Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2017, Page 56
32 Helgarblað 4. ágúst 2017
S
arah Bernhardt var í lif
anda lífi sögð frægasta
kona í sögu Frakklands,
fyrir utan Jóhönnu frá
Örk. Í byrjun fyrri heimsstyrj
aldar var hún beðin um að
yfir gefa Parísarborg því menn
stóðu í þeirri trú að Þjóðverj
ar myndu leggja allt kapp á að
taka hana sem gísl. Aðdáendur
hennar kölluðu hana „hina guð
dómlegu Söruh“. Þegar hún lá
fyrir dauðanum safnaðist al
þýða Parísarbogar saman fyrir
utan heimili hennar og kraup í
strætinu og bað fyrir lífi hennar.
Íhugaði að gerast nunna
Sarah Bernhardt fæddist í
París árið 1844. Hún var dóttir
vændiskonu sem virtist alla tíð
standa á sama um dóttur sína.
Sarah var heilsuveil sem barn
og skortur á umhyggju og ástúð
setti varanlegt mark á skapgerð
hennar sem þótti bera vott um
ójafnvægi og óöryggi.
Eina ástúðin sem Söruh
hlotnaðist í æsku kom frá abba
dís í klausturskóla þar sem hún
stundaði nám. Sarah var hinn
mesti vandræðanemandi og var
þrisvar sinnum rekin úr skóla
fyrir óknytti. Kynnin af abbadís
inni sem sýndi henni móður
lega umhyggju höfðu svo mikil
áhrif á Söruh að hún sagði að
minningin um þessa góðu konu
hefði gert sig að betri mann
eskju en hún hefði annars orðið.
Um tíma íhugaði hún jafnvel að
gerast nunna. Í stað þess steig
hún á svið átján ára gömul. Með
árunum óx frægð hennar jafnt
og þétt og um þrítugsaldur var
hún í sýningarferðum um heim
inn. Hún var orðin ein dáðasta
kona heims.
Henti hundi sínum út um
glugga
Sarah eignaðist son utan hjóna
bands. Milli þeirra mæðgina
ríkti alla tíð gagnkvæm ástúð
en sonurinn varð auðnuleys
ingi sem lifði alla tíð á móð
ur sinni og varð ekki til mikils
gagns í þessum heimi. „Hann er
slæmur strákur en mér líkar vel
við hann,“ sagði hin umburðar
lynda móðir. Sarah giftist einu
sinni, grískum aðalsmanni og
eiturlyfjaætu, Damala að nafni,
sem í hjónabandi niðurlægði
hana opinberlega á allan hátt.
Hún sagðist hafa gifst honum
vegna þess að gifting væri það
eina sem hún hefði átt eftir að
reyna. Hjónabandið var átaka
mikið og þótt þau væru löngum
aðskilin voru þau enn gift þegar
hann lést 34 ára gamall vegna
ofneyslu morfíns og kókaíns.
Sarah virtist syrgja einlæglega
mann sem hafði reynst henni
mjög illa. Eftir dauða hans
undirritaði hún öll opinber
skjöl: Sarah Bernhardt, ekkja
Damala.
Slúðurberar höfðu nóg við að
iðja þegar Sarah átti í hlut. „Ég
virðist laða að mér alla geðsjúk
linga heimsins,“ sagði hún. „Ég
held að engin kona hafi orðið
fyrir meiri rógi og níði.“ Meðal
þeirra sagna sem um hana
gengu voru þær að hún svæfi í
líkkistu sem fóðruð væri með
bréfum frá elskhugum hennar
en þeir áttu samkvæmt „áreið
anlegum heimildum“ að hafa
orðið þúsund áður en yfir lauk.
Meðal þeirra voru sagðir vera
Napóleon III, Rússakeisari og
sjálfur páfinn. Hún átti reyndar
líkkistu og lét mynda sig í henni
enda var hún bæði sérvitur og
uppátækjasöm.
Sarah bjó yfir miklum
persónutöfrum og gnægð af
hjartahlýju. Hún málaði mynd
ir, skrifaði rómantískar skáld
sögur og safnaði bókum sem
hún las sjaldnast. Hún hafði
enga ánægju af tónlist sem hún
sagði vera hávaða en samdi þó
að minnsta kosti eitt píanóverk.
Hún sankaði að sér dýrum og á
einu ferðalagi sínu teymdi hún
á eftir sér ljónsunga en neyddist
til að láta hann frá sér þegar hót
elin neituðu að hýsa hann. Hún
var mikil skapkona og henti
hundi sínum eitt sinn út um
hótelglugga í bræðiskasti. Hún
iðraðist þess samstundis, teygði
sig út um gluggann meðan
vinnukona hélt um fætur henn
ar þar til henni tókst að hand
sama hundinn sem lent hafði
á sillu. Í annað skipti réðst hún
inn í íbúð konu sem hafði skrif
aði um hana níð, lamdi hana
með svipu og gekk berserksgang
um íbúð hennar.
Talaði máli Dreyfusar
Hún var einlægur friðarsinni,
en dáði Napóleon. Allt frá byrj
un sýndi hún mikið hugrekki í
Dreyfusmálinu. Hún var aldrei
í vafa um sakleysi Dreyfusar og
hvatti rithöfundinn Emile Zola
til að tala máli hans. Dagblöð
birtu flennistórar fréttir á for
síðu: „Sarah Bernhardt fylgir
Zola að málum. Hin mikla lista
kona stendur með gyðingum
gegn hernum.“
Sarah var skapandi lista
maður, sífellt í leit að nýjum
víddum í leik sínum. Hún var
ekki laus við sviðsskrekk og
varð skelfingu lostinn ef hún
taldi áhorfendur vera sér fyrir
fram vinsamlega. Ef hún hafði
grun um að áhorfendur væru
tortryggnir í hennar garð þá var
hún ákaflega yfirveguð og hin
rólegasta. Þegar henni hafði
tekist sérlega vel upp í leik sín
um þá gaf hún jafnan sömu
skýringuna: „Guð var þar“.
Hún skrifaði um leiklist og
lagði mikla áherslu á mikilvægi
þess að nota röddina rétt, það
væri röddin sem tengdi saman
áhorfendur og leikara. Sömuleið
is taldi hún líkamshreyfingu á
sviði lykil að árangri. Frægustu
hlutverk hennar voru í Phaedru
og Kamelíufrúnni. Hún lék oft
karlmannshlutverk og var 56 ára
þegar hún spreytti sig á hlutverki
Hamlet. Hún sagði karlmanns
hlutverk vera bestu hlutverk
in. Umtalað var hversu fljót hún
var að læra hlutverk sín utan að,
en hún sagðist gleyma textanum
um leið og hún væri hætt að leika
viðkomandi hlutverk.
Hún var um sjötugt þegar
taka þurfti af henni annan fót
inn vegna veikinda en hún lét
fötlunina ekki hamla sér og
hélt á vesturvígstöðvarnar til að
skemmta hermönn
um um leið og hún var út
skrifuð af spítalanum. Hún
hélt áfram að leika fram í
andlátið árið 1923 og var með
fyrstu leikkonum til að leika í
kvikmyndum.
Hún sagði eitt sinn: „Við
eigum sjaldnast að hata því
það útheimtir of mikla orku,
láta okkur oftast standa á
sama, fyrirgefa oft og gleyma
engu.“ n
„Hún var mikl skap-
kona og henti
hundi sínum eitt sinn
út um hótelglugga í
bræðiskasti.
Hin guðdómlega Sarah
Sarah Bernhardt er ein frægasta leikkona allra tíma Hin guðdómlega Sarah Í lifanda lífi var
hún sögð frægasta kona Frakklands.
Leikkona sem allir dáðu Málverk eftir
Georges Clairin.
Á efri árum Taka varð af henni annan fótinn en
hún lét það ekki
aftra sér frá því að leika. MynD © naTionaL PorTraiT
GaLLery, LonDon
Umtöluð Hneykslishellur fengu aldrei nóg
af því að fylgjast með þessari óvenjulegu
konu.
menning - KjarnaKonur úr fortíð
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is