Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Qupperneq 15
umræða 15Helgarblað 4. ágúst 2017
alhæfandi, þá hafa margir bæði í
ræðu og riti haft það til marks um
lélegan húmor Íslendinga hvað
sögurnar í umræddum heftum
falla oft dauðar niður. En þá eru
menn óneitanlega að láta yfir
skriftina blekkja sig; hefði titill
inn verið annar er eins líklegt að
menn myndu ekkert alhæfa út frá
honum, heldur bara sjá að þetta
eru sögur úr stoltum flokki þjóð
sagna af þessu tagi sem flestar eru
betur sagðar; þær segja ekkert
um kímnigáfu neinna annarra
en skrásetjarans sjálfs. Á sama
tíma og þær voru færðar í letur
var verið um allt land að hripa
niður miklu fyndnari og betur
sagðar sögur, að maður tali nú
ekki um bókmenntir sömu ára,
og það þótt maður nefni ekki af
burða húmorista eins og Þórberg
Þórðarson eða Halldór Laxness.
Íslensk fyndni verður ekki endi
lega að henni þótt einhver höf
undur kunni að kalla sögur sínar
því nafni, og þetta mættu menn
hafa í huga næst þegar þeir hrapa
að stórum ályktunum sem aldrei
hefðu komið þeim í hug ef bóka
flokkurinn hefði heitið „Kerskni
úr ýmsum áttum“ sem hefði verið
jafn nærtækt.
Upp og ofan eins og gengur
En víkjum aftur að Hundrað
og einni nýrri vestfirskri þjóð
sögu, en sex hefti af átta keypti
ég fyrir nokkrum árum af útgef
andanum sem var þá með lítinn
söluskúr fyrir bækur Vestfirska
forlagsins niðri við höfn á Þing
eyri við Dýrafjörð. Það eru alveg
hreinar línur að margar af sögun
um í bókunum eru afbragðsvel
sagðar, hreinar perlur, þótt gæð
in séu reyndar afar misjöfn eins
og að líkum lætur. Húmorinn er
reyndar ærið kallalegur, enda
fjalla næstum allar sögurnar um
karlmenn og oft þeirra blaut
legu athugasemdir. Og þótt ég sé
reyndar orðinn dálítið leiður á
langdregnu kveini um karlrembu
í bókum, verð ég samt að segja
að í þessum kverum sem hér um
ræðir eru athugasemdir um kon
ur stundum hreinlega grófar og
hljóta sumar að vera meiðandi
þegar fólk er nafngreint. En þótt
sögurnar séu kallalegar þá eru
konur þó hetjur þeirra innan um,
eins og ein albesta sagan að mínu
mati, en hún er úr bindi númer
tvö, heitir „Hvort er séní“:
„Í fyrirsögn samantektar DV
um séra Gunnar Björnsson í Holti
í Önundarfirði var haft eftir göml
um vini séra Gunnars, að hann
væri misskilið séní. Nokkru síðar
hringdi blaðamaður í Holt og frú
Ágústa Ágústsdóttir, eiginkona
séra Gunnars, kom í símann.
„Hvernig er að vera í hjónabandi
með séní?“ spyr blaðamaðurinn.
„Ég get nú lítið sagt um það“, svar
ar frú Ágústa. „Þú ættir frekar að
spyrja manninn minn.““
Séra Baldur í Vatnsfirði
Ýmsir menn koma mikið við sögu
í þessum þáttum, og þá gjarnan
vegna orðheppni sinnar. Þeirra á
meðal er sá frægi klerkur og pró
fastur Baldur Vilhelmsson í Vatns
firði, sem lést í elli fyrir tæpum
þremur árum. Um séra Baldur
var eitt sinn gerður skemmtilegur
sjónvarpsþáttur, og sá sem þessar
línur skrifar kynntist hinum aldna
prófasti þannig að hann hringdi
gjarnan í mig snemma árs eftir að
hafa lesið þá nýútkomna bók og
vildi ræða efni hennar og ýmislegt
annað við höfundinn; urðu það oft
skemmtileg símtöl, sem enduðu
á þann veg að hann sagði: „Ég
heyri betur í þér góði“. Ég er ekki
með öll hefti vestfirsku þjóðsagn
anna undir höndum, en ein fræg
asta sagan af Baldri og er að mig
minnir í fyrsta heftinu og á þá leið
að eitt sinn var hann að aka um
Ísafjarðardjúp og kom þar fram á
svínshræ, sem trúlega hafði dottið
af sláturbíl. Klerki þótti óþrifnað
ur af þessu, farið að slá í hræið og
fluga að gjóta í augntóftir svo hann
hringdi í lögregluna á Ísafirði og
bað hana að sjá um að þetta yrði
fjarlægt. Sá sem varð fyrir svör
um á lögreglustöðinni þekkti pró
fastinn og svaraði í gamansömum
tón: „Hvern andskotann ertu að
hringja í okkur út af þessu? Við
skiptum okkur ekkert af dauðu
svíni inni í Djúpi.“ Þá sagði klerk
ur: „Já, já, góði. Þetta er nú allt í
besta lagi. En það hefur nú verið
venjan hérna í prestakallinu að
láta þá nánustu vita þegar dauðs
föll verða.“
Önnur saga af séra Baldri var
einhvern veginn á þá leið að hann
hafði gumað af veiðilendum sín
um inni í Djúpi og hvað hægt væri
að háfa þar marga lunda á einum
degi, og bauðst jafnframt til að
lána mönnum háfa ef þeir kæmu
og vildu reyna sig. Einhverjir tóku
hann á orðinu, komu og veifuðu
háfunum daglangt en höfðu sára
lítið upp úr krafsinu. Þeir skömm
uðu svo klerkinn og spurðu hvers
vegna þeir hefðu fengið svona
lítið í samanburði við það sem
hann hefði sagt. Er skammar
lesturinn þagnaði sagði séra Bald
ur: „Gestaháfar góði, gestaháfar.“
Vagnstjórinn
Annar maður sem verður efni í
nokkrar góðar sögur í þessum
heftum er Guðbjartur Jónsson sem
kallaður var vagnstjóri er hann rak
veitingahúsið Vagninn á Flateyri.
Hann þótti fljótur að hugsa en fór
stundum fram úr sér í orðatiltækj
um, að því er hermt er; um póli
tískt álitamál á hann að hafa sagt:
Ég er hissa á hvað fáir vita þetta,
því þetta vita allir! Ein afbragðs
fín saga er svona í meðförum Gísla
heitins í fimmta heftinu:
„Guðbjartur vagnstjóri
Jónsson á Flateyri var eitt sinn
fenginn til að leysa af í beitningu
í Bolungarvík og tók hann ekki í
mál að fara upp á annað en beita
tíu bala á dag. Fyrsta morgun
inn mætti Guðbjartur klukkan
níu. Landformaðurinn tók óblíð
lega á móti honum og gerði hon
um það ljóst á beituskúramáli, að
hér byrjuðu menn að beita klukk
an sex en væru ekki að drattast til
vinnu klukkan níu að ganga tíu,
því allt þyrfti að vera búið klukkan
þrjú á daginn. Guðbjartur svaraði
þessu litlu, hóf að beita og kláraði
sína tíu bala. Þegar hann fór heim
klukkan tvö sagði hann um leið
og hann fór: Á Flateyri er aldrei
spurt hvenær menn byrja heldur
hvenær þeir eru búnir. Þegar Guð
bjartur kom aftur til Flateyrar fóru
menn að ræða þetta við hann. Var
þá til þess tekið hvað hann hefði
verið fljótur með þessa tíu bala,
ekki nema fimm klukkutíma.
Það þýddi að hann hefði beitt að
meðal tali tvo bala á klukkutíma.
Þá svaraði Guðbjartur af hóg
værð: Það er ekki lengi gert að
beita í klukkutíma.“
Tvær í lokin
Úr því að nú fer í hönd mikil ferða
helgi læt ég hér fylgja í lokin kjarn
ann úr tveimur sögum úr þessum
bókaflokki, sem upplagt er að lesa
upp fyrir ferðafélaga á löngum
akstri. Í þeirri fyrri segir frá Sig
urði Þórðarsyni, bónda á Lauga
bóli í Nauteyrarhreppi í Djúpi, en
hann var sagður hafa haft gaman
af að ýkja er hann sagði sögur. Eitt
sinn hafði honum áskotnast for
láta riffill með kíki, og Matthías
Bjarnason alþingismaður á að
hafa spurt hann hvort riffillinn
væri ekki góður?
„„Minnstu ekki á það verk
færi“, sagði Sigurður. „Það geigar
ekki skot. Ég get sagt þér að hann
Jónsi gamli hérna á Bjarnastöð
um hinum megin við fjörðinn
bað mig að skjóta fyrir sig hrút.
Ég nennti ekki að fara fyrir Ísa
fjörðinn og sagði honum að fara
með hrútinn út um kvöldið klukk
an níu og standa við fjárhúsið. Ég
væri kominn með svo góðan riffil
og það væru nú ekki nema tve
ir kílómetrar yfir fjörðinn. Jónsi
gamli kom út með hrútinn á um
ræddum tíma og stóð með hann
í klofinu við fjárhúshornið. Ég
skaut svo yfir fjörðinn og hrútur
inn steinlá.“
„Mikill andskotans snillingur
ertu, Siggi“, segir Matti.
„Það er nú ekkert“, segir Sig
urður, en ég dáðist að karlskratt
anum að þora að hafa hrútinn í
klofinu.““
Og úr því séra Gunnar Björns
son var nefndur hér fyrr í pistlin
um þá kemur þessi hér:
„Á prestskaparárum séra
Gunnars Björnssonar í Bol
ungarvík (1972–82) varð hann
þess áskynja, að rígfullorðið sam
býlisfólk, sem bjó á Mölunum,
hefði aldrei verið gefið saman í
hjónaband. Lifði í synd, sem kall
að er.
Séra Gunnar hafði áhyggjur
af þessu og heimsótti hjúin. Setti
prestur á langar tölur yfir þeim og
leiddi þeim fyrir sjónir að þessi
syndsamlegi lifnaður gengi ekki.
Þegar prestur hafði drukk
ið kaffi, þakkað fyrir sig og kvatt,
sagði konan við sambýlismann
sinn:
Heyrðu elska, heldurðu ekki að
við ættum að gifta okkur eins og
presturinn sagði?
Karlinn svaraði:
Hver heldurðu að vilji okkur?“ n
„Sögurnar eiga
kannski mikið
undir því hvernig sá sem
vitnað er til ber málið
fram, kúnstpásur og
kækir geta horfið í prent-
málinu og oft er mikil-
vægt að þekkja deili á
helstu persónum til að
skilja grínið.
„Húmorinn er
reyndar ærið kalla-
legur, enda fjalla næstum
allar sögurnar um karl-
menn og oft þeirra blaut-
legu athugasemdir.
Þeir vita það fyrir vestan
Gunnar Björnsson Haft eftir gömlum vini séra Gunnars að hann væri misskilið séní.