
þegar hún kæmi heim af sjúkra
húsinu. Þá kynntist hann veipinu.
„Veip er tískubóla fyrir fólk sem
hefur ekki reykt, en þetta bjargar
mannslífum. Án gríns. Þetta er
95 prósent minna skaðlegt en
síga rettutóbak og reykingar hafa
minnkað heilmikið á landinu
vegna þess. Þetta er ekki alveg
skaðlaust en þú þarft ekki að vera
kjarneðlisfræðingur til að sjá að
þetta er mun betra en að reykja
tóbak.“
Kilo er duglegur að auglýsa
veip í gegnum Snapchatreikn
ing sinn og þær helstu græjur og
vökva sem til eru á markaðinum.
„Ég er frægasti veiparinn á
landinu, það er pottþétt mál. Ef
ég mæli með einhverju þá selst
það upp á einni viku.“ Hann er í
samstarfi við veip búðina Djákn
ann á Suðurlandsbraut. „Þetta er
ekki einu sinni spons. Djákninn
er minn staður. Þeir koma best
fram við mig.“
Finnst hræðilegt að
sjá krakka veipa
Hann telur veipið þó einnig
hafa sínar myrku hliðar. „Ég fæ
stundum snöpp frá 11–12 ára
krökkum að veipa. Það er hræði
legt, þetta eru börn. Maður er
orðinn svo þekktur fyrir veipið að
maður hefur ekki stjórn á þessu.
Það hefur pottþétt fjöldi krakka
byrjað að veipa út af mér og mér
líður mjög illa yfir því.“
Veip er ekki einungis leið fyrir
fólk til að hætta að reykja, heldur
er það orðið að lífsstíl eða áhuga
máli. Kilo segist eiga fimm græjur
núna sem hann noti að staðaldri.
Hann hafi hins vegar átt yfir 30 í
gegnum tíðina. „Þú getur keypt þér
veipgræju sem eru eins og Toyota
Corolla, svo geturðu keypt þér veip
græju sem er eins og Rolls Royce.“
Kilo veipar vitanlega einungis á
Rolls Roycetýpunni. Hann segist
fá margar spurningar um veip á
Snapchat, og þá sérstaklega um
vökvann. „Ég veipa ekki djús nema
hann sé framleiddur í Kaliforníu.
Það er Mekka djússins.“ Uppá
haldið hans er Vapor Maid og Juice
RollUpz.
Einnig er hægt að veipa án
nikótíns. „Fólk sem reykir ekki ætti
ekki að byrja að veipa með nikótíni.
Sumir vilja bara veipa til að vera
með, upp á félagslega þáttinn. Það
eru til vökvar með engu nikótíni
sem eru ekkert ávanabindandi.“ n
„Þú verður að fall-
beygja rétt!
Kíló „Ég er besti rappari á Íslandi.“ Mynd
Sigtryggur Ari
Snappstjarna „Ég gleymdi í smá stund að
ég væri rappari.“ Mynd Sigtryggur Ari